Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Blaðsíða 2
Hafa vinsældirnar komið þér á óvart? Já, þær hafa gert það. Ég bjóst ekki við svona miklum vinsældum. Frank sem vinnur þetta með mér hafði mikla trú á þessu en ég passaði mig að búast ekki við of miklu. En svo fór þetta bara miklu lengra en við bjuggumst við. Hvernig kom samstarfið við Bubba til? Frank átti þessa hugmynd. Hann var búinn að skrifa niður hjá sér fyrir löngu að sampla Bubba. Svo vorum við á leiðinni upp í stúdíó og vorum að hlusta á Bubba. Þá ákváðum við að kýla á þetta og þetta kom svona út. Við vorum eiginlega vissir um að fá nei frá Bubba þegar við mynd- um spyrja hann hvort við mættum gefa þetta út. Svo vorum við uppi í Öldu [Music] og vorum að sýna þeim lög á plötu sem við erum að vinna í. Þetta lag er þar og Sölvi [Blöndal] hjá Öldu hoppaði bara á þetta og hringdi í Bubba samdægurs og hann var mjög til í þetta. Hvernig er samstarf ykkar Franks? Á Flýg þá gerir hann taktinn en ég geri líka takta. Á nýju plötunni gerir hann flesta taktana og ég syng og rappa. En svo er þetta bara svolítil samvinna. Ég kem með punkta fyrir taktana og hann með punkta fyrir textana. Hvenær kemur nýja platan út? Planið var að gefa hana út áður en busaböllin í menntaskóla fara af stað. En það er líklega ekki að fara að gerast strax. Við erum að klára plötuna en hún kemur ekki út alveg strax. Það er ekkert of langt í það samt. Hefurðu eitthvað náð að spila lagið í sumar? Ég er búinn að vera að spila mikið en aðallega í útskriftarveislum og partíum. Það hafa engin festivöl verið í gangi en fólk hefur haldið partí. Það er smá pirrandi að einmitt þegar við gefum út stórt lag þá er einhvern veginn ekkert í gangi. En þetta fer í gang á endanum. Morgunblaðið/Eggert HAKI SITUR FYRIR SVÖRUM Vissir um nei frá Bubba Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.8. 2020 Hamingja? Hverju hefur hún skilað í listum? Heldurðu að Picasso,Hemingway og Hendrix hafi verið hamingjusamir? Þetta voru alltniðurdregnir fávitar. Öll alvöru list sprettur af þjáningu og eymd!“ Eitthvað á þessa leið kemst karakter Eds Harris að orði í kvikmynd sem ég sá nýlega. Harris leikur dauðvona ljósmyndara sem notið hefur gríðar- legrar velgengni í starfi en átt í basli í einkalífinu. Á lokametrunum freistar hann þess að friðmælast við stálpaðan son sinn sem hann hefur ekkert sinnt gegnum tíðina en það var einmitt sonurinn sem fékk spekina hér að ofan beint í æð. Ákveðin réttlæting af hálfu föðurins sem alla tíð hefur tek- ið vinnuna og sjálfan sig fram yfir fjölskylduna. Annars er þjáning ekki efni þessa pistils né heldur forgangsröðun þessa ágæta ljósmyndara sem er skálduð persóna. Hitt er miklu áhugaverðara, þríeykið sem hann nefnir í sömu andrá hér í upphafi. Þegar ég var að vaxa úr grasi hefðu það verið helgispjöll að setja Hend- rix í samhengi við Hemingway og Pi- casso. Dópaður gæruhippi við hlið Nóbelsskálds og eins fremsta listmálara sögunnar. Þegar ég var ungur og uppreisnargjarn blaðamaður hér á Morgunblaðinu setti ég einu sinni ljósmynd af Frank Zappa, sem gjarnan var í svampfrakka, á forsíðu Menningarblaðsins (ekki rugla því saman við Lesbókina, en bæði blöð fylgdu Mogganum á laugardögum). Zappa var að vísu ekki í svamp- frakka á myndinni en hún var listræn og hugguleg. Sé hana fyrir mér. Nema hvað aumingja útlitshönnuðurinn sem ég gerði samsekan var með böggum hildar yfir þessu galna uppátæki. Ég meina, Frank Zappa á forsíðu Menn- ingarblaðs Morgunblaðsins! Hann þráspurði hvort mér væri alvara og þegar hann kvaddi mig um kvöldið hafði hann á orði að við þyrftum ekki að mæta í vinnuna næsta virkan dag. Og meinti það. Við sluppum þó báðir undan fallöx- inni; ég man ekki einu sinni eftir að hafa verið spjaldaður. Ég skildi svo sem alveg hvað útlitshönnuðurinn var að fara; á þessum tíma var óhugsandi að tefla Sálinni hans Jóns míns og Luciano Pavarotti fram á sömu opnunni í Morgunblaðinu. Þeir múrar milli hámenningar og popp- menningar féllu með berlínskum hvelli nokkrum árum síðar; verkefni sem óhemjugaman var að taka þátt í. Þetta hljómar sjálfsagt undarlega í dag enda eru Picasso og Hemingway löngu búnir að hleypa Hendrix inn í samkvæmið og þeim fer óðum fækkandi sem bregður við að sjá þá félaga saman. Niðurdregna en iðandi af sköpun. Zappa á forsíðu Menningarblaðsins Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Nema hvað aumingjaútlitshönnuðurinnsem ég gerði samsekanvar með böggum hildar yfir þessu galna uppátæki Inga Eiríksdóttir Mér finnst þetta bara fínt eins og þetta hefur verið. SPURNING DAGSINS Hvernig finnst þér að ætti að haga mál- um á landamær- unum? Ingólfur Daníelsson Ég held það sé allt í lagi í að sjá til aðeins áfram. Kristín Hákonardóttir Mér sýnist þetta vera mjög fínt hjá þeim. Ekki gera minna en alls ekki loka. Eyvindur Bjarnason Ég held að það mætti vera heldur meiri skimun. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina er frá Colorbox Hinn 18 ára Haki gaf í júní út lagið Flýg í samvinnu við Bubba Mort- hens og Viktor Frank Þórarinsson. Lagið notar laglínur úr lagi Bubba, Velkomin, og var lengi efst á vinsældalista Spotify hér á landi. úr silki LEIKFÖNG Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Ný og endurbætt netverslun Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.