Bæjarins besta - 06.07.1988, Page 2
2
BÆJARINS BESTA
Landslið íslands
Westerlund t.v.
skíðagöngu, ásamt þjálfara sínum, Mats
Dagana 7.-12. júlí ætlar lands-
lið íslands í skíðagöngu að efna
til hjólaskíðaboðgöngu á Sel-
tjarnarnesi til fjáröflunar og
Hornstrandir:
Söguleg hestaferö
hefst í dag
í morgun lagði Fagranesið frá
bryggju með 15-20 maniia hóp
hestamanna og um 40 hesta um
borð. Stefnan var tekin á Hest-
eyri þar sem hópurinn tók land.
Þarna er um nokkuð merki-
lega ferð að ræða. í ferðaáætlun
er gert ráð fyrir því að hestarnir
verði látnir synda í land á Hest-
eyri. Síðan verður riðið til Aðal-
víkur, þaðan til Fljótavíkur, og
áfram til Hornvíkur um Hlöðu-
vík.
Frá Hornvík verður riðið til
Bolungarvíkur á ströndum, það-
an í Hrafnsfjörð, yfir Skorar-
heiði í Furufjörð, og til Reykja-
fjarðar. Frá Reykjafirði verður
haldið yfir Drangajökul að Bæj-
um á Snæfjallaströnd, þar sem
Fagranesið tekur við hópnum að
nýju og ferjar hann til ísafjarð-
ar. Ef ekki viðrar á jökulinn
verður farið um Ófeigsfjarðar-
heiði til Melgraseyrar, í stað
Bæja. Áætlað er að ferðin taki
viku til tíu daga.
Fararstjóri í ferðinni verður
Gísli Hjartarson.
Ferðin verður kvikmynduð í
heild fyrir Sjónvarpið af Jóni
Björgvinssyni. Jón kvikmyndaði
ferð Hafþórs Ferdinandssonar,
Hveravallaskrepps, s.l. haust.
Enn fremur tók hann Vatnajök-
ulsmyndina sem sýnd var í Sjón-
varpinu á jóladag.
Viðfangsefni Jóns í þessari
ferð er íslenski hesturinn og ó-
snortið náttúrufar Hornstranda,
ásamt ferðalaginu sem slíku.
BB -aö sjál tsöizön!
Þessi leið hefur aldrei verið
riðin áður svo sögur fari af. Tel-
ur Gísli Hjartarson allar þessar
leiðir vel færar hestum. Nánar
verður sagt frá ferð þessari í
næsta tölublaði BB.
kynningar fyrir landsliðið.
Ætlunin er að ganga samtals
1.500 km leið á innan við 5 sólar-
hringum. Ekki hefur fengist
staðfest að slík vegalengd hafi
verið gengin áður en ísfirskir
göngumenn gengu 1.000 km árið
1983 og var þá talið heimsmet.
Þetta hefur þó ekki fengist stað-
fest.
Gangan hefst kl. 15:00 á
morgun, fimmtudag, og fer
þannig fram að hver maður
gengur tvo 8 km hringi í senn og
svo tekur næsti maður við uns
takmarkinu er náð.
Til fjáröflunar verður áheitum
safnað hjá einstaklingum og fyr-
irtækjum í heimahéruðum lands-
liðsmanna, á Akureyri, Siglu-
firði, Ólafsfirði, og ísafirði.
Allir eru hvattir til að sýna
þesu framtaki velvilja og heita á
þetta unga og efnilega lið.
ísafjörður, ráðstefnur:
Víkingalæknar
þinga á ísafirði
Fyrir síðustu helgi, var staddur
hér á ísafirði, hópur skurðlækna
frá Norður-Skotlandi og eyjunum
fyrir utan Skotland, sem allir eiga
það sameiginlegt, að vinna einir á
frekar litlum sjúkrahúsum. Þeir
hafa stofnað með sér klúbb, eða
félag, sem þeir kalla „The Viking
Surgical Club“.
Þetta er í fimmtánda sinn sem
þessi klúbbur þingar. Fulltrúi
hans á ísafirði er Einar Hjalta-
son, fráfarandi yfirlæknir.
Á ráðstefnunni nú, var margt
gert bæði sér til gagns og gam-
ans. Aðalfyrirlestur þingsins
flutti Magnús Magnússon, sjón-
varpsmaðurinn kunni hjá BBC í
Bretlandi. Hann fjallaði þar um
landnám á íslandi, og þekkingu
íslendinga á fortíð sinni miðað
við aðrar þjóðir.
Meðfylgjandi mynd var tekin á
föstudagsmorgun, eftir skoðun-
arferð sem farin var um bæði nýja
og gamla sjúkrahúsið.
Víkingalæknarnir sem þinguðu hér á ísafirði fyrir síðustu helgi.
Fyrir miðju er Einar Hjaltason, með tákn klúbbsins, víkinga-
hjálm.
Landslið íslands í skíöagöngu:
Heimsmet í
hjólaskíðagöngu?
- Isfírðingar eiga fyrra metið