Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Page 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Page 11
Rás 2 hefur mesta hlutdeild meðal þeirra útvarpsstöðva á Íslandi sem mældar eru í rafrænum ljósvakamæl- ingum Gallup. Samkvæmt nýjustu mæl- ingunni, fyrir vikuna 27. júlí til 2. ágúst 2020, er hún með 32,9% hlutdeild í ald- urshópnum 12 til 80 ára. Bylgjan kemur næst með 28,3%, Rás 1 með 20,2% og þá K100 með 9,5%. Aðrar stöðvar eru með mun minni hlustun í þessum breiða aldurshópi. K100, sem Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, á og rekur, hefur sótt mjög í sig veðrið á þessu ári en um síð- ustu áramót var hlutdeild stöðvarinnar 6,2%. Í ársbyrjun 2019 var K100 með 3,9% hlutdeild. Markhópurinn 12 til 49 ára er mæld- ur sérstaklega og þar hefur Bylgjan vinninginn, er með 31,1% hlutdeild. K100 hefur á hinn bóginn verið á mikilli siglingu í þeim markhópi; farið úr 13,9% um síðustu áramót í 23,6% nú sem er sama hlutdeild og Rás 2. FM957 er í fjórða sæti með 8,3% hlustun. Ekki kemur á óvart að Rás 1 er með mun meiri hlustun í eldri aldurs- hópnum en hlutdeild hennar í mark- hópnum 12 til 49 ára er aðeins 3,7%. Í ársbyrjun 2019 var Bylgjan með mesta hlutdeild í báðum markhópum, 33,3% í 12 til 80 ára og 37,8% í 12 til 49 ára. Hún hefur því tapað á bilinu 5 til 6,7 prósentustigum á liðlega einu og hálfu ári. Hlutfallsleg hlustun á Rás 1 hefur líka minnkað um tæp 3 prósentustig á sama tíma en Rás 2 hefur á hinn bóginn um 3 prósentustiga meiri hlustun nú en í ársbyrjun 2019. Var með 29,8% þá. K100 á mikilli siglingu fyrir útvarp og rödd fyrir Morgunblaðið,“ segir hún hlæjandi og greinarhöfundur tengir óþægilega vel við mál hennar. Sjálf ætlaði Anna Marsibil ekki að vinna við útvarp; hafði ung spreytt sig á blaðamennsku og þegar hún hélt til Bandaríkjanna í fram- haldsnám í faginu, hugðist hún einbeita sér að skrifum með áherslu á rannsóknarblaða- mennsku. „Strax í fyrsta tíma var okkur hins vegar kennt hvernig gera á hlaðvarp og eftir það var ekki aftur snúið; ég heillaðist gjör- samlega af hljóðmiðlum. Sjálf var ég nýbyrj- uð að hlusta á hlaðvarp á þessum tíma en hafði ekki áttað mig á þessum miklu mögu- leikum sem miðillinn býr yfir,“ segir Anna Marsibil en fyrsta verkefni hennar var að hljóðrita heimilislausan mann sem var að selja dagblöð á götum úti. Mín köllun að segja sögur „Mín köllun í fjölmiðlun er að segja sögur og þarna gerði ég mér grein fyrir því hversu vel hlaðvarp hentar til þess. Sama máli gegnir um útvarp enda er hlaðvarpið í raun og veru bara framhald af því. Fram að þessu var út- varp í mínum huga aðallega spjall í beinni út- sendingu en ekki fyrirframunnið efni sem er meira mín gerð af útvarpi.“ Þegar hún sneri heim úr námi var enginn staður betur viðeigandi fyrir dagskrárgerð af þessu tagi en Rás 1 enda var eina skrifaða hlaðvarpið að koma þaðan á þeim tíma. Og þar fékk Anna Marsibil vinnu. „Annars er það svo skemmtilegt við hlað- varpið að hvaða Jón og Jóna sem er getur haslað sér þar völl. Yfirbyggingin er svo lítil. Hitt er annað mál að fólk þarf að búa yfir hæfileikum og geta höfðað til hlustenda til að halda uppi dagskrárgerð til lengdar; sam- keppnin er mikil og ef hlustendur tengja ekki við það sem maður er að gera þá leita þeir bara eitthvað annað. Það er ekki eins auðvelt og margir halda að vera sífellt sniðugur; jafn- vel þótt maður sé bara að spjalla við vini sína.