Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Blaðsíða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2020
Greint var frá því í upphafi vik-unnar að greinst hefðu sexinnanlandssmit af kór-
ónuveirunni á aðeins fjórum dögum,
svo að ýmsir óttuðust að önnur bylgja
heimsfaraldursins kynni að vera farin
að láta á sér kræla. Heilbrigðisyfir-
völd settu sig í stellingar ef ástæða
væri til þess að herða sóttvarnir aft-
ur.
Nokkrar áhyggjur hafa verið af út-
breiðslu kórónuveirunnar á íþrótta-
mótum og öðrum mannfagnaði, en á
Rey Cup, fótboltamóti ungmenna
sem lauk á sunnudag, kom upp smit
og á þriðja tug keppenda fór í sóttkví.
Það var þó ekki eini heilbrigðisvand-
inn þar, því 26 keppendur þurftu að
leita á bráðamóttöku vegna meiðsla,
þar af 15 með beinbrot.
Sagðar voru af því fréttir að sendi-
herra Bandaríkjanna á Íslandi, Jeff-
rey Ross Gunter, hefði svo miklar
áhyggjur af öryggi sínu hér á landi að
hann hefði óskað eftir leyfi til þess að
bera skammbyssu innan klæða og
vildi fá bryndreka til þess að fara
ferða sinna. Flestum Íslendingum,
sem eru í senn vopnlaus þjóð og í
fremstu röð þegar litið er til fjölda
skotvopna miðað við höfðatölu í heim-
inum, fannst þetta allt frekar ein-
kennilegt. Fréttastofa CBS í Banda-
ríkjunum skóf ekki utan af því og
sagði sendiherrann haldinn vænisýki.
Veiran hélt áfram að grafa um sig og
á mánudag var sagt frá því að 21 hefði
greinst með virk smit. Fram kom að
tvö ný afbrigði veirunnar hefðu
greinst hér á landi.
Deilur Rio Tinto og Landsvirkj-
unar kraumuðu áfram, en álmenn
sögðu að rafmagnsmenn hefðu ekki
staðið við stóru orðin um afslátt
vegna heimsfaraldursins, sem raf-
magnsmenn báru aftur á móti. Svo
var enn deilt um verð, en Rio Tinto
telur framtíð álversins í Straumsvík
miklum vafa undirorpna nema
rekstrarskilyrði batni. Landsvirkjun
sagði að það væri undir Rio Tinto
komið að aflétta trúnaði um orku-
samning þeirra ef félagið vildi þrasa
um orkuverð á opinberum vettvangi,
en Rio Tinto vill það ekki nema allir
orkusamningar til stóriðju séu gerðir
opinberir þannig að almenningur hafi
samanburð.
Flugfreyjur samþykktu kjara-
samning við Icelandair eftir að hafa
kolfellt nánast sama samning nokkr-
um vikum fyrr, en þá hafði flugfélagið
brugðist við með því að segja öllum
flugfreyjum upp. Guðlaug Líney Jó-
hannesdóttir, formaður Flugfreyju-
félagsins, sagði stjórnendur Ice-
landair eiga mikið verk fyrir höndum
við að byggja upp traust flugfreyja á
ný, sem þá bætist við himinháan
stabba verkefna við endurreisn flug-
félagsins.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice-
landair Group, hafði einmitt í nógu
öðru að snúast, en hann sagði þess
freistað að ljúka samningum við 15
helstu lánardrottna flugfélagsins í
vikunni. Tekist hefði að lappa upp á
samkeppnishæfni félagsins með
kjarasamningum og endurskipulagn-
ingu, en eins hefði hnignun íslensku
krónunnar undanfarnar vikur verið
kærkomin, enda megnið af útgjöld-
unum í krónum en tekjunum í er-
lendri mynt.
Efnahagsörðugleika gætti þó
víðar. Talning Öryggiseftirlitsins á
byggingarkrönum í notkun staðfesti
grun margra um að mikill sam-
dráttur væri í byggingariðnaði, enda
hafði hagkerfið hægt töluvert á sér
áður en kórónuveiran kom til. Fyrir
tveimur árum skoðaði eftirlitið 385
byggingarkrana en fann aðeins 161 á
þessu.
Leikarinn og skemmtikrafturinn
ástsæli, Gísli Rúnar Jónsson, lést, 67
ára að aldri.
Smitum fjölgaði enn og á miðvikudag
kvaðst landlæknir vilja herða sótt-
varnareglur á ný. Sömuleiðis jókst
áhugi almennings á sýnatöku, ýmsum
viðburðum verslunarmannahelgar
var aflýst og ótti við aðra bylgju far-
aldursins gerði vart við sig. Það
blandaðist vitaskuld fréttum utan úr
heimi af verulegri aukningu smita í
sumum löndum, sem aftur hafði m.a.
þau áhrif að mjög tók að draga úr
áhuga og bókunum Íslendinga á ferð-
um suður á sólarstrendur.
Að venju hefur dregið úr stjórn-
málaáhuga yfir hásumarið, sem end-
urspeglaðist í könnun MMR á fylgi
flokka. Það hreyfðist sáralítið frá síð-
ustu könnun, mest innan skekkju-
marka. Þar var helst að frétta að Pí-
ratar sigldu fram úr Vinstri grænum
með 15% og Sósíalistaflokkurinn fór
upp í 5%, sem hlýtur að teljast mikill
sigur innipúka.
