Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.06.1989, Qupperneq 12

Bæjarins besta - 14.06.1989, Qupperneq 12
12 BÆJARINS BESTA ★ * SJALLINN: * * krakka sem einstaklinga í bókstaflegri merkingu þeirra orða. Stundum vakti maður langt fram á nætur með þau grátandi í fanginu. Þau höfðu þá einhvern til að Ieita til en þetta getur maður ekki gert með öllu öðru til lengdar. En þarna kom enginn til liðs. Ég vonaðist til að krakk- arnir sem byrjuðu í félaginu myndu gerast leiðtogar síðar en það voru einmitt duglegu krakkarnir sem fóru burtu af staðnum. Ég sé alveg óskap- lega mikið eftir þessu félagi og þykir mjög leiðinlegt hvernig fór. Mér finnst æsku- lýðsfélag vera eins konar „eftirmeðferð" barna- og fermingarstarfanna sem gerir fólk að játandi einstakling- um. Einhverjir verða að bera uppi merkið Ég kalla þorra safnaðarins kristið fólk, þ.e. það fólk sem játar því í orði eða dáð að það sé kristið. En fólk sem er reiðubúið til að ganga fram fyrir skjöldu sem kristnar manneskjur mætti svo sann- arlega vera fleira. Þetta álít ég að sé nauðsynlegur þáttur í safnaðarstarfinu til þess að gera fólk játendur. Til er fólk sem talar oft og iðulega um virka játendur á neikvæðan hátt, það talar um ofstækisfólk, ofsatrúarfólk og hræsnara en það er allsendis óréttmætt því söfnuðurinn hefur þörf fyrir það eins og hver annar félagsskapur að einhverjir séu reiðubúnir til að ganga fram fyrir skjöldu og bera uppi merkið. Þegar ég lít á ferm- ingarundirbúninginn þá er það saga af gleði því ég á yndislegar endurminningar af fermingarfræðslustundunum með krökkunum. Þau þurfal mikið að spyrja og spekúlera. Ferðir með þeim hafa verið ánægjulegar, að ég tali nú ekki um margar guðsþjónust- ur sem við höfum undirbúið sameiginlega og auðvitað fermingarathöfnin sjálf. Prímadonnu- komplexar Ég kemst hreinlega í það sem menn kalla „exstasis“ við fermingarnar!“ Jakob hlær við og heldur áfram: „Það er svo ótrúleg sjálfsupp- fylling að gegna prestsþjón- ustu í kirkju undir slíkum kringumstæðum. Þú ert svo áberandi þarfur einstaklingur vegna þess að þú ert sá sem lætur þessa athöfn ganga fyrir sig og ert í aðalhlutverkinu. Ég er viss um það að megnið af prestum gengur með prímadonnukomplexa við þessar aðstæður. Þetta verð- ur þeim mun magnaðra fyrir það að maður er að gegna trúarlegri köllun. Maður er að ganga erinda himinsins um leið og maður er að þess- um „exhibisionisma“!“ Og nú skellihlær presturinn. „Ég hef mikið verið að reyna byggja upp starf með foreldrum fermingarbarna og barna í barnastarfinu. Og ég get svo sem vel sagt að það sé klaufaskapur í kirkjunni í heild og mér sem kirkjunnar þjóni að ná ekki upp þessu samstarfi. Ég held að foreldr- arnir hafi í raun vilja til þess en þau skortir allar forsend- ur, allar fyrirmyndir. Það stendur upp á okkur að segja frá því hvernig þetta er hægt, höfum kannski ekki fundið það út til fullnustu.“ Söfnuðurinn var óheiðarlegur Kirkjubyggingarmálið er nú Stúdentinn Jakob Ágúst Hjálmarsson. Fjölskyldumynd frá árinu 1980: Jakob ásamt eiginkonu sinni Auði Daníelsdóttur og þremur sonum þeirra. Á milli hjónanna er Þórir, til vinstri er Óskar og hægra megin er Daníel. Myndin er tekin á fermingardegi Þóris. Föstudagskvöld: Diskótek frá kl.23 til 03. Aldurstakmark 18 ár. Laugardagsk völd: Hið frábæra Bítlavinafélag skemmtir frákl. 23 til 03. Aldurstakmark 18 ár. komið í allt annan farveg enþú hefðir óskað þér, hvert er þitt álit áþví máli nú? „Þessar ógöngur sem söfn- uðurinn hefur komist í út af kirkjubyggingarmálinu hafa verið miklar og miklu meiri en fólk gerir sér almennt grein fyrir.“ Komit þessi sterku viðbrögð fólks þér í vetur á óvart? „Það sem gerðist í vetur leið kom gersamlega flatt upp á mig. Mér finnst að söfnuðurinn hafi verið óheið- arlegur við sóknarnefndina, prestinn og skipanina sem safnaðarstarfinu er sett í til- tölulega nýlegum lögum.“ Jakob þagnar um stund og leitar að réttu orðunum. Síð- an heldur hann áfram og tal- ar hægt og með þunga: „Jafn- framt er söfnuðurinn óheiðarlegur gagnvart tilfinn- ingum sjálfs síns. Vegna þess að ef að þessar tilfinningar gagnvart kirkjustaðnum og gömlu kirkjunni eru sannar þá bar fólki skylda til að koma fram og segja til. Það er ekki hægt að segja að sóknarnefnd og prestur hafi lokað þessi mál inni hjá sér. Það má segja sitthvað um meðferð okkar á þessum málum því að það hefði ef- laust verið hægt að fara að þessu á ýmsan annan hátt en ekki að við höfum haldið þessu hjá okkur því við birt- um hverja einustu bréfsnuddu sem að til okkar kom og frá okkur fór. Visst form af múgæsingu Ég horfi því á það sem gerðist síðastliðinn vetur sem visst form af múgæsingu. Elún hefur fært þetta mál í þær skorður núna sem ég öf- unda engan af að hrinda því fram úr. Ég vil þó líka segja það að ég met það að þeir sem hafa verið í forystu fyrir þessarri hreyfingu til verndar gömlu kirkjunni og svæðinu framan við sjúkrahúsið hlupu ekki frá ábyrgðinni. Ég held ekki að þetta fólk hafi hugsað það í upphafi að það myndi lenda í forystu fyrir söfnuðinum en þegar svona fór og það stóð upp á það þá varð ekki skorast undan. Það var kjörið í sókn- arnefnd og ég hef trú á að það eigi eftir að reynast vel og axla ábyrgðina. En málið sjálft er bara svo flókið ennþá að það er mikið verk að finna leiðir út úr því og framkvæma þær. Ég held að það væri mjög úr takti að bíða eftir nýjum presti til að leysa það mál því það var komið í þennan farveg án hjálpar prests og einmitt að

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.