Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Side 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Side 13
16.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 inn alvarlega frá upphafi. Ég var spurður, ég var látinn dæma og meta. Ég var mjög heppinn að hafa lent í Landakoti, hvað þetta snertir, bæði að hafa lent hjá Vigdísi og líka að hafa fengið skilningsríka kennara.“ Svo að við förum nú áfram í tímanum, þá mun það vera árið 1966 sem Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra hefur samband við þig og óskar eftir því að þú komir heim til Íslands til þess að vega og meta og endurnýja hvorki meira né minna en íslenska grunnskólakerfið. Hvernig atvikaðist það? „Gylfi rakst upphaflega á mig á Íslandi þegar ég var að vinna fyrir Jónas B. Jónsson fræðslu- stjóra og spurði mig um ákveðna hluti. Ég þótti fróður um skólamál eftir Odenwald-skólann, auk þess sem ég var með klassíska skóla- menntun, latínuna, sem er annars vegar runnin upp úr áhuga mínum á málanámi, eða gerð mála. Ég hafði lært nokkur tungumál og ein- hvern veginn hafði Gylfi haft veður af mér á námsárunum, þegar ég var heima. Við hittumst svo einhvern tímann og hann bauð mér til sam- tals. Ég var náttúrulega mjög hrifinn af að kynnast honum. Svo fæ ég bréf frá Gylfa ein- hvern tíma seinna, þegar ég er á ferðalagi í Am- eríku, þar sem hann biður mig að koma á fund. Mér fannst þetta merkilegt, því hann var ráð- herra, þannig að ég bregð á það ráð að taka flugvél heim, ekki til Þýskalands, ekki til Frakk- lands, heldur til Íslands. Ég flýg til Íslands og hitti Gylfa þar. Gylfi tekur upp samtal við mig um skálamál á Íslandi og segir að hann vanti upplýsandi starfsmann til ráðagerða. Gylfi var þýskmenntaður og mjög frjálslyndur maður. Mér fannst þetta alveg furðulegt að þessi maður skyldi vera þátttakandi í pólitík á Íslandi. Þetta var bara björgunarmaður! Ég hafði verið kommi á menntaskólaárunum og ekki haft neina sérstaka tiltrú á krata í þessu embætti. Nú, svo er sett á stofn þessi skólarann- sóknadeild í menntamálaráðuneytinu, sem ég held að hafi sprottið úr hugmyndum sem ég bar upp og mun hafa stungið upp á við Gylfa, þannig að ég átti vissan þátt í „móderniseringu“ eða nú- tímavæðingu ráðuneytisins. Ég segi ekki að það sé mitt verk en ég átti vissan þátt í því. Ráð- herrann hafði mikið álit á minni ráðgjöf og það má því segja að ég sé þarna frumkvöðull sem er „akzepteraður“, viðurkenndur. Gylfi lagði eyru við öllu sem ég sagði og tók fullt mark á mér.“ Þiggjandi jákvæðra skólahátta Þú sagðir einhvern tíma í viðtali að sú endurnýj- un á íslenska skólakerfinu sem þú stóðst fyrir, ásamt Andra Ísaksssyni og fleirum sem voru með þér í þessu, hafi verið ein heppnaðasta námsefnisendurskoðun sem gerð hefur verið í heiminum. Í hverju var þessi endurskoðun fólg- in og hvað var það sem heppnaðist svona vel? „Ég bar þetta saman við þær skólabætur sem voru í gangi í öðrum Evrópulöndum eftir stríð og náði í einhvers konar hugmynd um hvað ég myndi gera þegar ég væri kominn í þessi tengsl við menntamálaráðuneytið á Íslandi. Svo var ég náttúrulega sjálfur þiggjandi jákvæðra skóla- hátta í Landakoti og í Odenwald-skólanum sér- staklega, og ég þóttist viss um að því yrði vel tekið ef ég reyndi að hafa einhver ráð með skólabætur á Íslandi. Ég held