“ Íþróttahlaðvörp hafa náð miklum hæðum hér á landi, ekki síst þau sem hverfast um knattspyrnu. „Ég er svo sem ekki manna fróðust um íþróttir en get ekki annað en dáðst að þessu. Menn virðast hreinlega ekki verða saddir af fótboltahlaðvörpum. Fyrst horfa þeir á níutíu mínútna leik og hlusta svo strax á eftir á þrjá sextíu mínútna hlaðvarps- þætti, þar sem leikurinn er krufinn til mergj- ar. Fyrir vikið stýra hlaðvarpsþættir eins og Dr. Football umræðunni í landinu mun meira en stærri íþróttamiðlarnir, hvort sem það er útvarp, sjónvarp eða blöðin. Þetta segir okkur að það er heilmikið gildi í því að hlusta á fólk spjalla saman, þótt það sé ekki mín nálgun.“ Styður hvort við annað Hlaðvarpið er í tísku en að sögn Önnu Marsi- bilar mun það ekki ganga af útvarpinu dauðu. Ekkert frekar en efnisveitur á borð við Net- flix hafi drepið línulega dagskrá í sjónvarpi. „Þetta styður klárlega hvort við annað, á því leikur enginn vafi, og hlaðvarpsstjörnur eins og Joe Rogan hafa dregið glænýjan hóp að miðlinum.“ Að áliti Önnu Marsibilar er styrkur út- varpsins öðru fremur fólginn í þrennu. Í fyrsta lagi hvað það er persónulegur mið- ill. „Persónulegri miðill er ekki til, að mínu mati. Þegar við hlustum á útvarp líður okkur gjarnan eins og að við séum að hlusta á vini okkar tala saman; þeir gætu þess vegna verið í sófanum við hliðina á okkur.“ Í öðru lagi hvað útvarpið er þægilegur mið- ill og einfaldur í notkun, sem gerir okkur mjög auðveldlega kleift að gera eitthvað allt annað á meðan við erum að hlusta; keyra bíl, vaska upp og annað þess háttar. „Eigi að síð- ur er áhugavert að útvarp getur haft mikil áhrif á okkur, koma skoðanamyndandi áhrif Útvarps Sögu til dæmis upp í hugann í því sambandi. Skoðanir sem eru oft og tíðum á skjön við meginstrauminn en hlustendur tengja við og upplifa sem staðreyndir þótt öll vísindi bendi til hins gagnstæða. Nægir að nefna loftslagmálin í því sambandi.“ Þriðja atriðið sem Anna Marsibil nefnir er hversu sjónrænn miðill útvarpið er. „Það hef- ur allt annars konar aðgengi að ímyndunar- aflinu en sjónvarpið og blöðin. Miklar lýs- ingar geta kallað fram heljarstóra mynd í huga hlustenda. Fyrstu línurnar í laginu Rómeó og Júlía eftir Bubba Morthens eru gott dæmi um þetta. Uppi í risinu sérðu lítið ljós Heit hjörtu, fölnuð rós. Matarleifar, bogin skeið Undan oddinum samviskan sveið. Þarna er lítið sagt en skýr mynd dregin upp. Margir telja sig til dæmis vita nákvæm- lega hvar þetta ris er.“ Mun lifa okkur öll Án þess að gera það í svo mörgum orðum er Anna Marsbil auðvitað löngu búin að svara spurningunni um það hvort vídeóið hafi orðið útvarpsstjörnunni að fjörtjóni. „Það er hrein- lega ekki satt. Það er löngu ljóst. Útvarpið lif- ir enn þá mjög góðu lífi. Það á ekki síst við um sögur og fróðleik, eins og rásin sem ég vinn hjá sérhæfir sig í. Sumir eru viðkvæmir fyrir því að kalla Rás 1 gömlu Gufuna en mér finnst alltaf svolítil hlýja í því. Manni þykir alltaf vænt um gömlu góðu Gufuna sína, þótt ég hafi ekki byrjað að hlusta á hana að neinu gagni fyrr en fyrir nokkrum árum. Mikil og góð vinna hefur verið unnin í dagskránni á síðustu árum og sóknarfærin mörg. Frásögn- in á sér hvergi lengri sögu og betri hefð en á Rás 1, hlustendahópurinn er dyggur og ég er ekki í nokkrum vafa um að þessi tegund af dagskrárgerð hefur enn mikið gildi.