Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.03.1989, Blaðsíða 16

Bæjarins besta - 08.03.1989, Blaðsíða 16
16 BÆJARllMS BESTA Framkvæmdir Við íþróttahúsið verður unnið fyrir 32 milljónir, þar af greiðir ríkið 12,8 milljónir. Lokið verð- ur við að steypa húsið upp og gengið frá þaki og gluggum. Með því verður staðið við samn- inginn sem gerður var við ríkið um byggingu íþróttahúss. Til sjúkrahúss og heilsugæslu- stöðvar verður varið 3,9 milljón- um til að greiða af lánum sem tekin hafa verið til framkvæmda við nýja sjúkrahúsið. Lokið verður við snjóflóða- varnir í Holtahverfi. Þær eiga að kosta 3,3 milljónir þar af er styrkur frá ríkissjóði að upphæð kr. 2,6 milljónir. Lokið verður við Stjórnsýslu- húsið, en þar er eftir að ganga frá lóð og listaverki. Þar er um að ræða bindandi samning. Áætláður kostnaður til að ljúka við Stjórnsýsluhúsið er 3,9 millj- ónir, þar af 2,6 milljónir í lista- verkið. í Seljalandshverfi verður unn- ið fyrir 2,3 milljónir og er það umtalsvert minna en áætlað hafði verið. Aðeins verður lokið við þær framkvæmdir sem nauð- synlegar eru til að byggingar geti haldið áfram í hverfinu og fólk geti flutt inn í þau hús sem tilbú- in verða á árinu. Að gatnagerð verður unnið fyrir 6,7 milljónir króna. Þar af fara í viðhald og holuviðgerðir 2,9 milljónir og í klæðningu 3,2 milljónir. Ný klæðning verður lögð á Skutulsfjarðarbraut, fsa- fjarðarveg, Aðalstræti, Hafnar- stræti, Suðurgötu og Sundstræti. Þá verður unnið við Pollgötu fyr- ir þann styrk sem fæst úr svoköll- uðum 25% sjóði. Lagninu gangstétta verður haldið áfram. Verða lagðar gangstéttir fyrir 3,2 milljónir króna. Undir þeim framkvæmd- um stendur hið svokallað B- gatnagerðargjald. Til skipulagsmála fara 1,7 milljónir króna. Er það til end- urskoðunar á aðalskipulagi og vinnu við deiliskipulag á hafnar- svæðinu og á Eyrinni meðfram Pollinum. Til skrúðgarða og opinna svæða verður varið 1 milljón króna. Til dýpkunar í Bátahöfn verð- ur varið 2.5 milljónum króna og 7.5 milljónum í þekju á Sunda- höfn. Ýmsar framkvæmdir sem gert var ráð fyrir á þriggja ára áætlun verða að bíða. Má þar nefna Grunnskólann, en þar verða litl- ar sem engar framkvæmdir nema fyrir það sem kynni að fást úr Framkvæmdasjóði fatlaðra. Af tekjum vatnsveitu fara 10.5 milljónir til greiðslu á hreinsi- búnaði, sem pantaður hefur ver- ið, en uppsetningu hans verður frestað fram á næsta ár. Breytingatillögur viö fjárhagsáætlun í frumvarpinu eins og það var lagt fram til fyrri umræðu var gert ráð fyrir rúmlega 119 millj- ón króna lántökum. Á milli um- ræðna komu fram breytinga- tilögur bæði frá meiri- og minnihluta. Allar miðuðu tillög- urnar að því að draga úr lántök- um. Fulltrúar minnihlutans, sem sjálfstæðismenn skipa, lögðu til lækkun á útgjöldum um rúmar 33 milljónir króna og fylgdi til- lögum þeirra ítarleg greinar- gerð. Skyldi rekstur lækkaður um rúmar 17 milljónir. Gerði minnihlutinn tillögur um lækkun einstakra rekstrarliða um tæpar 4 milljónir, um lækkun á yfir- vinnu á bæjarskrifstofum um 2,7 milljónir og ósundurgreinda lækkun á öðrum reksatrarliðum um 10,7 milljónir. Fjárfestingar skyldu lækka um 15.3 milljónir og munaði þar mest um íþrótta- húsið, sem skyldi lækka um 14,2 milljónir. Þá gerði minnihlutinn tillögu um að gert yrði ráð fyrir 40 milljóna króna lántöku vegna Hlífar II. Var sú tillaga, sem og allar aðrar tillögur minnihlutans, felldar. Meirihlutinn, sem skipaður er fulltrúum Alþýðubandalags, Al- þýðuflokks og Framsóknar- flokks, lagði til að útgjöld lækk- uðu um 15,6 milljónir króna án þess að þjónusta sveitarfélagsins yrði skert að marki. Þar af voru 4,2 milljón króna lækkun í rekstri og 11,4 milljón króna lækkun í fjárfestingum. Munar þar mest um lækkun vegna íþróttahúss (4,5 milljónir) og að fallið var frá því að kaupa vinnu- vél í áhaldahús (4,8 milljónir). Þá gerði meirihlutinn ráð fyrir að 3,5 milljónir