Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Síða 8
Útvarpið hefur aldrei staðið frammi fyrir meiri samkeppni sem miðill, eigi að síður hefur
gróskan líklega aldrei verið meiri, alltént ef marka má fjölda útvarpsstöðva á Íslandi. Í úttekt
Sunnudagsblaðsins kemur meðal annars fram að þetta helgist ekki síst af því hversu þægi-
legur og persónulegur miðill útvarpið sé, auk þess sem það á gott með að bregðast hratt við
þegar vá ber að dyrum eða ná þarf eyrum almennings af öðrum ástæðum.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Á
ðan, í útvarpinu heyrði ég lag,
sagði skáldið. Haldiði að ég hafi
ekki lent í því sama á dög-
unum? Í mínu tilviki var lagið
Video Killed the Radio Star
með svuntupoppurunum í The Buggles frá
árinu 1979. Ár og dagur síðan ég heyrði þetta
ágæta lag og án nokkurs fyrirvara fór hug-
urinn á flug. Vídeóið gekk af útvarpsstjörn-
unni dauðri. Hverslags dómadagsþvæla er
það eiginlega? hugsaði ég með mér um leið og
ég skimaði í kringum mig í örvæntingarfullri
leit að vídeótæki á heimilinu. Fann ekkert.
Nóg var hins vegar af útvörpum – lagið ómaði
úr einu slíku – auk þess sem sjónvarpið mitt
og tölvan eru líka útvarp. Meira að segja sím-
inn. Hver hefði trúað því á því herrans ári
1979?
41 ári síðar er óhætt að fella þann dóm að
útvarpið hafi lifað vídeóið af. Síðarnefnda
græjan er á hinn bóginn svo gott sem horfin,
fyrir utan einn og einn sérvitring, eins og Að-
al-Reyni Maríuson á Klapparstígnum, sem
hermt var af hér í blaðinu á vordögum. DVD-
tækið leysti vídeóið af hólmi og nú sjá hinar
og þessar efnisveitur um að svala þörf al-
mennings fyrir gláp utan línulegrar dagskrár.
En hefur það haft einhver áhrif á útvarpið?
Stutta svarið er nei og nægir í því sambandi
að horfa til fjölda útvarpsstöðva á Íslandi.
Þegar Video Killed the Radio Star kom út var
ein útvarpsstöð starfandi í landinu. Gamla
góða Gufan. Nú eru þær um tuttugu talsins,
ef allt er talið.
Farsæll og stöðugur miðill
„Já, já, gamli Buggles-slagarinn,“ segir dr.
Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistarfræð-
ingur og aðjunkt við félagsvísindadeild Há-
skóla Íslands, og skellir upp úr þegar ég ber
þessa Video Killed the Radio Star-pælingu
undir hann. „Þetta voru ákveðnir umbrota-
tímar;“ segir hann, „byrjað að hilla undir að
tónlistarfólk færi í stórum stíl að gera mynd-
bönd við lög sín. MTV kom svo til sögunnar
1981 og upp frá því varð til mikill myndbands-
kúltúr sem hefur verið viðloðandi allar götur
síðan. Mín kynslóð ólst því upp við að sjá
bæði Michael Jackson og Madonnu en ekki
bara heyra í þeim.“
Arnar Eggert segir marga hafa spáð því að
þessi þróun ætti eftir að reynast útvarpinu,
ekki síst tónlistarstöðvunum, þung í skauti en
annað hafi komið á daginn. „Útvarpið hefur
verið alveg ótrúlega stöðugur miðill allar göt-
ur síðan og raunar gott betur. Á Íslandi höf-
um við aldrei upplifað dauðan tíma í útvarpi,
eins og hefur til dæmis gerst í bókaútgáfu eða
kvikmyndagerð. Ástæðan fyrir því að útvarp-
ið lifir enn þá svona góðu lífi er öðru fremur
sú að það er svo einfalt. Að kveikja á útvarpi
er bara eins og að skrúfa frá krana. Þú ýtir
bara á einn takka og útvarpið streymir fram.
Það hentar mannskepnunni ákaflega vel, þar
sem hún hefur tilhneigingu til að hafa hlutina
þægilega og auðvelda.“
Til samanburðar bendir hann á, að það hafi
kostað mun fleiri skref að horfa á vídeó enda
þurfti að fara úr húsi til að leigja spólu – og
jafnvel tækið líka. Ef það var þá á annað borð
inni. Það kostaði líka smá fyrirhöfn að hlusta
á plötu; sækja þurfti plötuna, setja hana á
grammófóninn og jafnvel strjúka af henni
mesta rykið áður en nálin var sett á.
Þægilegur bakgrunnur
Arnar Eggert hefur sjálfur starfað við útvarp
og segir kollega sína á Rás 2 sammála um að
flestir hlustendur kveiki á viðtækinu meðan
þeir séu að gera eitthvað allt annað. Í stað
þess að setjast beinlínis niður klukkan 16.15
og hlusta á tiltekinn þátt þá séu menn líklegri
Anna Marsibil Clausen, dagskrárgerðarkona á
Rás 1, kolféll fyrir undraheimi hlaðvarpsins.
Dr. Arnar Eggert Thoroddsen, aðjunkt við Há-
skóla Íslands, er bjartsýnn á framtíð útvarps.
Útvarp tifar létt
um máða steina
Buggles gerði garðinn frægan með Video
Killed the Radio Star. Og gerir enn.
Colorbox
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.8. 2020
ÚTTEKT