Morgunblaðið - 31.08.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2020
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Íbúar Hvíta-Rússlands mótmæltu í
gær, eins og undanfarna sunnu-
daga, endurkjöri Alexanders
Lúkasjenkós sem setið hefur í
embætti forseta landsins í 26 ár.
Aukin umsvif lögreglu settu svip
sinn á mótmælin í gær og voru í
það minnsta 140 handteknir, að því
er fréttastofa BBC greinir frá.
Einnig var nokkuð um handtökur
sem framkvæmdar voru af óein-
kennisklæddum lögreglumönnum.
Mótmælendur fylktu liði á sjálf-
stæðistorginu í Minsk með fána
stjórnarandstöðunnar í hendi og
hrópuðu slagorð á borð við
„hneyksli“ og „farðu“.
Að sögn fréttamanns BBC á
staðnum mynduðu sérsveitarmenn
línu á strætum þar sem mótmæl-
endur voru flestir og færðu sig
nær eftir því sem tíminn leið.
Lúkasjenkó fagnaði 66 ára af-
mæli í gær og hringdi Vladimír
Pútín Rússlandsforseti í hann af
því tilefni, óskaði honum heilla í
tilefni dagsins og bauð honum í
heimsókn til Moskvu. Ekki kenndi
sömu grasa meðal mótmælenda á
götum Minsk sem heyrðust hrópa:
„Til hamingju með daginn, rottan
þín“.
Heimsóknarboðið varpar sem
fyrr ljósi á stuðning rúsnseskra
stjórnvalda við Lúkasjenkó. Pútín
hefur enn fremur lýst því yfir að
rússnesk stjórnvöld séu tilbúin
með lögreglulið sem myndi styðja
við bakið á Lúkasjenkó ef nauðsyn
krefur.
Evrópusambandið hefur sagst
ætla að beita Hvíta-Rússland við-
skiptaþvingunum í ljósi ástandsins,
en Lúkasjenkó hefur til þessa
harðneitað að stíga til hliðar.
veronika@mbl.is
Áfram krafist afsagnar
Mótmælt í Minsk Pútín sendi Lúkasjenkó heillaóskir
AFP
Átök Tugþúsundir mótmæltu for-
setanum á strætum Minsk í gær.
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Óhætt er að segja að met hafi verið sett í hol-
lenska bænum Leerdam í síðustu viku þegar
málverki eftir einn af helstu meisturum hol-
lenskrar listasögu var stolið úr listasafni í
borginni. En þetta er í þriðja skipti á rúmum
þrjátíu árum sem sama verki er stolið úr
sama safni.
Verkið, sem nefnist Tveir hlæjandi drengir,
málaði hollenski málarinn Frans Hals, senni-
lega árið 1626 og sýnir tvo glaðhlakkalega
pilta með bjórkrús. Sérfræðingar hafa metið
það á 15 milljónir evra, jafnvirði 2,5 milljarða
króna.
Málverkinu var stolið úr Hofje van Me-
vrouw van Aerden safninu snemma á mið-
vikudagsmorgun, að sögn lögreglu í borginni.
Málverkinu var fyrst stolið úr safninu 1988 og
fannst þá eftir þrjú ár. Árið 2011 var verkinu
stolið aftur og kom í leitirnar hálfu ári síðar
þegar fjórir menn, sem lögregla handtók,
reyndu að selja það.
Í yfirlýsingu frá hollensku lögreglunni seg-
ir, að þjófavarnarkerfi safnsins hafi farið í
gang klukkan 3:30 aðfaranótt miðvikudags en
þegar lögreglumenn komu á staðinn gripu
þeir í tómt. Svo virðist sem þjófarnir hafi
brotist inn um bakdyr hússins, stolið málverk-
inu og forðað sér. Víðtæk rannsókn er hafin
og hafa sérfræðingar í rannsóknum á lista-
verkastuldi verið kallaðir til. Lögregla segir
að verið sé að fara yfir upptökur úr örygg-
ismyndavélum og ræða við hugsanleg vitni og
íbúa í bænum, sem er skammt frá Utrecht.
