Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Síða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Síða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.8. 2020 Mín tilfinning er sú að Æv-ar Kjartansson, útvarps-maðurinn frá Gríms- stöðum á Fjöllum, hafi verið viðloðandi Ríkisútvarpið frá stofn- un þess. Það getur þó varla verið rétt því við nánari grennslan kem- ur í ljós að Ævar er fæddur tals- vert mörgum árum eftir að Rík- isútvarpið fór í loftið árið 1930. Tilfinningin er samt söm, svo mikið hefur framlag hans verið til dagskrárgerðar á liðnum áratug- um. Og nú er hann genginn. Ekki í bókstaflegri merkingu þess orðs heldur óeiginlegri því hann lætur nú af áratuga fastri þáttastjórn hjá Ríkisútvarinu. Síðustu árin hefur hann annast fasta umræðuþætti á sunnudags- morgnum sem síðan hafa verið endurteknir á komandi dögum. Þar hefur verið tekið fyrir allt milli himins og jarðar - að þessu sinni í bókstaflegri merkingu - því tekið hefur verið á jarðbundnum jafnt sem óræðari víddum tilver- unnar, atvinnu- lífi í landinu, heimspeki, bók- menntum og trúmálum. Þessi sam- ræða, þar sem hundruð ef þá ekki enn fleiri hafa verið köll- uð að borði, hef- ur orðið merkj- anlegur niður í straumi þjóð- félagsumræð- unnar þótt galdur hennar hafi ver- ið látleysi og öfgaleysi. Einstaklingar sem þekkja við- fangsefni sín í þaula hafa sett fram sjónarmið á upplýsandi hátt og þannig að við höfum komist niður úr yfirborðinu sem oftast einkennir umræðuna hér og nú. List Ævars hefur verið í því fólgin að rýma fyrir öðrum og til að tryggja að þáttastjórnandinn færi ekki villur vegar hefur hann iðulega fengið sér við hlið og til aðstoðar einstaklinga sem búa yfir reynslu og þekkingu á því efni sem brotið skuli til mergjar hverju sinni. En stíllinn á umræðunni er alltaf Ævars. Viðmælandinn alltaf í forgrunni. Sjálfur er Ævar Kjartansson ólíkindatól, maður mótsagna, eins og margir menn sjálfstæðir í hugs- un. Hann er í miklu uppáhaldi hjá Laxá í Aðaldal en Ævar er einn af sprengjumönnunum sem björguðu henni fyrir réttum fimmtíu árum þegar virkja átti þessa nátt- úruperlu enn frekar en þegar hafði verið gert. Eldra fólk man hvernig virkjunardraumum í Að- aldalnum lauk, eða öllu heldur, var lokið – því alltaf eru gerendur – með dágóðum skammti af dína- míti. Löngu seinna dúkkaði þessi rót- tæki og óhræddi maður frá Fjöll- um upp sem guðfræðingur. Rak þá margan í rogastans. Ekki þó þau sem vissu að hann var ekki ósnort- inn af því sem hann hafði kynnst sem farandverkamaður í Suður- Ameríku á þeim árum æviskeiðs- ins sem sálin er hvað móttækileg- ust því sem sáð er. Og á þessum slóðum mátti sjá að eldmóður bylt- ingarmannsins og hins sem boðaði kærleikann voru engar andstæður. Stofnanaveldi kirkjunnar tók að vísu ekki alltaf ofan fyrir þeim sem töluðu máli jafnaðar en það er önnur saga. Óminn af þessu röddum mátti oftar en ekki greina sem eins kon- ar undirtón hjá útvarpsmanninum Ævari Kjartanssyni. Eftirfarandi bar hann á borð fyrir okkur vor- ið 2006: ... bin Laden belongs – all, all belong. Gays, lesbians and so called straigths, all are loved, all are precious ... Allir eiga sam- leið. Allir. Bush og bin Laden, samkynhneigðir og gagnkynhneigðir. Þetta er ein fjölskylda og í þessari fjölskyldu eiga að gilda lögmál fjölskyld- unnar, þar sem hver leggur sitt fram eftir getu og hver fær eftir þörfum. Það er suður-afríski bisk- upinn Desmond Tutu sem talar á heimsþingi Alkirkjuráðsins í Bras- ilíu í febrúar síðastliðnum. Hann leggur áherslu á að stríð gegn hryðjuverkum – terrorisma – verði aldrei hægt að vinna á meðan skil- yrði og kringumstæður í heiminum valda fátækt, vanþekkingu og sjúkdómum sem gera fjölskyldu guðs barna örvilnaða. Á þessa leið skilaði Ævar Kjart- ansson boðskap Tutus til íslenskra útvarpshlustenda. Og nú er Ævar Kjartansson að ljúka sínu dagsverki á Rík- isútvarpinu. Hann er vonandi ekki hættur fyrir fullt og allt. Maðurinn enn bráðungur, rétt um sjötugt. En föstu þættirnir eru í þann veginn að renna sitt skeið. Þá er boltinn hjá Ríkisútvarp- inu. Því framhald umræðu af því tagi sem fylgt hefur Ævari Kjart- anssyni um langt skeið verður að fá framhald. Það sem ég sennilega er að reyna að segja er að þótt Ævar sé genginn í þeim skilningi sem hér hefur verið lýst þá er verkefnið að sjá til þess að hann gangi aftur – verði afturgenginn. Slíkir reim- leikar á útvarpsstöð geta aðeins orðið til góðs. Morgunblaðið/Ómar