að ég hafi nú reyndar ekki verið orðinn mikill pólitískur um- bótamaður á þessum tíma, en ég hafði einhvern skilning á því, eða einhvern ávæning af því að nemendur ættu að hafa annað hlutverk en það hlutverk sem þeir höfðu erft, sem var dugnaðar- og hlýðnihlutverk. Nemendur í Odenwald- skólanum höfðu þetta frumkvæði. Í íslenska menntaskólanum, eins og ég upplifði hann, höfðu nemendur ekkert frumkvæði. Þessu þurfti að breyta. Í grunnskólanum var hug- myndin sú að gera nemendur að þáttakendum í skipulagi grunnskólans. Tillögur þeirra um framkvæmd kennslunnar ættu að vera við- urkenndar og teknar alvarlega. Það ætti að gefa nemendum jákvæð ummæli um góðar tillögur. Þetta átti að vera „demókratískt“, lýðræðislegt innlegg í grunnskólann. Þáttur nemenda átti ekki bara að vera hlýðni, heldur þátttaka og virkni.“ Höggdofa yfir vinsemdinni Þú vinnur sem sagt að því að nútímavæða náms- efni grunnskólanna og átt drjúgan þátt í nýju skólalöggjöfinni sem er samþykkt 1974. Svo gerist það í byrjun níunda áratugarins að það upphefst mikil rimma sem hefur seinna verið kölluð „sögukennsluskammdegið“. Hvað var það í þessum nýju hugmyndum og þessu umbótastarfi þínu og þinna fjölmörgu samstarfsmanna sem fór svona fyrir brjóstið á vissum aðilum, einkum stjórnmálamönnum? „Það sem fór aðallega fyrir brjóstið á mönn- um var að það átti að hætta að kenna atburða- sögu og það átti ekki að gera öllum þáttum Ís- landssögunnar jafn ítarleg skil og gert hafði verið. Ég var sjálfur reyndar alltaf svolítið und- irgefinn. Maður hafði kynnst pólitík í Þýska- landi þar sem einstaklingurinn hafði ekkert að segja. Maður reyndi að koma að nokkrum góð- um hugmyndum, þannig að þessir ráðamenn og kennarar gætu skilið það. Þetta réðst alltaf af því að það var ráðgjöf undirgefinna meðlima sem kannski var tekið á móti, eða ekki. Þetta var það viðhorf sem maður tók með sér til Ís- lands sem breytingasinni og ég varð reyndar höggdofa yfir vinsemd kennaranna. Jú, sögðu þeir, þetta er vel athugandi. Það átti t.d. við um Gunnar Norland, sem var mjög gott að tala við. Það var ósköp lítil mótstaða við þessar nýju hugmyndir fyrstu árin, eða þar til menn fóru að deila um sögukennsluna. Og þá fóru líka ýmsir að taka eftir hugmyndum sem þeim þóttu fram- andi, svo sem að kenna íslenskum börnum um líf Ínúíta á Grænlandi og fleira í þeim dúr.“ Ég man að löngu seinna skrifaði ágætur skólamaður að þessar hugmyndir sem þú og þessi stóri samstarfshópur sem með þér vann voruð að koma á framfæri, hafi í raun verið hug- myndir sem nú þykja nánast sjálfsagðar í kennslu. Var þetta ekki einmitt þannig? „Jú, um miðan áttunda áratuginn fannst mönnum þetta mikil og mjög umdeilanleg breyting. En þetta var náttúrlega einskorðað við það þroskastig sem slík umræða gat verið á á Íslandi á þessum tíma. En sá möguleiki að nemendur og kennarar gætu talað saman og deilt með sér hugmyndum um breytingar, þetta var nýjung.“ Reyndu að finna einkennin 1976 byrjar þú á mikilli langtímarannsókn á þroskaferli íslenskra skólabarna, þ.e. uppruna vitsmuna, siðgæðis og persónuþroska. Þá varstu reyndar farinn að starfa fyrir Max- Planck-stofnunina í Þýskalandi. Er þessari rannsókn lokið, eða er hún enn í gangi? „Nei, hún hætti fyrr heldur en hún hefði átt að hætta. Ég man nú ekki svo nákvæmlega lengur, af hverju við hættum, en það var skipu- lagslega séð mjög örðugt að halda uppi svona langtímarannsókn, sem hvíldi á herðum tveggja eða þriggja manna í tiltölulega nýrri stofnun hér úti. Þessi vinna mun hafa tekið um það bil 10 ár.