Bæjarins besta - 08.03.1989, Blaðsíða 14
14
BÆJARINS BESTA
AFLAFRÉTTIR
Ísaíjörður:
Guðbjörg kom til Þorláks-
hafnar í gærkvöld, eftir að hafa
verið á veiðum fyrir sunnan
land með rúm 300 tonn af
karfa. Guðbjörg á söludag 13.
mars í Bremerhaven og fer þar
í slipp.
Páll Pálsson landaði á mánu-
dag 80 tonnum af þorski. Sett
var í einn gám. Páll fór til veiða
aftur á mánudag.
Júlíus Geirmundsson kom í
land á laugardagskvöld með
140 tonn og hélt aftur út á mán-
udagskvöld. Sett var í einn gám
á Bretland.
Guðbjartur kom í land á
laugardagskvöld með 130-140
tonn, mestmegnis þorsk og 6,5
tonn af lifur. Hann fór út aftur
á þriðjudagskvöld. Sett var í
tvo gáma.
Línubátarnir komust á sjó
alla daga í síðustu viku og er
það fyrsta vika sem það tekst
frá áramótum. Guðný fiskaði
33,5 tonn í fimm róðrum í síð-
ustu viku og setti í einn gám.
Víkingur III landaði tæpum 43
tonnum eftir fimm róðra og sett
var í einn gám. Orri fiskaði 58
tonn í sex róðrum.
Bolungarvík:
Heiðrún landaði á föstudag
100 tonnum af karfa mest-
megnis. Sett var í þrjá gáma.
Dagrún landaði á laugardaginn
140 tonnum af þorski, sett var í
tvo gáma. Sólrún landaði 55
tonnum á mánudag og setti í
tvo gáma.
Flosi fiskaði rúmlega 62 tonn
í síðustu viku í fimm róðrum.
Jakob Valgeir landaði 22,6
tonn í fjórum róðrum og
Nonni, sem rær frá Bolungar-
vík en leggur upp aflann á Isa-
firði, fiskaði um það bil 28
tonn í síðustu viku í fjórum
róðrum.
Fjórir loðnubátar, Keflvík-
ingur, Víkurberg, Húnaröst og
Albert, lönduðu fullfermi af
loðnu fyrstu fjóra dagana í
mánuðinum, samtals um 2400
tonnum. Á árinu hefur verið
landað um 6200 tonnum af
loðnu í Bolungarvík. Alls hef-
ur þá verið landað þar um
18000 tonnum frá vertíðarbyrj-
un í haust.
Súðavík:
Bessi landaði tæplega 130
tonnum á mánudag, sett var í
fjóra gáma, þar af fer einn
a.m.k. til Bretlands.
Guðmundur Ásgeirsson
landaði 1675 kg. af rækju í síð-
ustu viku og Haffari landaði í
gær 14,5 tonnum af rækju.
Aðrir rækjubátar eru hættir
veiðum þar sem þeir eru búnir
með kvóta sína.
Suðureyri:
Elín Þorbjarnardóttir kom í
land aðfaranótt sunnudags og
landaði í gær um 100 tonnum
af þorski. Hún fór út aftur á
þriðjudagskvöld.
M/b Kristján fór í tvo róðra í
síðustu viku og landaði samtals
um 11,2 tonnum. Ingimar
Magnússon fór einnig í tvo
róðra og landaði um 11,8 tonn-
um.
Flateyri:
Gyllir kom í land á laugar-
dagskvöld með 70 tonn af
þorski, sett var í tvo gáma.
Gyllir fór aftur til veiða á
mánudagskvöld.
Jónína fór í fjóra róðra í síð-
ustu viku og landaði rúmlega
41 tonni, Sif landaði 39,5 tonn-
um eftir fjóra róðra og Benni
Vagn landaði samtals 35,5
tonnum eftir þrjá róðra.
Þingeyri:
Framnes landaði á mánudag
120 tonnum af góðum þorski.
Sléttanesið kom heim í gær eft-
ir söluferð til Englands þar sem
það seldi 160-170 tonn af þorski
og var meðalverð á kíló frekar
lágt, aðeins 62 krónur.
Dýrfirðingur fór tvisvar á sjó
í síðustu viku og landaði 5,5
tonnum rúmum samtals, Máni
fór þrisvar á sjó og landaði
15,5 tonnum rúmum, Mýrafell
fór í tvo róðra og landaði 11,3
tonnum og Bibbi Jóns landaði
8,3 tonnum eftir tvo róðra.
Tálknafjörður:
Tálknfirðingur kom inn á
laugardagskvöldið með um
það bil 100 tonn. Sett var í einn
gám.
María Júlía fór í fjóra róðra
og fiskaði 64 tonn. Máni fékk
18 tonn á línu og skipti síðan
yfir í net og fékk 2 tonn.
Bíldudalur:
Sölvi Bjarnason landaði síð-
ast á föstudag 125 tonnum.
Aflinn var blandaður, aðallega
þorskur og karfi. Allur aflinn
fór til vinnslu í Fiskvinnslunni.
Þá landaði togskipið Þrymur
frá Patreksfirði 35 tonnum af
þorski.
Allir rækjubátarnir hafa nú
klárað kvóta sína og fá ekki
viðbót á þá. Almenn óánægja
er með þetta meðal rækjusjó-
manna þar sem mjög vel hefur
aflast og allir tíu bátarnir hafa
auðveldlega getað skilað
sínum 4 tonnum á viku til
vinnslu.
Patreksfjörður:
Togarinn Sigurey seldi í
Englandi 24. febrúar 140 tonn,
mestmegnis þorsk, og fékk
mjög gott verð, 140 kr. meðal-
verð á kíló. Haukur Böðvars-
son fór þrisvar á sjó í síðustu
viku og landaði samtals 37
tonnum.
Vestri og Patrekur fóru
fimm fe,rðir hvor í síðustu viku
og lönduðu í kringum 50 tonn-
um hvor, þar af voru um 15
tonn steinbítur. Fiskurinn er
frekar smár. Tálkni fór fjórar
ferðir í síðustu viku og landaði
samtals um 40 tonnum. Þröstur
og Brimnes fóru þrisvar á sjó t
síðustu viku og lönduðu um 6-7
tonnum eftir hvern róður.
Bjórkönnur
og bjórglös...
Mikið úrval af óáfengum bjór og munið!
Eftir einn ei aki neinn!
Opnunartímar:
Mánudaga - fimmtudaga
kl. 9 - 18.
Föstudaga kl. 9 - 20.
Laugardaga kl. 10 - 13.
VÖRUVAL
LJÓNINU SKEIÐI — SÍMI 4211
BÚÐ SEM STENDUR UNDIR NAFNI