Bæjarins besta - 08.03.1989, Page 3
BÆJARINS BESTA
3
Strandferðaskipið Hekla dró Kolbrúnu ÍS upp á fimmtudag.
„Fagur fiskur í snjó“ gæti þessi mynd heitið.
Fiskflutningar:
Rann út af
Kolbrún ÍS:
Skrokkurinn
lítið skenundur
Kolbrún ÍS, 11 tonna rækju-
bátur, sem sökk fyrir utan Norð-
urtangann á ísafirði þann 14.
febrúar sl. var dregin upp á
fimmtudag af strandferðaskip-
inu Heklu. Hafsteinn Ingólfsson
kafari fór niður að bátnum og
festi í hann stroffur. f byrjun var
fest í spilið en það fór úr þegar
híft var. Önnur tilraun gekk bet-
ur og þá var báturinn hífður upp í
sjávarmálið og dælt úr honum.
Að sögn Hinriks Matthíasson-
ar hjá Samábyrgð, sem endur-
tryggir bátinn fyrir Vélbátaá-
byrgðarfélag ísfirðinga og ber
85% af tjóninu, virðist skrokk-
urinn á Kolbrúnu tiltölulega lítið
skemmdur. Hins vegar er allt
rafmagn og öll tæki ónýt og
væntanlega vélin líka.
Farið var með Kolbrúnu í
höfn á fimmtudag til þess að taka
úr henni vél, tæki og annað en
óákveðið er hvað verður síðan
gert við bátinn.
Uppsalir:
Tilboð berast
Sjálfstæðisfélögin á Vestfjörð-
um skoða nú tvö leigutilboð sem
borist hafa í eignarhlut félag-
anna í skemmtistaðnum Uppsal-
ir á ísafirði. Eitt kauptilboð
barst fyrir skömmu en því var
hafnað þar sem það þótti óað-
gengilegt.
Síðan hafa nokkrir aðilar gert
fyrirspurnir og nú hafa tveir
þeirra lagt inn formleg tilboð
sem svarað verður á næstu dög-
um. Þar sem BG-flokkurinn á
stóran hluta af skemmtistaðnum
°g ' þeim hluta er eldhúsið en í
hluta Sjálfstæðisfélaganna er
snyrtiaðstaðan eru málin nokk-
uð flókin. Sá sem leigir af Sjálf-
stæðisfélögunum verður því lík-
lega einnig að gera samning við
BG-flokkinn um leigu eða
breyta húsnæðinu þannig að það
samrýmist reglum um vínveit-
ingastaði.
Bíllinn á meðfylgjandi mynd
var á leið frá Súðavík til Isa-
fjarðar með fisk fyrir Hraðfrysti-
húsið Norðurtanga þegar hann
rann út af á lélegum vegkantin-
um og helmingurinn af fiskköss-
unum rann af bílnum og í snjó-
inn.
En snjórinn var hreinn og því
ekki um annað að ræða en tína
allt saman upp aftur þó það tæki
tíma. Lyftari kom frá Súðavík og
aðstoðaði við verkið svo allt fór
betur en á horfðist í fyrstu en bíl-
stjórinn hefur eflaust ekki hugs-
að neitt sérstaklega hlýlega til
snjómokstursmanna Vegagerð-
arinnar.
BÆJARFÓGETINN Á ÍSAFIRÐI
SÝSLUMAÐURINN í ÍSAFJARÐARSÝSLU
Til sölu
Eftirtaldar eignir dánarbús Ástu Eggerts-
dóttur Fjeldsted, eru til sölu:
1. Fasteignin Hafnarstræti 11, ísafirði.
2. Lóðir við Seljalandsveg nr. 60 og 60a, ísa-
firði.
3. Hlutabréf í Vélsmiðjunni Þór h.f., ísafirði,
samtals að nafnverði kr. 417.500.-
Óskað er eftir tilboðum í eignirnar og skal
tilboðunum skilað til skiptaráðandans á ísa-
firði, Hafnarstræti 1, ísafirði, fyrir 21. mars
1989. Áskilinn er réttur til að taka hvaða til-
boði sem er eða hafna þeim öllum.
Allar nánari upplýsingar gefur undirritaður
á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti 1
og í síma 94-3733 frá kl. 10.00 til 15.00.
Skiptaráðandinn á ísafirði
5. mars 1989
Björn Jóhannesson, fulltrúi