Morgunblaðið - 10.08.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.08.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2020 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Blöðin, kaffi og spjall kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Handa- vinnuhornið kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Við vinnum áfram eftir samfélagssáttmálanum, þvo og spritta hendur, virða 2 metra regl- una. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Garðabær Jónshús, félags- og íþróttastarf, s. 512 1501. Opið í Jóns- húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 8.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45-15.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Göngu- hópur fer frá Smiðju kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Minningarhópur kl. 10.30. Stólaleikfimi kl. 13.30. Korpúlfar Leikfimi með sjúkraþjálfara kl. 9.30 í Borgum og verður fram í miðjan ágúst. Ekkert þátttökugjald. Hefst svo á ný í september en þá á fimmtudögum. Gönguhópar leggja af stað kl. 10 frá Borgum og Grafarvogskirkju, ganga við allra hæfi. Morgunleikfimi útvarpsins kl. 9.45 í Borgum. Munum einstaklingsbundnar sóttvarnir, virðum reglurnar og komum heil heim. Seltjarnarnes Kaffispjall og krossgátur í króknum kl. 10.30. Leikfimi í salnum á Skólabraut kl. 11. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Þar sem aukin áhersla er lögð á að fólk fari varlega verður lítið um að vera í félagsstarfinu næstu daga. Rifjum upp samfélagssáttmálann, virðum 2ja metra regluna og munum handþvott og sprittun. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Smíðum vandaða sólpalla og skjólgirðingar. Gerum föst verðtilboð með tímaáætlun. Útvegum efni ef óskað er. Hafið samband á info@snorri.biz eða í síma 519-5550 Til sölu Sorpkvarnir í vaska Ýmislegt University of Veterinary and Pharmacy Dýralæknahaskólinn í Košice Slóvakiu heldur inntökupróf online 21. ágúst. Umsóknarfrestur til 14. ágúst www.uvfl.sk uppl. kaldasel@islandia.is og 8201071 Veiði Silunganet • Sjóbleikjunet Fyrirdráttarnet • Bleikjugildrur Nýtt á afmælisári Kraftaverkanet • margar tegundir Grisjunarnetin fyrir bleikju og netin í Litlasjó komin Að auki fylgja silunganetum vettlingar í aðgerðinni Bólfæri Netpokar fyrir þyngingu og eitthvað meira skemmtileg Heimavík 25 ára 01.05.1995 - 01.05.2020 Tveir góðir úr nýju netunum Reynsla • Þekking • Gæði heimavik.is, s. 892 8655 Bílar Nýir 2020 Mitsubishi Outlander Hybrid. Flottasta typa með öllum búnaði. Listaverð 6.690.000,- Okkar verð er 800.000 lægra eða 5.890.000,- Til sýnis á staðnum í nokkrum litum. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryðbletti á þökum og tek að mér ýmis smærri verk. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com ✝ ÖgmundurHeiðar Guð- mundsson fæddist í Reykjavík 9. júlí 1943. Hann lést á Landspítalanum Vífilsstöðum 31. júlí 2020. Foreldrar hans voru hjónin Guð- mundur Ögmunds- son bifreiðarstjóri frá Syðri-Reykjum í Biskupstungum, f. 16. ágúst 1902, d. 9. júní 1946, og Krist- ín Bjarnadóttir, fædd að Fjós- um í Svartárdal 3. febrúar 1917, d. 3. september 2002. Fósturfaðir Ögmundar var Björn Jónsson lögregluþjónn frá Haukagili í Hvítársíðu, f. 3. sept. 1915, d. 13. febrúar 1992. Alsystkini Ögmundar eru: 1) Unnur Hlín, f. 1940, d. 2013, 2) Bjarni Hrafn, f. 9. júlí 1943, d. 2019, 3) Guðmundur Hlyn- ur, f. 1945. Systkini Ögmund- ar sammæðra eru: 1) Jón Haukur, f. 1953, 2) Brynhildur Ríkey, f. 1954, d. 2001, 3) átti Ögmundur Önnu Kristínu, f. 1966, og Ævar, f. 1969. Syn- ir Önnu Kristínar og Lenny Erikson eru