Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.03.1989, Side 9

Bæjarins besta - 08.03.1989, Side 9
3ÆJARI3MS BESTA 9 Þessir þrír norsku sjómenn af rækjuskipinu Remöy létu sig Fyrsti viðskiptavinurinn í ríkinu á miðvikudagsmorgun var ekki vanta þegar íslendingar héldu upp á bjórdaginn. F.v. Reynir Helgason úr Hnífsdal. Gunnar Nærö, Peder Petterson og Geir-Arne Yoldsund. Enginn ölvaður undir stýri í Krúsinni sá trúbadorinn Ingi Gunnar Jóhannsson um að skapa ekta „íslenska“ pöbbastemningu á bjórdaginn með gítarspili og söng fram undir miðnætti. Áheyrendur voru reyndar svo ánægðir með framlag trúbadúrs- ins að þeir ætluðu ekki að vilja sleppa honum. Að sögn Dúa í Krúsinni (Steinþórs Friðriksson- ar) er von á meiru af svo góðu þar því hann ætlar að opna snemma kvölds alla fimmtudaga og sunnu- daga og bjóða upp á lifandi tónlist sem oftast. Samkvæmt ágiskunum lög- reglunnar héldu um 200 manns upp á daginn á skemmtistöðun- um en þrátt fyrir nokkfa ölvun hlutust þó engin vandt^eði af. Lögreglan fylgdist vel með ung- lingunum og vísaði frá þeim sem voru of ungir til að taka þátt í öl- teitinu. Á miðvikudag og aðfara- nótt fimmtudags voru um 90 bíl- ar stoppaðir en enginn reyndist vera ölvaður við stýrið. Á næst- unni mun lögreglan herða mjög Þessar tvær skemmtu sér vel í jazzstemmningunni að Upp- sölum á miðvikudagskvöldið. eftirlit með ökumönnum og því vissara að ganga heim „eftir einn.“ Tonn í póstflugið Vestfirðingar eiga sem kunn- ugt er aðeins eina áfengisútsölu, þá sem staðsett er á ísafirði og þaðan verða aðrir íbúar kjálkans að panta sinn bjór í póstkröfu. Póstkröfugjaldið fyrir einn kassa af bjór er nú 425 kr. Þrátt fyrir það fóru á fimmtudag frá fsafirði um eitt tonn af bjór í póstflugi á viðkomustaði Flugfélagsins Ern- is og á föstudag fóru aðrir 500 lítrar. Svo mikið var magnið að nota varð Twin Otter vél félags- ins í póstflugið í stað minnstu vélar Ernis. Óvíst er hvort ann- að eins magn verður pantað í hverri viku hér eftir en a.m.k. er ljóst að það verður töluverð aukning á póstkröfusendingum frá ísafirði. Og nú er bara að bíða og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér, hvort spár svartsýnismanna ræt- ast og bjórinn verður einungis til þess að auka enn á drykkju íandsmanna eða hvort sala sterkra vína minnkar og menn læra að meta þann valkost að geta skroppið út á virkum dög- um sem á öðrum dögum til þess að spjalla við vini og kunningja, hlusta á rólega tónlist, fá sér eina eða tvær bjórkollur og ganga síðan heim eftir ánægju- lega kvöldstund. (□□□□□□□□□□aQDQnDoönnQnn ...í Krúsinni Laugardags- kvöld frá kl. 23 til Aðgangur ókeypis til kl. 01 D0LBY sér um dúndurstuð og barinnsérumbMHft í vikunni verður svo tækifæri til að kíkja við um kvöldstund til að spjalla við vini og kunningja yfir krús, í krús fimmtudags- ,□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□ 20-01, á 18-01 á

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.