Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.07.1988, Page 13

Bæjarins besta - 06.07.1988, Page 13
BÆJARINS BESTA 13 og fá sér frískt loft. Pá koma til okkar tveir tollverðir og spyrja hvaðan við séum. Við segjumst vera frá íslandi, en þá kom í ljós að annar þeirra kunni að segja góðan daginn á sjö eða átta tungumálum, en ekki íslensku. Við fórum að kenna þeim það, og spjalla svona vítt og breitt saman. Þetta endaði þannig, að þeir voru komnir inn í rútu til okkar að spila vist. Þegar mál bílstjórans var komið á hreint, kvöddum við hina nýju vini okk- ar, tollverðina, með því að syngja fyrir þá lag, sem Bea (Beata) hafði kennt okkur á ungversku. Til að byrja með stóðu þeir og hlustuðu, en svo allt í einu tóku þeir við sér. Þeir þekktu lagið. Þá fóru þeir að syngja með og dansa. Þeir sögð- ust aldrei hafa fengið eins skemmtilegt fólk að landamær- unum. Margrét Bóasdóttir sagðist aldrei hafa upplifað aðrar eins móttökur, þegar hún hefur farið yfir til austantjaldlands. Það er venjulega svo stíft og formfast. Frá landamærunum fórum við í gegnum Sopron og til Györ. Þar kom pabbi Beötu, Ete Joó, til okkar. Hann er mikils virtur kórstjóri í Ungverjalandi. Það urðu svo sannarlega fagn- aðarfundir. Beata tók tilhlaup og bókstaflega kastaði sér á hann. Hún æpti af gleði og klappaði honum og kyssti. Þar hittum við líka í fyrsta skipti aðalmanninn okkar í ferð- inni, Elis, eða Ella, eins og við kölluðum hann alltaf. Hann var leiðsögumaður okkar, kynnti okkur á tónleikum ofl. Hann var líka með fjárráðin, og sá um að borga allsstaðar þar sem við fór- um. Við gistum í Györ um nóttina, en leggjum af stað snemma morguninn eftir til Szeged, heimabæjar Beu, með tvo nýja, ungverska bílstjóra. Þeir voru alltaf kallaðir EIIi og Geiri eða Geiri og Lamba-Geiri. Þeir voru með okkur til Búdapest. Vildu reyndar vera lengur, en fengu það ekki. Á heimavist í Szeged var fyrst farið með okkur á heimavist þar sem við áttum að búa. Þar áttu allir að gista fjórir saman í fjögurra manna herbergjum. Þau báru þess augljóslega merki, að þarna byggju að öllu jöfnu mun yngra fólk en við. Á öllum veggjum voru veggmyndir af poppstjörn- um og bílum. Klósettin voru opin í annan endan, eða þannig, ekkert hægt að læsa. f sturtunum voru stelp- ur til vinstri og strákar til hægri, og til að kerfið klikkaði ekki, varð maður að syngja eða tala stöðugt við sjálfan sig, á meðan maður var þarna inni. Fyrstu dagana þar skoðuðum við okkur um, og fórum í nokkra stutta leiðangra út úr bænum. Meðal annars fórum við að skoða hrossaræktarstöð, sem hefur haldið sér nokkurn veginn óbreytt í nokkrar aldir. Þar fór líka hluti af hópnum á hestbak í fyrsta skipti. Gæðingarnir sem farið var á bak, voru allt að sex milljón króna virði. Góðir dómar í Szeged hófst sjálf tónleika- ferðin. Daginn eftir að við kom- um héldum við tónleika í sjö- hundruð manna tónleikasal, ásamt stúlknakór sem pabbi Beötu stjórnar. Salurinn var nánast fullur af fólki. Daginn eftir tónleikana feng- um við mjög góða dóma í ung- verskum blöðum. Bæði við og þær Anna Áslaug og Margrét. Þann sextánda, var ekið til Búdapest í rútu. í Szeged og Búdapest vorum við alltaf vakin klukkan fimm um morguninn af hana sem gól þessi lifandi ósköp. Það var mikið gert grín að þessu tvennu. Meðal anars var saminn texti við lagið ,,Óbyggðaferð”. Hluti hans hljóðaði þannig; Haninn galar haugi á, Kakkalakka Karen sá, klósettpappír enginn á, og enn erum við í rútu. í Búdapest gistum við allan tímann á hóteli. 17. júní fórum við á nokkur söfn og skoðuðum meðal annars þinghúsið, sem er mjög stórt og mikið. Þar er allt úr gulli, marmara og kristal, og útflúrið og skrautið hreint ótrú- legt. Meðal annars eru styttur af öllum helstu konungum og ráða- mönnum Ungverjalands, í gegn- um tíðina. Seinni part dagsins héldum við hljómleika í stórri, kaþólskri kirkju. Hljómburður- inn var ofsalega mikiil og góður. Þegar við vorum búin, var okkur boðið á prestsetrið. Þar gaf hann okkur öllum hvítvín, og litlar sætar kerlingar komu með kringlur og saltkex. Um kvöldið fórum við út að borða, og sáum danssýningu. Það var systir Beötu og dansfé- iagi hennar sem sýndu. Þann átjánda, var farið í leik- hús. Við sáum söngleikinn Doktor Hertz. Hann fór að sjálf- sögðu allur fram á ungversku, en það var búið að rekja fyrir okkur söguþráðinn áður, þannig að það var ekkert vandamál að ná því helsta. Gúbbífiskar eða halakörtur? Tuttugasta júní, fórum við út að Balaton vatni, sem er stærsta jjMMJ wmmMmw %/y n sa íMÉmj Þessi auglýsing var hengd upp fyrir tónleika kórsins 22. júní. Eins og sést hefur verið brotið upp á eitt hornið. Það var búið að aug- lýsa frítt inn á tónleikana, en þar sem það var selt inn í kirkjuna, var brugðið á þetta ráð. Öryggisvörur Hjálmar — Skór — Björgunarvörur Vesti — Bjarghringir Net — Stigar — O.fl. m SKIPASMÍÐASTOÐ MARSELLÍUSAR hf. LAGERS3790

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.