Bæjarins besta - 08.03.1989, Blaðsíða 4
BÆJARINS BESTA
BÆJARINS BESTA, óháö vikublað á Vestfjörðum.
Útgefandi: H-PRENT sf, Suðurtanga 2, 400 ísa-
fjörður, S 4560. Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson.
Blaðamaður: Vilborg Davíðsdóttir. Útgáfudagur:
Miðvikudagur. Ritstjórnarskrifstofa og aug-
lýsingamóttaka að Suðurtanga 2, S 4570 og er
svarað allan sólarhringinn. Setning, umbrot og
prentun: H-prent sf, Suðurtanga 2,400 ísafjörður.
RITSTJÓRN
Burt með
osomann
Þau eiga við um marga þætti nútímaþjóðfélagsins hin fleygu
orð Vilmundar: Löglegt en siðlaust. Pao má vera að það sé Iög-
legt að geta byrjað brosandi með nýtt „há-eff“ eftir að hið gamla
hafði glutrað miður hundruðum milljóna frá umbjóðendum
sínum, sem eftir sitja með sárt enni, en það er siðlaust. Það er ef
til vill löglegt að „eiga réttinn" í umferðinni, en vænlegt getur það
ekki ta.list. Það máske löglegt að biðja starfsmenn fyrirtækis að
halda áfram vinnu, þótt vitað sé að fyrirtækið geti ekki greitt
launin og það fari á hausinn innan tíðar, þar sem ríkisvaldið komi
til með að greiða þau samkvæmt lögum, þótt síðar verði, en það
ersiðlaust með öllu.
Fjármálaráðherra boðar hertar aðgerðir gegn fyrirtækjum,
sem ekki standa skil á söluskatti og staðgreiðslu gjalda. Og þarna
er ekki verið að tala um smáaura til píanókaupa heldur milljarða.
Hver sem afstaða manna til skattheimtu hverrar ríkisstjórnar er,
hljóta menn að vera sammála um, að réttlátt skattakerfi og skil á
sköttum skipti höfuðmáli. Að margra dómi er langt í land með
réttlætið og ýmsir þeirra draga þá ályktun af reynslunni, að viljinn
í þá veru sé takmarkaður þrátt fyrir fögur orð og fyrirheit. Af
augljósum ástæðum vilji menn viðhalda götóttu skattakerfi. En
hvað sem því líður nær engri átt, að greiddir skattar skili sér ekki
til ríkissjóðs. Söluskatturinn er neysluskattur. Fyrirtækin eru að-
eins innheimtuaðili. Fjórðu hverri krónu, sem almenningur borg-
ar fyrir vöru og þjónustu er ætlað að renna í sameiginlegan sjóð
landsmanna. Henni er ekki ætlað að lenda í vösum óprúttinna
braskara, sem á réttum tíma láta „há-effið“ sitt fara á hausinn til
að Iosna við að standa skil á söluskattinum, sem þeir innheimtu
hjá mér og þér, lesandi góður, skatti sem við greiddum til að
standa undir samneyslu þjóðfélagsins.
Það fyrir finnast ýmis orð yfir þá athöfn að taka ófrjálsri hendi
það, sem öðrum tilheyrir. Vafalaust má heimfæra einhver þeirra
á þær gjörðir sumra fyrirtækja, að innheimta skatta hjá starf-
smönnum sínum, en skila þeim ekki til eigandans. Það lýsir því
furðulegu siðgæðismati þegar fréttamenn spyrja ráðherra hvort
ekki sé verið að stuðla að atvinnuleysi með því að loka fyrirtækj-
um, sem ekki standa skil á söluskatti og staðgreiðslu, en að því
höfum við orðið vitni í sjónvarpi.
Aðgerðir til að uppræta svindl og stórfelldan þjófnað á skatt-
peningum njóta stuðnings almennings hver sem ríkisstjórnin er.
Komist allir skattar í hendur réttra aðila er það alls ekki borin
von, að þeir lækki er fram líða stundir.
s.h.
Leikarar í „Kitla“, leikritinu sem Litli leikklúbburinn frum-
sýnir á laugardaginn.
Litli leikklúburinn:
Frumsýnir
„Kitla“
Enskt barnaleikrit í þýðingu
Guðjóns Ólafssonar
Það er mikið um að vera í
leiklistarlífinu á Vestfjörðum um
þessar mundir. Bolvíkingar hafa
nýlega frumsýnt söngleikinn
„Líf og friður“, Flateyringar
frumsýna í kvöld leikritið
„Draugaglettur“ eftir Iðunni
Steinsdóttur og laugardaginn 11.
mars nk. kl. 15.00 frumsýnir í
Alþýðuhúsinu Litli leikklúbbur-
inn á ísafirði barnaleikritið
„Kitli" eftir Bretann David
Wood í þýðingu Guðjóns Ólafs-
son.
Guðjón leikstýrir einnig verk-
inu en í því leika 13 manns á aldr-
inum 13 ára til 22 ára. í aðalhlut-
verkinu er Vigdís Jakobsdóttir.
Þetta verður í fyrsta sinn sem
nýr Ijósabúnaður klúbbsins er
notaður á sýningu, en LL safn-
aði fyrir þessum búnaði m.a.
með maraþonleiksýningu í sept-
ember sem kunnugt er.
„Kitli“ verður sýndur a.m.k.
sex sinnum á ísafirði, á laugar-
daginn, síðan eru fyrirhuguð ein
sýning á sunnudag og aftur um
næstu helgi. Einnig er stefnt að
leikferð eftir páskana um Súð-
avík, Bolungarvík, Súgandafjörð
og Flateyri.
Æfingar hafa staðið yfir í sjö
vikur og æft hefur verið í Selinu
virka daga en í Alþýðuhúsinu
um helgar.
„Þetta er barnaleikrit sem
fjallar um veruna Kitla“ sagði
Halla Sigurðardóttir formaður
Litla leikklúbbsins í samtali við
BB í vikunni. „Kitli fæðist við að
falla sem kitl úr nefi við hnerra.
Hann þarf síðan að finna sér
annan samastað. Hann er ósýni-
legur mannfólkinu en hann kitl-
ar það og það finnur fyrir hon-
um. Aðrar verur, til dæmis
sýklar, geta séð hann og hann
nær sambandi við þær. Það er
mikið sungið í þessu leikriti og
bæði fullorðnir og börn ættu að
geta haft ánægju af því.“
Börn í grunnskólum og leik-
skólum á þeim stöðum þar sem
leikritið verður sýnt hafa lagt
Litla leikklúbbnum lið og teikn-
að fyrir hann fjölbreytt auglýs-
ingaspjöld sem hengd verða upp
fyrir sýningu á hverjum stað.
Halla kvaðst mjög ánægð með
samvinnuna við krakkana og
vildi þakka þeim sérstaklega fyr-
ir.