Bæjarins besta - 14.06.1989, Blaðsíða 1
DAGLEGT FLUG FRÁ
REYKJAVÍK TIL
VESTFJARÐA
FLUGFÉLAGIO
ÉRNIR r"
ISAFIROI
ísafjörður:
$0% af ölvunarakstri
á fimmtudögum
og sunnudögum
• •
OLVUNARAKSTUR á regluþjónnsagðiísamtalivið
ísafirði er svipaður í ár BB að ekki væri hægt að
og á sama tíma í fyrra að sögn merkja neina marktæka
lögreglunnar á ísafirði. Hins aukningu á ölvunarakstri en
vegar hefur hið furðulega hins vegar væri bjórinn far-
skeð að ölvunarakstur hefur inn að spila inn í aksturinn,
færst af föstudögum og laug- það merktu þeir hjá lögregl-
ardögum yfir á fimmtudaga unni. Menn tækju frekar
og sunnudaga. Um 80% af sénsinn á að aka undir áhrif-
öllum ölvunarakstri er á um á fimmtudögum og
þeim dögum. sunnudögum þegar pöbbarn-
Jónas Eyjólfsson yfirlög- ir væru opnir.
Nú er unnið að lokafrágangi á skipinu.
Skipasmíðastöð Marsellíusar hf:
Sjósetur nýtt skip
fyrir Sandgerðinga
Laugardaginn 3.
júní síðastliðinn var sjó-
sett nýtt skip hjá skipasmíða-
stöð Marsellíusar hf. Það var
143 rúmlesta skip, smíðað
fyrir Njörð hf., í Sandgerði.
Skipið er búið 1000 hestafla
aðalvél. Þá er það einnig út-
búið fyrir heilfrystingu um
borð.
Skipið hefur ekki enn hlot-
ið nafn sem er mjög óvenju-
legt miðað við hvað smíði
skipsins er komin langt.
Nú er unnið að lokafrá-
gangi á skipinu í ísafjarðar-
höfn og verður það afhent
hinum nýju eigendum í byrj-
un ágúst. Skipið verður gert
út á togveiðar og snurvoð.
Áætlaður kostnaður við
skipið fullbúið er um 120
milljónir króna.
Fjórir bfla frá Vörubílastöðinni óku á hægri ferð framan við þá sem verkið unnu fyrir Steiniðj-
una og töfðu þannig aksturinn.
Yörubílstjórar:
Töfðu akstur
utanfélagsmanna
- á möl fyrir Steiniðjuna. Ætla að fá lögbann á verkið
VÖRUBÍLSTJÓRAR frá
Vörubflastöðinni á ísa-
firði gripu til þess á föstudags-
morgun að nota bfla sína til
að tefja og stöðva í tvo tíma
akstur á steypuefni fyrir
Steiniðjuna til þess að mót-
mæla því að einstaklingur
utan félagsins hefði fengið
verkið eftir útboð en ekki
Vörubílastöðin.
Bílstjórarnir óku á hægri
ferð á undan þeim sem verkið
áttu að vinna og lögðu síðan
vörubílunum framan við
hauginn og stöðvuðu þannig
alla vinnu þar til yfirlögreglu-
þjónn kom og fékk þá til að
hætta aðgerðunum.
Einstaklingur sá sem verk-
ið fékk hefur fengið tvo bíl-
stjóra sem eru á stöðinni og í
félaginu til akstursins en sam-
kvæmt lögum mega engir
vinna þessi verk nema að
hafa leyfi frá stöð.
„Við ætlum okkur að
stoppa þetta og munum að
reyna að fá lögbann á verkið
því að þetta er ólöglegt sam-
kvæmt því sem lögfræðingur
okkar félags í Reykjavík seg-
ir“ sagði Ölafur Halldórsson
bílstjóri hjá Vörubílastöðinni
í samtali við BB. „Maðurinn
má bjóða í verkið en ekki aka
sjálfur og þess vegna fær hann
félaga okkar með sér og fer
þannig í kringum lögin. Hér
segja lögfræðingar hins vegar
við hann að hann megi keyra.
„Þessi einstaklingur átti
lægra tilboðið og munaði um
5 krónur á rúmmetra þannig
að ég gekk að því og þá komu
engar athugasemdir fram frá
Vörubílstjórastöðinni“ sagði
Halldór Antonsson fram-
kvæmdastjóri Steiniðjunnar í
samtali við blaðið. „Bílstjór-
arnir hafa nokkuð til síns
máls samkvæmt lögunum en'
það er eiginlega túlkunarat-
riði hvað átt er við í reglu-
gerðinni. En það er ekki
bannað að bjóða verkið
hverjum sem vill og sem
verkseljanda skiptir mig ekki
máli hvort sá er frá stöð eða
ekki.“
Mjög lítið hefur verið að
gera í vörubílaakstri í vetur
og sumar.
Bílstjórarnir færðu bíla sína ekki frá malarhaugunum fyrr en
lögreglan kom á staðinn.