“ – Verður útvarpið enn þá eins vinsælt eftir fjörutíu ár? „Já, það myndi ég ætla. Útvarpið á eftir að lifa okkur öll.“ Fréttaflutningur í útvarpi stendur býsna styrkum fót-um, jafnvel þótt samkeppnin hafi aldrei verið meiri.Þetta er skoðun Valgerðar Jóhannsdóttur, sem hefur umsjón með meistaranámi í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. „Útvarpið hefur alltaf haft þá sérstöðu að það getur brugðist strax við. Um leið og stórtíðindi verða, nátt- úruhamfarir eða annað, þá er hægt að ganga út frá því að umfjöllun sé hafin í útvarpinu,“ segir hún. Auðvitað á þetta einnig við um sjónvarp og vefmiðla en það sem útvarpið hefur fram yfir þá er að hægt er að gera sitthvað annað á meðan tekið er á móti upplýsingum. Til dæmis er hægt að kveikja á útvarpinu meðan maður er und- ir stýri, þegar útilokað er að horfa á sjónvarpið eða bruna um netið. „Þegar hamfarir eiga sér stað eða önnur stórkost- leg tíðindi hefur fólk enn þá tilhneigingu til að leita á náðir útvarpsins, ekki síst eldra fólkið,“ segir Valgerður. Sjónvarpið frekara á athyglina Með bættri tækni og aukinni þekkingu er minna fyrir beinni útsendingu í sjónvarpi haft, svo sem fundir almanna- varna vegna heimsfaraldursins eru gott dæmi um, og enda þótt það að sjá það sem fram fer hafi alltaf aðdráttarafl þá bendir Valgerður á að sjónvarpið sé í eðli sínu mun frekara á athygli fólks en útvarpið. „Það fer minna fyrir útvarpinu; það er ekki eins ágengt. Þess vegna er útvarpið enn þá mest notaði miðillinn í heiminum. Það er svo einfalt og þægilegt; allt sem þú þarft er viðtæki og sendir og að ýta á einn takka.“ Valgerður segir útvarpið hafa gengið í endurnýjun líf- daga gegnum hlaðvarpið. Það sé framlenging á útvarpinu og njóti vaxandi vinsælda; ekki síst fréttatengt efni, þar sem menn velta vöngum yfir málefnum líðandi stundar. „Það er líka áhugavert hversu vel hlaðvarpið er að ná til yngri hlustenda og um leið að opna heim hljóðvarpsins fyrir þeim.“ Ýmsar íslenskar útvarpsstöðvar eru með fasta frétta- tíma, má þar nefna Rás 1 og Rás 2, Bylgjuna og K100. Val- gerður segir þessa fréttatíma enn þá hafa prýðilega hlustun, þrátt fyrir að línuleg dagskrá eigi almennt séð undir högg að sækja, bæði í útvarpi og sjónvarpi. Hvað stutta fréttatíma á heila og jafnvel hálfa tímanum varðar telur Valgerður líklegra að þeir nái fyrst og fremst til fólks sem er þegar að hlusta á útvarpið. Fáir rjúki til og hendi öllu frá sér til að kveikja á fréttum klukkan tvö. Öðru máli gegni um hádegis- og kvöldfréttir sem margir geri sér enn þá far um að heyra og kveikja á sérstaklega. „Þetta á ekki síst við um eldri kynslóðina. Hún ýmist kveikir eða hækkar í útvarpinu þegar fréttatíminn byrjar. Þannig að útvarpið hefur enn þá hlutverki að gegna þegar kemur að miðlun frétta og fréttatengds efnis.“ Getur brugðist strax við Valgerður Jóhannsdóttir, lektor við Háskóla Íslands. Morgunblaðið/Hari Morgunblaðið/RAX Eldgos er afbragðs- gott útvarpsefni. 16.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11 ’ Í huga margra er útvarpþægilegur bakgrunnur oghverfist meira um hljóð eninnihald. Útvarpið er eins og notalegur lækur sem streymir áreynslulaust fram.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.