Daniel Ådel og Patrick Ådel. Eiginkona Pat- ricks er Kristin og eiga þau Charlie, Signe og Belle. Eig- inkona Ævars er Berglind Þóra Steinarsdóttir. Sonur þeirra er Hilmir Dan. Ögmundur ólst upp í Reykjavík, gekk í Barnaskóla Austurbæjar og járn- smíðadeild Gagnfræðaskóla verknáms. Að loknu skyldu- námi vann hann ýmis störf til sjós og lands, s.s. á síldarplani á Siglufirði, hvalveiðibátum og á skurðarplani í Hvalfirði. Hann lauk prófi frá Loft- skeytaskólanum 1965 og var loftskeytamaður á ýmsum tog- urum og hjá Landhelgisgæsl- unni. Eftir að hann hætti til sjós starfaði hann sem sendi- bílstjóri og frá árinu 2000 við öryggisvörslu á Landspít- alanum í Fossvogi. Ögmundur lét af störfum vegna heilsu- brests í byrjun árs 2005. Útför hans fer fram frá Seljakirkju í dag, 10. ágúst 2020, og hefst klukkan 13. Fjöldatakmarkanir gilda og því aðeins rúm fyrir boðsgesti, en streymt verður á síðu Seljakirkju: https://www.fa- cebook.com/seljakirkja/ Hjördís, f. 1957, d. 1995. Bróðir Ög- mundar samfeðra var: Auðunn Rafn, f. 1936, d. 2017. Eftirlifandi eig- inkona Ögmundar er Kristín Jóns- dóttir grunnskóla- kennari, fædd 16. desember 1950. Foreldrar hennar voru Jón Sig- urgeirsson og Hildur Eiðs- dóttir í Árteigi í Köldukinn. Ögmundur og Kristín gengu í hjónaband 28. ágúst 1971, byrjuðu búskap sinn í Fells- múla í Reykjavík en fluttu 1977 í Dalsel í Breiðholti og bjuggu þar síðan. Börn Ög- mundar og Kristínar eru: 1) Guðmundur, f. 1970. 2) Jón, f. 1974, sambýliskona hans er Snjólaug María Árnadóttir. Synir þeirra eru Eiður og Ró- bert. 3) Unnur, f. 1981. Eigin- maður hennar er Páll L. Sig- urjónsson. Börn Unnar og Sigurbjörns Viktorssonar eru Hrafnhildur og Tryggvi. Fyrir Pabbi er farinn í sumarland- ið. Síðustu misserin var hann inn og út af sjúkrastofnunum og samfleytt frá því í vor. Hann var orðinn þreyttur á því og sagðist vilja í sumarfrí; vildi komast norður í sveitasæluna í Köldukinn þar sem hann og mamma eyddu saman svo mörgum sumrum, ekki síst síð- ustu árin eftir að heilsu hans og hreyfigetu tók að hraka. Pabbi fæddist á Vífilsgötu í Reykjavík og fluttist ungur yfir á Bollagötu. Þriggja ára missti hann föður sinn og átti það ef- laust eftir að móta hann þótt hann hefði síðar eignast fóstur- föður sem við systkinin litum alltaf á sem afa okkar. Ungur fór pabbi í sveit í Austurhlíð í Blöndudal og var þar í mörg sumur í nágrenni við móðurafa sinn og ættingja í Bollastöðum í sömu sveit. Þar nærri er Rugludalur og grínaðist ég stundum við hann að við ættum að taka upp ættarnafnið Rugl- dal þar sem Blöndal væri upp- tekið. Það fannst pabba pínu fyndið enda deildum við sama húmor og oft stutt í fimmaura- brandarana. Pabba verður ekki minnst öðruvísi en að nefna Bjarna tví- burabróður hans. Þeir voru mjög samrýndir; báðir t.a.m. með ofuráhuga á fréttum og veðurfréttum. Þeir voru líka ákaflega nýtnir og óku lengi vel á sama ökuskírteininu. Gekk það bara nokkuð vel því yfir- leitt var annar hvor þeirra á sjó. Þeim var líka oft ruglað saman og það gerðist marg- sinnis að ég var einhvers staðar með pabba og einhver mistók hann fyrir Bjarna. Þá þótti mér pínlegt þegar pabbi tók bara samtalið og kvaddi svo viðkom- andi án þess að leiðrétta mis- skilninginn. Pabbi var mikið á sjó þegar ég var barn og það var alltaf spennandi þegar hann kom heim úr sölusiglingum frá Evr- ópu, hlaðinn leikföngum og góð- gæti. Skemmtilegast var þó þegar ég fékk 12 ára gamall að fara með í siglingu til Cuxhaven í Þýskalandi, en hann var þá loftskeytamaður á Snorra Sturlusyni. Sú ferð var mikið ævintýri fyrir ungan dreng og ekki allir