Ævar genginn Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’ Það sem ég sennilegaer að reyna að segja erað þótt Ævar sé genginn íþeim skilningi sem hér hefur verið lýst þá er verkefnið að sjá til þess að hann gangi aftur – verði afturgenginn. Slíkir reim- leikar á útvarpsstöð geta aðeins orðið til góðs. Ævar Kjartansson útvarpsmaður. Ég man þá tíð, skömmu eftir hrun, aðorðið hagfræðingur þótti eitt versta orðíslenskrar tungu. Enginn tók mark á þeim og þeim var kennt um allt mögulegt, að- allega þó það að hafa ekki séð fyrir hrunið. Þeir hefðu misskilið fræðigrein sína full- komlega og gleymt sér í dansinum kringum gullkálfinn. Ekki síst hefðu þeir gleymt að hagfræði væri félagsvísindi og þeim því ætlað að skoða mannlega hegðun, sem hefði verið rót hrunsins en ekki bara reikna út þjóðhags- lega hagkvæmni þess að gera Ísland að al- þjóðlegri fjármálamiðstöð. Svo gerist það hér, og úti um allan heim, að það kemur faraldur. Þjóðfélagið fer á hliðina og ótti grípur um sig. Mæta þá ekki hagfræð- ingarnir og reikna það út að skynsamlegast væri að loka landinu. Nú vill svo til að sumir taka þeim eins og hetjum. Þetta er nákvæmlega það sem ákveð- inn hópur þjóðarinnar vill heyra. Hetjur gær- dagsins, þríeykið okkar, reynir að benda á það að erlendir ferðamenn séu ekki mesti áhættu- þátturinn en það er eins og tala við vegginn. Hagfræðingarnir eru búnir að reikna þetta út og þá er þetta bara svona. Og svo kemur ákallið um að stjórnmálamenn stígi fram, axli ábyrgð og hætti að fela sig á bak við sérfræð- inga. Reyndar frá sama fólki og fannst fyrir skömmu síðan það besta sem gerðist hér vera án afskipta stjórnmálamanna. Einhvern tímann las ég grein um sálfræði- próf sem var lagt fyrir hóp af fólki. Það sat lengi yfir prófinu og barðist við að finna réttu svörin, bara til að komast að því að prófið var algjört aukaatriði og tilgangurinn var að rannsaka hegðun fólks við mikið álag og stress. Mér finnst stundum eins og þessi faraldur, sem nú gengur yfir, gæti verið rannsókn á hegðun þjóðarinnar og hvernig hún bregst við undir álagi. Nánast eins og þetta sé eitt risa- stórt samfélagslegt próf sem hafi verið lagt fyrir okkur og við séum öll að kolfalla. Það er svo auðvelt að skammast og láta eins og maður viti allt best sjálfur en það er í sjálfu sér ekkert galið að staðan sé sú að eng- inn viti neitt og allir séu að gera sitt besta. En einmitt í þeirri stöðu er mikilvægt að hlusta á þá sem vita þó meira en almenningur og treysta þeim til að finna bestu leiðina í þessari stöðu. Kannski er það eitthvert sambland þessara heilbrigðis- og hagfræðisjónarmiða. Og ég verð að segja að mér finnst það furðu- legt að skammast í stjórnmálamönnum fyrir að „fela sig bak við vísindamenn“. Það sem blasir við er að við eig- um miklu betra með að sam- þykkja rök sem falla vel að hags- munum okkar og tilfinningalífi. Fólkið í ferða- þjónustunni segir að það sé ekki hægt að loka veir- una úti og fólkið sem er að bugast yfir sam- komutakmörkunum vill skella landinu í lás og halda sínu striki. Halda tónleika og spila fót- boltaleiki. Og svo er náttúrulega Kári Stef- ánsson sem er bara alltaf agalega pirraður út af öllu. Fræðimenn eru þátttakendur í samfélag- inu, hafa örugglega ólíka hagsmuni og eru síð- ast en ekki síst tilfinningaverur eins og við hin. En þeir eru tilfinningaverur sem hafa varið stórum hluta ævi sinnar í að greina hluti með hinni vísindalegu aðferð og eru þess vegna vonandi aðeins betri í að skilja kjarn- ann frá hisminu en aðrir dauðlegir menn. Þess vegna vil ég að lokum segja tvennt: Í fyrsta lagi hefur landinu aldrei verið lokað í reynd og vonandi verður það aldrei gert. Hins vegar ættu öll viðbrögð að vera grundvölluð á besta fræðilega mati sem völ er á. Ef í því felst að fela sig á bak við vísindamann held ég að það sé, eins og segir í auglýsingunni, ein- mitt öruggur staður til að vera á. ’Fólkið í ferðaþjónustunnisegir að það sé ekki hægt aðloka veiruna úti og fólkið sem erað bugast yfir samkomutak- mörkunum vill skella landinu í lás og halda sínu striki. Halda tónleika og spila fótboltaleiki. Og svo er náttúrulega Kári Stef- ánsson sem er bara alltaf aga- lega pirraður út af öllu. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Upprisa hagfræðinganna Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is HVARSEMÞÚERT SAMSTARFSAÐILI Öryggiskerfi 15:04 100%

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.