fáist fyrir sölu eigna. Með þessum breytingatil- lögum gerði meirihlutinn ráð fyrir lántökum upp á tæpar 100 milljónir króna. Með tillögum meirihlutans fylgdi bókun í 23 liðum. Þar kemur fram hvernig meirihlut- inn hugsar sér að leita leiða til hagræðingar í rekstri og nokkur önnur veigamikil atriði varðandi framgang fjarhagsáætlunarnnar. Er þar m.a. gert ráð fyrir að lána verði aflað með skuldabréfaút- boði og að fjárhagsáætlun verði endurskoðuð strax og lántökur liggja fyrir. Hlífarmálið I Hlífarmálinu er það sjónar- mið meirihlutans að á þessu stigi sé ekki rétt að gera ráð fyrir neinum kostnaði vegna Hlífar II. Jafnvel þótt bæjarsjóður muni eignast umtalsverðan hluta í Hlíf II og bæjarstjórn hafi gert samþykktir þar um hefur ekki enn náðst samningur á milli bæj- arsjóðs og stjórnar Byggingar- samvinnufélagsins Hlífar um hve stór sá eignarhlutur mun verða né verð á honum. Varla er ástæða til að verðlauna þá sem vilja ráðskast með fjármuni bæj- arsjóðs með því að samþykkja greiðslur án slíks samnings. Þá mun bæjarsjóði veitast nógu erfitt að útvega þær tæpu 100 milijónir að láni sem fjárhagsá- ætlun gerir ráð fyrir þótt ekki bætist við lán vegna Hlífar II. Ef bæjarsjóður á að geta lagt ein- hverja fjármuni í Hlíf II á þessu ári verða að koma til séstakar ráðstafanir, s.s. að bænum verði boðin hagstæð lán eða að selja Fátt er betra en að fara i vel heit- an nuddpott og gufu, og það ný- jasta og sá eini á landinu, teygju- bekkur fyrir baksjúklinga. Studíó DAN Hafnarstræti 20 • S 4022 verður einhverjar eignir bæjar- ins. Grundvallaratriði er að bæjar- stjórn ákveði hvenær fé verði lagt í byggingar í Hlíf eins og aðrar framkvæmdir sem bæjar- sjóður er aðili að, en ekki ein- staklingar úti í bæ. Hlýtur sama að gilda í þeim efnum og varð- andi framkvæmdir sem ríki og sveitarfélög standa saman að. Einu gildir hve mikið sveitarfé- lögin hafa lagt í framkvæmdina, framlag ríkisins fer eftir fjárlög- um hverju sinni. Fjárhagsstaða Nokkrar umræður hafa átt sér stað í fjölmiðlum um erfiða fjár- hagsstöðu ísafjarðarbæjar. Þess vegna þykir rétt að gera hér nokkra grein fyrir þeim kafla í fjárhagsáætlun sem kallast fjár- magnsstreymi. Þar kemur fram hvernig nota á afgang af rekstri og fjárfestingum, eða hvernig á að fjármagna halla ef um slíkt er að ræða. Þessi kafli segir mikið um afkomu sveitarfélagsins og er því birtur hér að neðan í töfl- um 1 og 2. Allar tölur eru í þús- undum króna. Eins og sjá má í töflunni er gert ráð fyrir tæpum 100 milljón króna lántökum. Þá er gert ráð fyrir að afborganir af lánum og öðrum skuldum (liður 1-5 í ráð- stöfun) verði 108 milljónir. Ef fjárhagsáætlunin stendst munu því skuldir bæjarsjóðs heldur minnka á þessu ári og verða áfram í kring um 300 milljónir. Lausafjárstaðan mun hins vegar batna að miklum mun. Smárí Haraldsson bæjarfulltrúi Nú er hægt að fá nudd, svæðameð- ferð, partanudd og fleira frá kl. 10 til 22 á virkum dögum og frá kl. 13 til 18 laugardaga og sunnudaga. ÖLL KVÖLD: nMI íj oiOiCjiiiir jaTLiiuj Lifandi tónlistá hugardagskvölduni cUlll ...Munið ið panta borð tímanlega Sími4111 Studíó DAN Hafnarstræti 20 • ® 4022 Uppruni l. Af rekstrar og framkvæmdayfirliti kr. 7.532 2. Frá vatnsveitu kr. 2.000 3. Lækkunáútistandandigjöldum kr. 15.000 4. Óinnheimtútsvar í staðgreiðslu 1988 kr. 13.000 5. Greiðsla ríkissjóðs vegna skulda kr. 2.100 6. Salafasteigna kr. 3.500 7. Lántökur kr. 99.868 Samtals kr. 143.000 Ráðstöfun 1. Afborganir lána kr. 46.000 2. Greiddirvíxlar kr. 15.600 3. Lækkun hlaupareikninga kr. 18.000 4. Greidd vanskilálangtímalánum kr. 18.400 5. Launaskatturvanskil kr. 10.000 6. Tilaðbætalausafjárstöðu kr. 13.000 7. Óinnheimtútsvarístaðgreiðslu 1989 kr. 15.000 8. Stofnkostnaðurtilskíðasvæðis kr. 1.500 9. Fjármögnunvegna Hótels ísafjarðar kr. 5.500 Samtals N'.Á' ; i"V ■ kr. 143.000

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.