“ 1981 verður þú svo forstöðumaður hjá Max- Planck-stofnuninni og tekur þar við stjórn þró- unar- og félagssálfræðisviðs, þannig að þessi rannsókn er unnin á vegum stofnunarinnar. Þú sagðir einhvern tíma í viðtali að þegar farið var að rannsaka þetta unga fólk á Íslandi hefði kom- ið í ljós að það hefði verið mikið um krakka inn- an um sem voru fullir af kvíða og depurð. „Það sem við vorum að gera í þessari rannsókn var að greina á milli dóma um kynslóðina og mats á erfiðum börnum innan þessarar kynslóðar. Við reyndum alltaf að finna einkenni þeirra sem áttu í vanda og líta á þau ein- kenni sem runnin upp úr samfélaginu, án þess að við litum á það sem mat á kynslóðinni. Það voru ákveðnir aðrir hlutir sem réðu mati á kynslóðinni. Það sem var sjálf- sagt áhugaverðast í þessu var að við bárum líf íslensku ungmennanna saman við líf jafnaldra þeirra í öðrum löndum, svo sem í Bandaríkj- unum, Japan og Þýskalandi.“ Svo að við víkjum að öðru, þá væri gaman að heyra, hvað þér sem reyndum skólamanni og uppeldisfræðingi finnst um þá áráttu yfirvalda á Íslandi og reyndar víðar, að stytta framhalds- skólanámið um eitt ár? „Það er ekki skynsamlegt að setja alla undir sama hatt í þessu efni. Þarfir einstaklinganna eru misjafnar innan hverrar kynslóðar. Ég var reyndar aldrei hrifinn af hraðbrautarkerfinu, því mér fannst rangt að gera ákveðna nem- endur að einhvers konar „elítu“. Ég haf alltaf aðhyllst sterk „and-elítu-viðhorf“. Ég vildi að nemendur fengju meira val og meira sjálfræði, í samræmi við getu sína, og kennslan færi meira eftir þörfum þeirra, en það væru ekki teknar ákvarðanir sem gæfu í skyn að við hefðum yfir að ráða réttu mati á öllum.“ Ákveðin vandamál uppi Nú átt þú langan og farsælan feril að baki hjá Max-Planck-stofnuninni. Þú varst um langt ára- bil líka í forsvari fyrir annarri „stofnun“ sem kallar sig „Deutsche Gesesllschaft für Demokratiepädagogik“ eða „félag um lýðræð- islegt uppeldi“. „Já, ég bjó þessa stofnun til. Markmið hennar var í upphafi annað en það sem seinna varð. Ég stofnaði þetta félag sem eins konar framhald af fimm ára vinnu fyrir ráðstefnur menningar- og menntamálráðherra þýsku fylkjanna um sam- ræmdar aðgerðir við skólastjórnun í Þýska- landi. Hvert fylki heldur utan um sín skólamál. Ráðherrarnir hittast hins vegar nokkrum sinn- um á ári. Það höfðu verið ákveðin vandamál uppi um síðustu aldamót sem mennta- málaráðherrarunum fannst ganga nærri skól- unum og skólahaldi, þannig að þeir settu af stað sameiginlega tilraun fylkjanna um eflingu lýð- ræðis í skólum. Ég var beðinn um að taka að mér að samhæfa slíkar aðgerðir á milli þeirra fylkja sem vildu taka þátt í þessari tilraun og koma á samráðsfundum um aukið lýðræði í þýskum skólum. Þetta áttu að vera námsefn- istilraunir í samstarfi við skólastjórnendur og kennara sem hefðu áhuga og væru sannfærðir um að þetta þyrfti að gera. Verkefnið átti sem sagt að fræða nemendur um lýðræðið og efla skilning þeirra á mikilvægi þess og kenna nem- endum lýðræðislega þátttöku í samfélaginu. Þeir áttu sem sagt að verða læsir á lýðræðið