Veiðiferðin hafin
Hollenski lögreglumaðurinn Arthur Brand,
sem nefndur hefur verið Indiana Jones lista-
heimsins vegna þess að hann hefur sérhæft
sig í að hafa uppi á stolnum listaverkum,
skrifaði á twitter að „veiðiferðin sé hafin“ til
að hafa uppi á hinu mikilvæga og verðmæta
málverki eftir Frans Hals. Sagði Brand að
Tveir hlæjandi drengir væri opinberlega yf-
irlýstur hluti af menningararfi Hollendinga og
að ránið hefði verið framið á dánardægri
Hals, sem lést árið 1666.
Brand sagði við hollensku sjónvarpsstöðina
RTL að glæpamenn vissu að stóru listasöfnin
byggju yfir öruggum þjófavarnarkerfum en
héraðslistasöfn væru ekki eins vel varin. Þeir
sem stálu málverkinu úr safninu í Leerdam
hefðu sennilega komist að þeirri niðurstöðu
að auðvelt yrði að stela þessu málverki og
þeir gerðu sér vonir um að koma því í verð.
Frans Hals var samtímamaður þeirra Rem-
brandts og Vermeers á hinni svonefndu gull-
öld Hollendinga en á 17. öld var Holland um-
svifamikið nýlenduveldi og þar var
þungamiðja viðskipta og menningar.
Hals fæddist í Antwerpen árið 1582 en
flutti ungur til Haarlem. Hann byrjaði að
vinna við málverkaviðgerðir og varð síðan
mikilsvirtur málari og sérhæfði sig í portrett-
myndum. Þekktasta verk hans er Riddarinn
hlæjandi, sem hangir í Wallace Collection í
Lundúnum og Sígaunastúlkan, sem hangir í
Louvresafninu í París. Hals lést í Haarlem ár-
ið 1666.
Málverki stolið í þriðja skipti
Þjófar brutust inn í hollenskt listasafn og höfðu á brott með sér málverk metið á 2,5 milljarða
króna Verkinu var áður stolið 1988 og 2011 Annað listaverkaránið sem framið er í Hollandi í ár
AFP
Endurheimt málverk Bart Willemsen, lögreglustjóri í Alblasserwaard, með málverkið Tveir
hlæjandi drengir eftir að það fannst árið 2011 þegar því var stolið í annað skipti.
Meistari Málverk, sennilega sjálfsmynd, af
Frans Hals, sem var uppi á 17. öld, samtíðar-
maður Rembrandts og Vermeers.
Þjófar stálu málverki eftir Vincent van Gogh, sem metið er á rúmar 800 milljónir
króna úr öðru hollensku listasafni í mars sl. en því hafði verið lokað tímabundið
vegna kórónuveirufaraldursins. Myndir af verkinu með dagsettum forsíðum dag-
blaða fóru síðan í dreifingu í undirheimum en ekki er vitað að fram hafi komið
krafa um lausnargjald. Fram kemur á vefnum artnet.com, að sérfræðingar telji
ólíklegt að þjófar, sem steli þekktum verðmætum listaverkum, geri það samkvæmt
pöntun auðmanna sem ásælist verkin og vilji fá þau í einkasöfn sín. Líklegra sé, að
þjófarnir hafi fundið veilur í öryggisráðstöfunum safna þar sem verkin voru
geymd, nýti sér það og vonist til að listasöfnin eða tryggingafélög greiði lausn-
argjald. Hugsanlega reyni þjófarnir einnig að selja listaverkin á svörtum markaði.
Ólíklegt að stolið sé eftir pöntun
MÁLVERKI EFTIR VINCENT VAN GOGH STOLIÐ Í MARS
Stolið Málverkið Prestsetursgarðurinn í Nuenen að vori, eftir Vincent van Gogh, sem stolið var úr listasafni í mars.