sem áttu pabba sem gat boðið upp á þannig lífs- reynslu. Það var ekki síður spennandi þegar hann var hjá Landhelgisgæslunni; þá fékk ég eitt sinn að fara með í eftirlits- flug á Fokker-vél Gæslunnar og man ég vel eftir því þegar hún steypti sér niður að fiskveiði- bátunum, eflaust í því skyni að koma þeim að óvörum. Pabbi naut þess að ferðast um landið og á ég sælar æsku- minningar frá fjölmörgum tjaldútilegum í Landbrotshól- um, en hann var þá búinn að reikna út að þar væri oftast besta veðrið. Hann las mikið þegar hann var á sjó og var fjölfróður. Hann var líka bæði forvitinn og athugull. Færi maður í ferðalag leið ekki á löngu áður en hann hringdi til að taka stöðuna á hvar maður væri staddur og hvernig veðrið væri þar þá stundina – eða eig- inlega frekar til að fá staðfest- ingu á því að það væri eins og því hafði verið lýst í veðurfrétt- um. Hann hafði dálæti á ís- lenskum sönglögum, ekki síst lögum Sigfúsar Halldórssonar, og hafði gaman af því að horfa á hasarmyndir og vestra. Síðast en ekki síst var pabbi vanafast- ur og viðhafði oft miklar serem- óníur í kringum það sem hann var að fást við þá stundina. Hans er og verður sárt saknað. Guðmundur Ögmundsson. Ég trúi því varla að þú sért farinn og ég eigi aldrei eftir að sjá þig aftur. Það var alltaf svo gaman að fara með þér og ömmu í sveitina á sumrin. Þú sagðir alltaf við mig að ég væri svo ljúfur og góður drengur sem ég á eftir að sakna að heyra frá þér. Þegar við fórum í Þóroddsstað á sumrin var allt- af mjög skemmtilegt að fara í heita pottinn en þá sagðir þú alltaf: „Þið vitið að það er bann- að að pissa og prumpa í pott- inn.“ Hvíl í friði elsku afi. Eiður Jónsson. Ögmundur H. Guðmundsson Ég minnist vinar míns Einars Jóns- sonar, oftast kall- aður Einar Johnny. Við eigum það sam- eiginlegt að hafa alist upp með fótboltanum á Selfossi og var fé- lagið okkar UMF Selfoss okkur ákaflega kært. Leiðir okkar lágu lengi saman á vettvangi knattspyrnunnar og fyrst fyrir alvöru um haustið 1991 þegar staðan var erfið í fótboltanum á Selfossi og tókum við þá að okk- ur deildina ásamt góðu fólki og héldum henni gangandi til næsta aðalfundar í erfiðri stöðu. Þá reyndi mjög á vinnuframlag og góð úrræði og voru kvöldin ófá sem ég eyddi heima hjá Ein- ari og Elínu konu hans sem lést fyrir aldur fram árið 2014. Ein- ar var einn frumkvöðla hjá deildinni við gangstéttasteypu til fjáröflunar, hafði forgöngu að byggingu timburstúku árið 1993 á Selfossvelli, átti sæti í stjórn deildarinnar, var í sögu- og minjanefnd svo fá dæmi séu tekin. En umfram allt var Einar leikmaður í knattspyrnu og margir í stórfjölskyldunni þótt félagsmálin skipuðu stóran sess að loknum ferli. Einar var leikjahæsti leikmaður Selfoss með 386 leiki og inni á vellinum var Einar foringi, oftast fyrirliði í hjarta varnarinnar og gaf aldr- Einar Jónsson ✝ Einar Jónssonfæddist 28. jan- úar 1958. Hann lést 1. ágúst 2020. Einar var jarð- sunginn 7. ágúst 2020. ei neitt eftir. Þeir „Dýragarðsbræð- ur“ sem oft eru svo nefndir voru áber- andi í leikjum Sel- foss til áratuga ásamt mági þeirra, en Dýragarðsnafnið kom út frá því að Jón faðir þeirra var dýralæknir. Einar sneri sér svo að þjálfun og mennt- aði sig sem slíkur en Einar var að mínu mati djúpþenkjandi áhugamaður um knattspyrnu, horfði á leiki úti um allan heim, mest í sjónvarpi seinni árin og hafði gaman af að fara yfir og greina. Við Einar vorum ekki alltaf sammála og gátu þá klipp- ingarnar tekið á aðra klukku- stund og krufðum við málin til mergjar. Einar þjálfaði Viðar son minn til að mynda á mót- unarárunum og minnist Viðar oft