og temja sér umburðarlyndi og mótstöðu við of- beldi af öllu tagi. Það átti bæði að gera nem- endur virkari í skólastarfinu sem og að virkja þá til lýðræðislegrar þátttöku á öllum sviðum sam- félagsins. Þetta var töluvert bardagamál, fimm ára átak og maður þurfti að berjast gegn nei- kvæðum og afturhaldssinnuðum stjórn- málamönnum. Þetta var reyndar eina stóra að- gerðin í skólamálum sem ég hef fengið að stýra annars staðar en á Íslandi. Ég bjó náttúrulega yfir reynslunni frá Íslandi og það var einmitt vegna hennar sem ég var beðinn um að stýra þessu verkefni. Þetta verkefni stóð sem sagt í fimm ár og hafði töluverð áhrif á þróun skóla- starfs í nokkrum þýskum fylkjum. Svo kom upp fjármálavandi eins og alltaf gerist í samskiptum fylkjanna í Þýskalandi, þ.e.a.s. deilur um hver á að borga hvað, þannig að þegar þessu verkefni, sem nokkuð margir tóku þátt í, lauk árið 2007, þá stofnaði ég „félag um lýðræðismenntun“ til að halda lífi í þessari hugmynd, svo að hún logn- aðist ekki út af. Ég stofnaði þennan félagsskap í fylkinu sem hafði sýnt verkefninu mesta velvild, í Berlín. Þetta átti að verða eins konar lýðræð- isangi sem gæti dreifst um Þýskaland og það gekk eftir. Við fengum fjárstyrk í félagið frá fjármálastofnun sem var undir stjórn gamals nem- enda míns úr Odenwald- skólanum. Þegar styrk- urinn frá mennta- málaráðherrum fylkjanna brást þá kom hann sem sagt til mín og sagðist vilja að þessu starfi yrði haldið áfram. Félagið hafði það hlutverk að móta og mynda skoðanir á lýðræðinu og koma þeim á framfæri á lýðræðislegan máta í þeim skólum sem við fengum til að taka þátt í verkefninu. Þetta varð samráðsfélag sem gekk mjög vel. Félagið hefur aðsetur sitt í Berlín og hefur m.a. byggt upp mikla bókaskrá, sent frá sér ritað efni og staðið fyrir verkefnum í einum sex eða sjö fylkjum og lifir enn góðu lífi.“ Áttu enga forsögu Það má því segja að lífshugsjón þín hafi alla tíð verið sú að efla og treysta lýðræði og jafnræði í kennslu og skólum. „Já, þó að það hafi auðvitað gengið misjafn- lega. Þjóðverjar áttu enga forsögu á þessu sviði, en á Íslandi hefur þetta lengi verið þekkt að ein- hverju leyti og þar var hefðin fundin upp. Og þegar ég kem fram með þessar hugmyndir hér í Þýskalandi, höfðaði ég til þess að þetta hefði áð- ur verið gert í einu landi í Evrópu, á Íslandi. Þannig varð Ísland fyrirmynd fyrir Þýskaland, sem fyrir árið 2000 var ekki beinlínis opið fyrir því að gera neinar umbætur í skólamálum, eða þangað til þetta verkefni fór af stað með styrk af opinberu fé.“ Það er farið að halla degi þegar ég kveð lýð- ræðisvininn og menntafrömuðinn Wolfgang Edelstein á tröppunum fyrir utan hús hans í Dahlem. Á þeirri stundu órar mig ekki fyrir því að ég muni aldrei framar hitta þennan geð- þekka og merka fræðimann, sem varði hluta starfsævi sinnar í að leggja grunn að því grunn- skólakerfi sem börnin okkar búa við. Og gerði síðan reynsluna frá Íslandi að fyrirmynd lýð- ræðislegra umbóta á skólastarfi víðs vegar um heimaland sitt, Þýskaland. Morgunblaðið/ÞÖK ’ Svo var ég náttúrulegasjálfur þiggjandi jákvæðraskólahátta í Landakoti og íOdenwald-skólanum sér- staklega, og ég þóttist viss um að því yrði vel tekið ef ég reyndi að hafa einhver ráð með skólabætur á Íslandi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.