Morgunblaðið - 31.08.2020, Side 24

Morgunblaðið - 31.08.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2020 AKRÝLSTEINN Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is • Viðhaldsfrítt efni með mikla endingu og endalausa möguleika í hönnun • Sérsmíðum eftir máli • Margrir litir í boði 60 ára Ragna Jóna er Hafnfirðingur og býr þar. Hún vinnur við símaafgreiðslu hjá Króki og er í Kvennakór Hafnarfjarðar. Maki: Jón Valdimar Gunnbjörnsson, f. 1957, sundlaugarvörður. Börn: Guðbjörg Helga, f. 1980, Óskar Þór, f. 1983, og Nanna Rut, f. 1984. Stjúpsonur er Hlynur Þorri, f. 1980. Barnabörnin eru orðin 6. Foreldrar: Helgi Jónsson, f. 1934, fyrr- verandi sjómaður, og Nanna Þórðar- dóttir, f. 1941, húsmóðir. Þau eru búsett í Hafnarfirði. Ragna Jóna Helgadóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Að eltast við hamingjuna er örugg- asta aðferðin til þess að fæla hana í burtu. Mundu samt að dramb er falli næst og að ekki eru allir viðhlæjendur vinir. 20. apríl - 20. maí  Naut Reyndu að skoða hugmyndir ann- arra með opnum huga og kannaðu vand- lega, hvort þú getir ekki eitthvað af þeim lært. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það þýðir ekkert annað en sækja málin af festu og láta hvergi deigan síga þótt eitthvað blási í móti. Búðu þig undir að svarið geti komið á óvart. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ættir að nota daginn til að taka skref í ástarmálunum. En sérhlífni er líka mjög slæm svo þú þarft að þræða hinn gullna meðalveg. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er ekki alltaf nóg að tjá tilfinn- ingarnar í verki. Aðalmálið er að þú sért sáttur við sjálfan þig. Fylgdu gullnu leið- inni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Fólk nálgast þig og biður þig um að taka að þér flókin verkefni. Reyndu ekki að komast hjá því að taka til hendinni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú þarft að rannsaka hlutina betur áður en þú grípur til aðgerða því flas er ekki til fagnaðar. Láttu málið afskiptalaust því það leysist af sjálfu sér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Alltaf annað slagið skjóta upp kollinum mál úr fortíðinni sem þarf að tak- ast á við. Oft virkar það betur að vera opinskár og láta tilfinningar sínar í ljós. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú og elskhugi þinn sjáið ekki alltaf hlutina í réttu ljósi. Stundum skiptir það ekki öllu máli að hafa rétt fyrir sér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hafirðu áhyggjur af fjármál- unum skaltu leita til ráðgjafa. Reyndu að sýna þolinmæði. Aðalatriðið er að segja ekkert vanhugsað sem þú gætir séð eftir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Vinnan göfgar manninn, en það er fleira sem gefur lífinu gildi. Vinnan dregur að fjölda fólks sem hangir á hurð- inni hjá þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Aukinn dugnaður þinn gæti ógnað núverandi samböndum. Samstarfsfólk er kannski gagnrýnið eða fjarlægt. En ekki hafa neinar áhyggjur. fræðingafélags Íslands um árabil, þar af sem stjórnarformaður um eins árs skeið, í stjórn Samkeppniseftirlitsins, þar af sem stjórnarformaður um eins ár skeið, áfrýjunarnefnd neytenda- mála, prófnefnd fasteigna- og skipa- sala og prófnefnd verðbréfaviðskipta. Nú um stundir er Eyvindur for- maður ráðgjafarnefndar fjármálaeft- irlits Seðlabankans um hæfi stjórn- armanna fjármálafyrirtækja, vá- tryggingafélaga og lífeyrissjóða, formaður viðurlaganefndar Kaup- hallarinnar og formaður fastanefndar dómsmálaráðuneytis á sviði happ- drættismála. Einnig hefur Eyvindur veitt stjórnvöldum aðstoð við undir- búning lagasetningar á ýmsum svið- um fjármunaréttar. „Ég hef verið töluvert í opinberum trúnaðar- störfum og það fer vel með fræði- mennskunni og heldur manni vel inni í praktískum málum. Eins og með ráðgjafanefnd Seðlabankans um hæfi stjórnarmanna sem er inni á mínu sviði.“ Eyvindur hefur skrifað fjölda fræðigreina og haldið marga fyrir- lestra á sviði lögfræði á innlendum og skylduna, en krakkarnir stunduðu nám í sænskum og þýskum skóla.