Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.06.1989, Page 17

Bæjarins besta - 14.06.1989, Page 17
BÆJARINS BESTA 17 Nýja gistiheimilið. ísafjörður: Yerð í samvinnu við hótelið - en ekki samkeppni segir Áslaug Jensdóttir eigandi nýs gistiheimilis á ísafirði Á ísafirði, eins og öðrum X^kaupstöðum landsins. er sífellt lagt meira upp úr þjónustu við ferðamenn, inn- íenda sem erlenda. Hingað til hefur verið hægt að fá tvenns lags gistingu yfir sumartím- ann á ísafirði. Annars vegar hótelgistingu og hins vegar svefnpokapláss á Edduhótel- inu, á heimavist Menntaskól- ans. Ferðamenn hafa oft kvartað yfir því að ekki skuli vera til millistig þarna á milli. Nú hefur ungt par; Áslaug Jensdóttir og Magnús Al- freðsson, hins vegar tekið sig til og innréttað gistiheimili með fjórum herbergjum í húsi sínu við Austurveg 7. Blaðamaður BB hafði sam- band við Áslaugu til að for- vitnast nánar um málið. Áslaug kvað hugmyndina hafa vaknað, þegar þau hjón- in fóru að leigja út herbergi með sameiginlegri eldunar- aðstöðu, og í ljós kom að eft- irspurn var mikil og manna- skipti ör. En til þess að gera herbergin fullnægjandi sem gistipláss, þurfti að setja handlaug í hvert þeirra, og bæta eldvarnir. J>á þurfti að sjálfsögðu að búa þau hús- gögnum. Pau hjónin hafa starfað að þessu í vetur, og er ætlunin að hefja reksturinn nú í sumar. í herbergjunum verða upp- ábúin rúm, en möguleiki verður trúlega á að fá svefn- pokapláss. Fólki verður gef- inn kostur á að sjá alveg um sína eldamennsku í stóru og góðu eldhúsi sem þarna er. Hins vegar verður væntan- lega boðið upp á tilbúinn morgunmat fyrir þá sem þess óska. Enda þótt um sé að ræða svipaða þjónustu og hótelið veitir, bara með einfaldara sniði, segist Áslaug ekki ætla að verða í einhverri sam- keppni við það. Hún vill frekar eiga gott samstarf við hótelið, og hefur nú þegar leitað ráða hjá þeim um ým- islegt. Með þessu framtaki þeirra hjóna eru þau í raun að slá margar flugur í einu höggi. Parna voru þau með ónýtt húspláss, þetta vantaði í bæ- inn, og Áslaug hefur verið at- vinnulaus undanfarið. Verð á næturgistingu verð- ur trúlega um f850 krónur fyrir eins manns herbergi og 2850 krónur fyrir tveggja manna. Pað skal þó tekið fram að hér er ekki um á- kveðnar tölur að ræða. En verður gistiheimilið rek- ið allan ársins hring? „Mér hefur verið sagt að það gæti borgað sig, en ég ætla að sjá til hvernig gengur í sumar, og taka svo ákvörð- un um það“ sagði Áslaug að lokum. SÆLKERAR ATHUGIÐ! Ostakökur eru lygilega lystugar og stelpumar frá Osta- og smjörsölunni verða með meiriháttar ostakökukynningu á föstudaginn, 16. júní, frá kl. 1000 til 1230. ...Og að sjálfsögðu verðumvið með ferska og framandi ávexti til að gera kökumar ennþá lystugri, svo sem jarðarber, bláber, ferskjur, plómur, kirsuber, ananas o.fl. o.fl. ATH! Lokað á laugardaginn 17. júní, annars opiðá laugardögum í sumar. BJORNSBUÐ SÍMI3032 ★ * KRUSIN: * * *★ Fimmtudagsk völd: Pöbbinnopinnkl. 20 — 01. Gummi og Halli skemmta. Föstudagsk völd: Diskótekkl. 23-03. Aðgangur ókeypis til miðnættis. Aldurstakmark 18 ár. Laugardagskvöld: Hljómsveitin skemmtir ásamt Rúnari Þór sem í dag á eitt vin- sælasta lagið á landinu, „Brotnar myndir“. Opið kl. 23 -03. Aldurstakmark 18 ár. Sunnudagsk völd: Rúnar Þór skemmtir frákl. 20 til 01.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.