Ríkisstjórnin kynnti nýjar sótt-
varnaaðgerðir á fimmtudag, en þá
voru einmitt sex mánuðir frá því að
COVID-19 kom fyrst fram í Kína.
Síðan hafa tugmilljónir smitast um
heim allan og a.m.k. 661.000 manns
liggja í valnum.
Frá hádegi á föstudag máttu ekki
fleiri en 100 manns koma saman, fólki
var gert skylt að bera andlitsgrímur í
almenningssamgöngum, en líkams-
ræktarstöðvar, skemmtistaðir og
aðrir ámóta staðir voru beðnir um að
loka eða að tryggja að sameiginlegir
snertifletir væru sótthreinsaðir.
Þetta voru mestu takmarkanir
heimsfaraldursins í tvo mánuði. Sama
dag kom fram að 39 hefðu verið
greindir með virk smit og meira en
200 manns í sóttkví.
Viðbrögðin við þessari tilkynningu
voru með ýmsum hætti, en þannig
voru andlitsgrímur rifnar út þar sem
þær voru á annað borð á boðstólum
og vísbendingar um að markaðurinn
hefði brugðist við þessum vanda við
úthlutun takmarkaðra gæða með
hefðbundnum hætti, umsvifalausum
og miklum verðhækkunum.
Almennt mæltust ráðstafirnar vel
fyrir en þó brá mörgum við að þær
kæmu fram í aðdraganda versl-
unarmannahelgar, sem löng hefð er
fyrir að Íslendingar noti til þess að
koma saman í þúsundatali, syngja við
raust og spritta sig. Ekki síst átti það
þó við um skipuleggjendur, starfsfólk
og listamenn útihátíða, en þar var
vertíðinni aflýst með nokkurra daga
fyrirvara. Vestmannaeyingar voru
sennilega vonsviknastir af þeim völd-
um, enda á íþróttalíf í Eyjum mjög
undir hagnaði af Þjóðhátíð í Herjólfs-
dal, sem blásin var af vegna fjöldatak-
markana um liðna helgi.
Fyrst og síðast var þó ferðaþjón-
ustan í öngum sínum, enda hafði
ferðamönnum smám saman tekið að
fjölga aftur undanfarnar vikur. Við
blasir að takmarkanirnar setji stórt
strik í reikninga um framhaldið.
Skarphéðinn Steinarsson ferða-
málastjóri vildi þó engu slá föstu og
sagði af nokkurri bjartsýni að minni
líkur væru nú á að spár um aukið
ferðamannastreymi til landsins rætt-
ust. Í sama mund kom fram að ekki
væri gert ráð fyrir uppsveiflu í ferða-
þjónustu fyrr en árið 2023 og ekki
ósennilegt að til fjöldagjaldþrota
kæmi í greininni.
Á móti kemur þó að áhugi Íslend-
inga á ferðum innanlands hefur snar-
aukist, þar á meðal á hálendinu. Svo
mjög raunar að vísa hefur þurft fólki
frá tjaldstæðum sakir fjölda fremur
en óspekta. Það segir og sína sögu að
af gistinóttum hótela í júnímánuði
áttu innlendir ferðamenn 86%. Það
var þó ekki veruleg bót í máli þegar
horft er til þess að seldar gistinætur
voru 72% færri en í fyrra.
Örnefnarannsókn í Árnastofnun
leiddi í ljós að hátt í 300 örnefni í land-
inu tengist þrætum eyjarskeggja fyrr
á öldum. Þar ræðir þó einvörðungu
um þau örnefni sem fela í sér orðhlut-
ann þrætu-. Eins og lesa hefur mátt í
fjölmiðlum undanfarna daga eru ná-
grannaþrætur síður en svo liðin tíð
frá því Njáll var og hét.
Forseti Íslands aflýsti og lítilli mót-
töku, sem halda átti að Bessastöðum í
tilefni innsetningar hans í embætti á
laugardag.
Á sama tíma var kollega hans í
Bandaríkjunum einmitt að huga að
embætti sínu og sló fram þeirri hug-
mynd að fresta forsetakosningunum
þar í landi, sem fara eiga fram í
nóvember, þar til búið væri að út-
rýma veirunni. Óhætt er að segja að
þeirri hugmynd hafi verið fálega
tekið. Daginn eftir tilkynntu kínversk
stjórnvöld að réttast væri að bíða
með kosningar í Hong Kong um
óákveðinn tíma.
Árleg kertafleyting til þess að minn-
ast fórnarlamba kjarnorkuárásar-
innar á Hiroshima hinn 6. ágúst var
flutt af Tjörninni á netið.
Smitum hélt áfram að fjölga og
voru 50 manns í einangrun og 287 í
sóttkví.
Plágan lætur
aftur á sér kræla
Stjórnvöld kynntu nýjar sóttvarnaaðgerðir á fimmtudag vegna skyndilegrar fjölgunar kórónuveirusmita í landinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
26.7. - 1.8.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18