Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.03.1989, Side 2

Bæjarins besta - 08.03.1989, Side 2
2 BÆJARINS BESTA Snjóhengjurnar blasa við augum og talið er tímaspursmál hvenær þær falla niður. Suðureyri: Snjóflóðahætta á Spillisvegi Almannávarnanefnd Suður- eyrar tilkynnti á fimmtudag í síð- ustu viku um snjóflóðahættu fyr- ir ofan Spillisveg sem Iiggur frá þorpinu út í Staðardal. I fjallinu Spilli hafa myndast nokkuð stór- ar hengjur á fjallsbrúnum og í hlíðinni. Talin er hætta á að þær falli niður ef hlýnar og um tíma var rætt um að fá varðskip til þess að skjóta í hengjurnar. Frá því var þó horfið. Á laugardag fór fram jarðar- för í kirkjugarðinum í Staðardal og sá almannavarnanefnd um að stýra bílaumferðinni þannig að bil væri á milli bíla og vaktmaður fylgdist með snjóhengjunum. „Það var nokkuð kalt þannig að hættan var lítil en við gættum fyllstu varúðar“ sagði Ragnar Jörundsson sveitarstjóri og for- maður almannavarnanefndar á Suðureyri í samtali við BB. Spillisvegur er nú ófær og Botnsheiði varð ófær um miðjan laugardag. Aðkomufólk sem kom til jarðarfararinnar á laug- ardag lokaðist því inni og varð að fara með snjóbíl til baka. í gær var snjóbíll sendur yfir heið- ina eftir mjólk fyrir þorpið. Varhugavert er að fara um Spillisveg þessa dagana eins og sést á þessari mynd. Án titils eftir Hrein Friðfinnsson. Listir: Hreinn sýnir í Slunkaríki - Galleríið á 4. ára afmæli Hreinn Friðfinnsson opnar sýningu í Slunkaríki laugardag- inn 11. mars nk. Hreinn er fædd- ur í Dölum, var einn af stofnend- um gallerí SÚM í Reykjavík á sín- um tíma, en hefur búið í Amster- dam um árabil. Hann er yfirlætis- laus listamaður, Ijóðrænn einfari í list sinni. Hreinn er tvímælalaust einn af okkar bestu og virtustu núlifandi listamönnum, verk hans eru tíð- um valin á sýningar erlendis þar sem kynna á norður-evrópska list og söfn víða um Evrópu hafa fest kaup á verkum hans. Á sýningunni í Slunkaríki verða nokkur verk frá síðustu árum. Hér er á ferðinni merkur listviðburður og aðstandendur sýningarinnar vonast til að Vest- firðingar og aðrir sem tök hafa á sjái sér fært að koma og skoða sýninguna sem er opin fimmtu- daga - sunnudaga kl. 16.00-18.00 og stendur til sunnudagsins 2. apríl. Heimsókn Hreins er einkar ánægjuleg ekki síst vegna þess að Slunkaríki á fjögurra ára afmæli um þessar mundir. Slunkaríki er eitt lífseigasta gallerí á landinu og fyrir því hefur skapast ákveð- in hefð í ísfirsku bæjarlífi. Haldnar eru um 15 sýningar á ári sem sóttar eru af 150-200 manns að jafnaði. Öllum velunnurum gallerísins er af þessu tilefni boð- ið að koma á opnun sýningar Hreins Friðfinnssonar á iaugar- daginn kl. 15.00 og þiggja þar veitingar. Frétta tilkynning

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.