Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.06.1989, Side 11

Bæjarins besta - 14.06.1989, Side 11
iirri hugmynd um saf'naðarh'í' sem ég hef fært fram og reynt að gera að veruleika.“ tíð viljað leggja mest í þetta vegna þess að barnastarfið finnst mér vera það almikil- vægasta fyrir utan guðsþjón- ustuverkið sjálft. Það að ná til barnanna og móta börnin. Það sem mér þykir vænst um af öllu því sem ég hef gert í þessi 12 ár er kirkjuskólinn í Súðavík og samstarfið við skólann þar. Og ég finn það núna eftir þessi ár að ég hef verið með í því að ala upp þessi börn. Ég ætla ekki að segja að þau beri það utan á sér í framtíðinni, en samt sem áður; þú kemur ekki að tóm- um kofunum hjá þessum krökkum um hegðun í kirkju, um það að vera frjálsmann- legur þar og njóta þess og þau vita það alveg fyrir víst núna, hvort sem þau gleyma því síðar, að þau eru undir nákvæmu eftirliti og gæslu Guðs almáttugs. Þau þurfa ekkert að fara í grafgötur með það og gera það ekki. Þau stíga ekki eitt fótmál öðruvísi en hann gæti þeirra. Og þetta er svo indælt að vita.“ Og Jakob brosir við. „Þessi þáttur hefur gengið alla tíð og kannski væri þetta núna dottið upp fyrir ef ekki hefði komið manneskja til aðstoðar sem er Árný Her- bertsdóttir. Hún er búin að vera mér til aðstoðar í nokk- ur ár og á undan henni Geir- þrúður Charlésdóttir. Þessar tvær konur hafa komið til að- stoðar og þess vegna hefur þetta gengið. Þá hefur Ingi E. Jóhannesson einnig reynst sönn hjálparhella. Enginn kom til liðs Æskulýðsfélag er nokkuð „Þessar ógöngur sent söfnuðurinn hefur komist í vegna kirkjubyggingarmálsins eru miklu meiri en fólk gerir sér almennt grein fyrir.“ sem á að taka við af barna- starfinu og fermingarundir- búningnum. Því kom ég í gang en það kostaði það að ég þurfti að vera úti fleiri fleiri kvöld í viku til að hugsa um fundi, nefndir, stjórnina og halda utan um þetta allt sam- an. Það lánaðist í þessu félagi að skapa samfélag vinanna. Við vorum kannski ekki alltaf að tala um Biblíusög- urnar heldur snerist þetta fremur um inntakið í kristnu samfélagi: vináttu, gagn- kvæmán kærleika og ábyrgð á sjálföm sér gagnvart lífinu. Undir slíkum kringumstæð- um er hægt að gera svo margt saman sem skiptir kannski ekki höfuðmáli hvað er með- an það er jákvætt og upp- byggjandi, styrkir samfé- lagið og hristir saman hóp sem þekkir tengsli sín við Guð og kirkjuna. Þetta félag gekk alveg fram til 1984 en þá komu upp erfiðleikar í fé- laginu og ég réð bara ekki við þá einsamall. Iðulega þurfti að halda svo utan um þessa

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.