Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.03.1989, Síða 10

Bæjarins besta - 08.03.1989, Síða 10
10 BÆJARINS BESTA BB-viðtalið: „Á morgun, á morgun! Hildur Gylfadóttir og Fanney Ómarsdóttir segja frá ársdvöl í Paraguay sem AFS - skiptinemar Hvað vita íslendingar um Paraguay? Sennilega álíka mikið og fólk í Paraguay veit um ísland. Kannski aðeins meira, eftir að sagt var frá því í fréttum fyrir skömmu að einræðisherranum Alfred Stroessner hefði verið steypt af stóli af tengdasyni sínum og flokksbróður, Andreas Rodriguez. En þar fyrir utan varla mikið. Á því eru þó und- antekningar, þ.e.a.s. AFS-skiptinemar sem dvalið hafa í landinu í heilt ár. Tveir slíkir eru þær Hildur Gylfadóttir og Fanney Ómarsdóttir, 19 ára stelpur á ísafirði. Hildur var búsett í Paraguay frá því í febrúar 1986 til febrúarmánaðar 1987 og Fanney er nýkomin heim eftir ársdvöl. Þær stöllur hafa verið óaðskiljanlegar frá því þær voru krakkar, „algjörar samlokur“ eins og þær orða það sjálfar, og nú hafa þær sannarlega nóg að tala um. Því enda þótt þær hafi verið skiptinemar í sama landinu var lífsreynslan ólík á margan hátt. Þær Hildur og Fanney eru í BB-viðtali ídag: Stéttaskiptingin mikil „Skiptinemar sem fara til Suð- ur-Ameríku fara í febrúar en ekki i júlí eins og aðrir skiptinemar, vegna þess að skól- inn byrjar eftir sumarfrí í febrú- ar-mars“ segir Hildur. „Skólaár- ið er alveg öfugt við íslenska skólaárið. Eg fór til borgar sem heitir Pilar og er mjög sunnar- lega í Paraguay. Þetta er hálf- gerð sveitaborg og í henni búa um 15.000 manns, sem er ekki stórt á þeirra mælakvarða. í Paraguay búa tæpar fjórar millj- omr manna. Lifnaðarhættirnir voru mjög „sveitó.“ Ég sá mjög vel hvernig hinn almenni Paraguay-borgari lifir, sem sagt millistéttin. Stétta- skipting er mjög mikil en samt búa allir hlið við hlið, hreysin standa við hliðina á ríkmannleg- um villum. Að vísu eru til hreysahverfi og flott hverfi en hitt er algengara. Fjölskyldan sem ég bjó hjá var millistéttar- fólk miðað við landið í heild en samt hástétt miðað við aðra sem bjuggu í Pilar. Pabbi minn átti útvarpsstöð og mamma mín var bókasafnsvörð- ur í skólanum sem ég gekk í. Ég átti eina litla systur, Claudiu sem var 8 ára. Pabbi var mikið í stjórnmálum og sterkur „Colorados“, sem er aðalflokk- urinn í Paraguay og hann hélt mikið upp á Stroessner forseta, sem var steypt af stóli um dag- inn. Ég hef ekkert heyrt frá þeim síðan, það er búið að breyta símanúmerunum og það þarf ekki að vera að byltingin hafi snert þau nokkur en maður veit aldrei. Það getur allt skeð þarna, fólk er hneppt í varðhald af minnstu ástæðu og allt mögu- legt. Stroessner var einræðisherra Það var mikið talað um stjórn- mál á heimilinu en bara önnur hliðin: „Við erum Colorado og við horfum ekki né sjáum nokk- uð annað!“ Stroessner tók völd- in með byltingu 1954 og fólkið þekkir varla neitt annað en hann. Hann er hálfþýskur, pabbi hans var Þjóðverji og eins og fólk hér hefur heyrt þá gerði Stroessner mikið af því að veita nasistum hæli, Mengele og fleirum. Hann var algjör einræðisherra og gerði aðeins það sem honum einum þótti ástæða til að gera. Á eftir honum í valdastiganum voru fjórir náungar sem voru kallaðir „ríkisstjórnin“ og síðan kom ein- hvers konar þing sem fólk kaus „fulltrúa“ á. Vandamálið var bara það að ef þú varst opinber starfsmaður og ekki Colorados og kaust ekki Stroessner þá misstir þú bara vinnuna. Stjórnvöldin sáu svo um kosningarnar og breyttu öllu sér í hag þannig að þetta var bara skrípaleikur." „Og ef þú kemur ekki á kjör- stað þá missir þú líka vinnuna“ bætir Fanney við. „Einn vinur minn sagði mér frá því að eitt sinn þá kom maður í skólann með pappíra fyrir fólk til að skrá Hildur og Fanney: „Það var hreinasta bíó að sjá krakkana á böllum!“ sig í Colorados-flokkinn. Hann sagði þeim að enginn þyrfti að skrá sig frekar en hann vildi, en ef þau skráðu sig ekki þá kæmust þau ekki á ríkisháskólann, fengju aldrei vinnu og svona var talið upp endalaust þannig að þau áttu í raun engra kosta völ!“ Börn með byssur „Um það leyti sem Stroessner tók völdin þá var safnað stuðn- ingsundirskriftum á vinnustöð- um og þeir opinberu starfsmenn sem skrifuðu ekki undir þessa stuðningsyfirlýsingu, misstu vinnuna nokkru seinna" segir Hildur. „Konan sem var AFS- trúnaðarmaður minn var kenn- ari á þessum árum og hún neit- aði að skrifa undir. Hún missti vinnuna og maðurinn hennar, sem er lögfræðingur og er menntaður í Bandaríkjunum, BULC Flogið um Luxembourg til Varna s; móti farþegum í Varna af íslenskum mánuðum. Tvær baðstrendur Alben er hægt að stunda heilsurækt á glae hægt að fá tannviðgerðir Polyklini mjög hagstætt. íslensk hjúkrunarkon Skoðanaferðir verða til Istanbul mi margra skemmri skoðanaferða um I; farnar vikuferðir um landið dagana ! og 8. ágúst og verður þá hægt að strandarhótelum eftir því sem farþec Þá munu farþegar eiga þess kost að ingu á Doná. Er þá flogið til Salzb Vínar með lest en viku sigling um I Rooáse hefst daginn eftir flug. Panta |

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.