“ Eyvindur hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum innan HÍ, m.a. verið forseti Lagadeildar, setið í stjórn Lagastofnunar, Endurmenntunar HÍ og verið stjórnarformaður Happ- drættis Háskóla Íslands frá 2007. Þá hefur hann gegnt fjölmörgum stjórn- ar- og trúnaðarstörfum á umliðnum árum, m.a. var hann í stjórn Lög- E yvindur Grétar Gunn- arsson fæddist í Reykjavík 31. ágúst 1970 og ólst upp í Foss- voginum. „Þar var mjög gott að alast upp enda ég bý enn í Fossvoginum. Ég fór síðan yfirleitt til Vestmannaeyja á sumrin til ömmu.“ Eyvindur gekk í Fossvogsskóla og Réttarholtsskóla. Hann varð stúdent frá MR 1990 en að því búnu var hann við þýskunám í Albert-Ludwigs- Universität í Freiburg veturinn 1990- 1991. Hann útskrifaðist með embætt- ispróf í lögfræði frá Lagadeild Há- skóla Íslands 1996 og meistarapróf í lögum (LL.M.) frá Duke University School of Law í Bandaríkjunum 1998. „Ég lagði áherslu á fjármunarétt og fjármálamarkaði í framhaldsnám- inu.“ Eyvindur lauk réttindum til málflutnings fyrir héraði 1997 og Hæstarétti 2006. Eyvindur starfaði í umhverfis- ráðuneytinu 1996-1997, sem aðstoð- armaður dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur 1998-2000 og í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu um nokk- urra mánaða skeið árið 2000. Á ár- unum 2000-2006 var hann sjálfstætt starfandi lögmaður. Eyvindur var á árunum 2000-2006 stundakennari og síðar lektor í hlutastarfi við Laga- deild HÍ en árið 2007 hóf hann störf við deildina sem lektor í fullu starfi, síðar sem dósent og prófessor frá 2013. „Þetta hafa allt verið skemmti- leg störf sem ég hef unnið við, lög- mennskan er skemmtileg og svo hef ég dæmt í nokkrum málum í hæsta- rétti. En þegar það gafst tækifæri að kenna uppi í háskóla þá var það ekki spurning í mínum huga að fara út í fræðimennskuna.“ Helstu fög Ey- vindar eru fjármálamarkaðir, kröfu- réttur og félagaréttur. Tvívegis hefur Eyvindur dvalið er- lendis með fjölskyldunni sem gesta- fræðimaður, fyrst 2009-2010 við Stokkhólmsháskóla og svo 2016-2017 við Westfälische Wilhelms- Universität í Münster í Þýskalandi. „Þetta er eitt af því mörgu sem er gott fræðimannastörfin í háskóla. Þarna gefast tækifæri til að prófa eitthvað nýtt og sömuleiðis fyrir fjöl- erlendum vettvangi. Þá er hann höf- undur sex fræðirita, ýmist einn eða ásamt öðrum (Kröfuréttur I, II og III ásamt Þorgeiri Örlygssyni og Bene- dikt Bogasyni, Þinglýsingalög – skýr- ingarrit (ásamt Þorgeiri Örlygssyni), Hrunréttur ásamt Ásu Ólafsdóttur og Stefáni Má Stefánssyni og Dómar í þinglýsingarmálum 1920-2010. „Við gáfum bókinni þetta nafn, Hrun- réttur, vegna þessa að hrunið spann- aði svo stórt svið, þarna er fjármuna- rétturinn en líka réttarfar, gjald- þrotaskipti og sakamál. Þarna vorum við þrjú með ólíka reynslu og þekk- ingu og unnum efnið saman í bók sem hefði verið erfitt fyrir einn sérfræð- ing að taka saman.“ Helstu áhugamál Eyvindar eru íþróttaiðkun, lyftingar, skokk, knatt- spyrna, ferðalög, þjóðfélagsmál. „Ég æfi mest kraftlyfingar, en skokka alltaf líka með. Ætli lyftingarnar séu ekki að meðaltali þrisvar í viku og skokkið einu sinni í viku. Við fjöl- skyldan vorum dugleg að ferðast inn- anlands í sumar, tókum klassískan hring í kringum landið en skoðuðum líka fleiri skemmtilega staði.“ Eyvindur G. Gunnarsson, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands – 50 ára Fjölskyldan Eyvindur, Elísa Aðalheiður, Elías Muni og Elfa Ýr heima í Fossvoginum. Ákvað að velja fræðimennskuna Hjónin Elfa Ýr og Eyvindur. 30 ára Eyjólfur er Reykvíkingur og býr þar. Hann er byggingarfræðingur að mennt og er verkefnastjóri hjá Verksýn ehf. Maki: Jóna Guðrún Kristinsdóttir, 1991, nemi í landslags- hönnun. Synir: Kristinn Nói, f. 2016, og Jón Gunnar, f. 2019. Foreldrar: Guðrún Hermannsdóttir, f. 1965, félagsráðgjafi, og Jón Eyjólfs- son, f. 1964, veitingamaður og húsa- smíðameistari. Þau eru búsett í Mos- fellsbæ. Eyjólfur Edvard Jónsson Til hamingju með daginn Reykjavík Jón Gunnar Eyjólfsson fæddist 23. ágúst 2019 á Land- spítalanum í Reykjavík. Hann vó 15 merkur og var 51 cm á lengd. Foreldrar hans eru Eyjólfur Edvard Jónsson og Jóna Guðrún Kristinsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.