Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.07.1988, Blaðsíða 7

Bæjarins besta - 06.07.1988, Blaðsíða 7
BÆJARINS BESTA 7 Suðureyri: Ný flotbryggja - óyíst með framtíð trilluútgerðar Rluti fjárhæðar sem Súgfirð- ingar fengu úthlutaða á fjárlög- um ríkisins þetta árið, fór í að kaupa flotbryggju fyrir smábáta staðarins. Bryggjan er tuttugu metrar með viðlegukanti, og kemur frá fyrirtækinu Króla í Garðabæ. Trilluútgerð hefur farið vax- andi undanfarin ár, og smábátar eru í dag í kringum tuttugu. í fyrra stofnuðu hagsmunaað- ilar trilluútgerðar, með sér félag sem nefnist Kögurás, og byggðu sér sitt eigið hús. Þar er tekið við öllum fiski. Peir verka í salt, ferskfisk og lausfrysta þar að auki. Að sögn Ragnars Jörundsson- ar, sveitarstjóra Suðureyrar- hrepps, er næsta óvíst með fram- tíð trilluútgerðarinnar á Suðureyri. „Maður veit ekki hvað gerist núna. Það virðist vera stefna ráðamanna í sjávar- útvegi að drepa þessa trillukarla niður. Á meðan það er ráðherra- stopp og landlega hjá þeim, þá sjáum við fleiri tugi togara bara hérna rétt fyrir utan, elta fiskinn uppi og moka honum upp. Það er ekkert eftir. Þeir eru að taka lifibrauðið af trillukörlunum.” Knattspyrna, 4. deild karla BÍ 88 efst í sínum riðli - sigraði Geislann frá Hólmavík 5-0 - leikur yið Höfrung annað kvöld Síðastliðinn laugardag kepptu í fjórðu deild karla á ísafirði lið BI 88 og Geislans frá Hólmavík. Leikið var á grasvellinum á Tor- fnesi í blíðskaparveðri. Það er skemmst frá því að segja að BÍ 88 sigraði leikinn með fimm mörk- um gegn engu. Reyndar skoruðu BÍ-strákarnir sex mörk en eitt þeirra var dæmt af. Þeir sem skoruðu mörkin voru: Stefán Tryggvason eitt, Ólafur Pedersen tvö, Haukur Benediktsson eitt, og Guðmund- ur Gíslason eitt. En glæsimark Guðmundar Óskarssonar var dæmt af. Lið BÍ 88 er nú efst í sínum riðli með níu stig eftir þrjá leiki, hefur ekki tapað leik. Állar líkur eru á því að liðið komist í úrslit. Næsti leikur liðsins er á morgun, fimmtudag, við Höfr- ung frá Þingeyri. Leikið verður á grasvellinum á Torfnesi og hefst leikurinn klukkan 20:00. Móða á milli glerja? Nú þarf ekki að skipta um gler þótt bleyta hafi komist á milli glerja. ★ ★ ★ Við erum með sérhæfð tæki til borunar, hreinsunar og loft- ræstingar, vegna móðu milli glerja. ★ ★ ★ Boruð eru tvö lítil göt í horn glersins að utanverðu og þvegið á milli glerja. Að því loknu eru sérstakir loftræstitappar settir í götin svo glerið verði hreint og án móðu. ★ ★ ★ Aðferðin er varanleg, viðurkennd og ódýr. Hefur verið notuð hér á landi í 12 ár og gefið fullkominn árangur. ★ ★ ★ Verðið er aðeins lítill hluti nýrrar rúðu og ísetningar. ★ ★ ★ Látið fjarlægja móðuna (bleytuna) sem fyrst eftir að hún hefur myndast. ★ ★ ★ MJÖG GÓÐ GREIÐSLUKJÖR. PANTIÐ SEM FYRST. 91 78822 VERKTAK % Ss 94- 3368 Heyrnar- og talmeinastöð íslands Landsferðir Móttaka verður á vegum Heyrnar- og talmeinastöðvar íslands á heilsugæslu- stöðinni á ísafirði, 18. og 19. júlí. Þar fer fram: Greining heyrnarmeina. Úthlutun heyrnartækja. Greining talmeina. Sama dag að lokinni móttöku HTÍ verður Friðrik Páll Jónsson, háls-, nef- og eyrnalæknir með almenna lækningamóttöku fyrir sjúklinga með háls-, nef- og eyrnasjúkdóma. Tímapantanir á heilsugæslustöðinni. Sími4500.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.