hversu vel Einar kenndi þessa mögnuðu íþrótt knatt- spyrnu og var góður leiðbein- andi. Einar var bítill í sér og vildi helst hafa sítt að aftan en Elín hafði aðra skoðun vildi hafa hár- ið styttra, ég skynjaði fyrir löngu hversu mikið hann elskaði hana og því fékk hún oftast að ráða. Við göntuðumst oft með það eftir að hún lést hvora klippinguna við ættum að taka og niðurstaðan varð oftast henni í vil. Fráfall hennar var honum þungbært en í staðinn gat hann glaðst yfir glæsilegum barna- hópi og ört stækkandi hópi afa- barnanna. Einar missti síðan móður sína og barnabarn síð- asta árið og tókst svo á við þessu erfiðu veikindi. Það er mikið hægt að leggja á eina fjöl- skyldu en hún stendur þétt saman og samfélagið hér á Sel- fossi syrgir góðan dreng. Einar var ekki maður óraunhæfra væntinga sem oft kom fram í okkar samtölum um knatt- spyrnu þar sem vonir og vænt- ingar spila stóra rullu, hann vildi hafa báða fætur á jörðinni. Einar gat verið stríðinn mjög, en einkenni hans voru staðfesta, samviskusemi og traust. Einar sagði nú síðast er við hittumst að leiktíminn væri liðinn og uppbótartíminn langt kominn, og nú er hann liðinn. Ég vil þakka trausta vináttu, allt fram- lag hans til fótboltans og sam- félags okkar hér á Selfossi. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar allrar. Kjartan Björnsson. Við kveðjum nú, allt of snemma, einn okkar bestu sam- starfsmanna og félaga með söknuði og virðingu. Einar Jónsson, húsasmíða- meistari, var ráðinn til starfa hjá Húsasmiðjunni á Selfossi ár- ið 2003. Einar sinnti þar ráðgjöf og sölustörfum og var farsæll í störfum sínum. Hann eignaðist fjölda traustra viðskiptavina víða um land sem leituðu endur- tekið til Einars varðandi efnis- kaup og ráðgjöf við ný verkefni. Verslunin á Selfossi hefur um árabil átt góðri velgengni að fagna og tók Einar virkan þátt í að byggja hana upp og efla. Ár- ið 2015 tók Einar að sér að flytjast tímabundið í þrjá mán- uði á Akureyri og sinna fag- sölustörfum í Húsasmiðjuversl- uninni á Lónsbakka. Svo vinsæll varð Einar strax meðal við- skiptavina að hann ílengdist þar í rúm tvö ár. Árið 2017 flutti Einar aftur suður, bjó áfram á Selfossi en sinnti daglegum störfum sem viðskiptastjóri á fagsölusviði Húsasmiðjunnar í nýrri fagmannaverslun í Kjalar- vogi í Reykjavík. Einar var einstaklega góður vinnufélagi, traustur og fylginn sér. Hann hafði mikla þekkingu á byggingarvörum, eftirsóttur meðal viðskiptavina og kláraði verkefni sín hratt. Jafnframt leitaði samstarfsfólk oft til Ein- ars varðandi ráðleggingar við hin ýmsu úrlausnarefni. Einar var mikill keppnismaður og átti að baki farsælan feril sem af- reksíþróttamaður, þjálfari og síðar framámaður hjá UMF Sel- foss. Sú reynsla skilaði sér jafn- framt vel við dagleg störf og mótaði árangur hans hjá Húsa- smiðjunni. Einar var hress á góðum stundum og átti marga góða vini meðal samstarfsfólks. Þrátt fyrir að oft væri hart tek- ist á um árangur liða í enska boltanum eða innanlands var alltaf stutt í brosið hjá Einari. Það var mikið áfall þegar Einar greindist með alvarlegt mein síðasta haust. Einar tók þó baráttunni af miklu æðruleysi. Hann barðist hetjulega og bar sig vel fram á síðustu metrana. Einars verður sárt saknað. Genginn er einstaklega mikill Húsasmiðjumaður sem við kveðjum með söknuði og virð- ingu samtímis því að við minn- umst af hlýhug fjölda góðra stunda með Einari. Fyrir hönd Húsasmiðjunnar og samstarfsfólks sendum við innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og aðstandenda. Árni Stefánsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.