Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Page 17
Menn hafa verið svo miklar félagsverur að þeir hafa komist hjá því að sitja uppi með sjálfan sig nema ör- skamma stund hvers dags, svo sem á snyrtingunni. En þar hjálpaði að í mörgu var að snúast sem hentaði ekki fyrir fjölmenni. Nú er sagt að veiran vonda nái til þeirra sem hún smitar ekki með því að koma í þá ósýnilegum þræði þunglyndis úr órafjarlægð. Þeir, sem næmastir eru fyrir, geta jafnvel farið verr út úr þessum ve(i)ruleika en hinir sem smitast beint, en þá er ekki verið að tala um öndunarvélar og þaðan af meiri átök. Við þetta afbrigði veirunnar hafa menn ríka þrá og sterkan vilja til að lyfta sér upp. Og þegar flest skemmtilegt er lokað og hálfbjálfalegt að fara um eins og bankaræningi og með bláa hanska vikum saman, er fátt eftir nema skjárinn. „Auðvitað opnar maður ekki tölvupóst frá Kína“ er þreyttasti brandarinn á netinu og hinir eru skammt undan. En þá bregður svo við að á skjánum er ekkert nema endurtekið efni, svo eins mætti sitja undir endurvarpi á útsendingum þríeyk- isins og reyndar er hver þeirra funda nú orðinn með þeim brag og ekki gott við að gera. Tölur um smit, töl- ur um einangrun, tölur um sóttkví og fæstir muna hver er munurinn á þessu tvennu, og rakin smit og ekki rakin smit. Menn voru mældir hundruðum saman eða þúsundum og reyndust sumir neikvæðir, sem auðvitað var jákvætt. En því miður mældust sumir jákvæðir sem var auðvitað neikvætt. En um 9% höfðu fengið bullandi veiru og fengið smitið staðfest og veikin var vond og eftirköstin mikil, en samt voru þessir menn nú mældir neikvæðir sem var auðvitað fjarri því að vera jákvætt og jafnvel allt að því að vera ósvífið. Allt þetta tal er auðvitað ekki hjálplegt fyrir þá sem fengu þung- lyndisveiruafbrigðið sem engin sóttkví eða einangrun virkar gegn. Endurtekið efni endurtekið Það er einmitt þá sem þarf að fá létta dagskrá á skerm- inn. En þar er ekkert nema endurtekið efni. Hercule Poirot er auðvitað frábær, en þegar hver þáttur með honum hefur verið endursýndur 10 sinnum þurfa menn ekki að vera illa haldnir af þunglyndisveirunni til að fara að trúa því að dagskrárstjórar sjónvarpanna séu morðingjar sem starfa í hóp og minnir óþægilega á hópsmit þríeykisins. Hinn síþreytti Wallander, misheppnaður kvenna- bósi, með kulnun í starfi og að minnsta kosti forstig öldrunarsýki og að auki keyrandi fullur, þolir illa tíu endursýningar eða meir. Það myndu jafnvel þeir, sem eru betur fyrir kallaðir, ekki gera heldur. Og sama gildir um fleiri slíka. En það leiðir hugann að því að þeir eru til sem telja fínt að líta niður á þá sem skrifa bækur, sem „lýðurinn“ kaupir af ákefð. Þetta minnir dálítið á stjórnmálamenn og handbendi þeirra innan háskólagirðinganna, sem tala um „popúlistana“. Það er svo sérkennilegt að vinstrisinnaðir fræðimenn háskólanna, sem eru þar í kippum, á meðan aðrar tegundir eru fágætar þar (hví er ekki skrifuð doktorsritgerð um það?) tala mest um popúlista og lýðskrumara. (Komist menn í ham þá endar formúlan undra fljótt óþægilega nærri Adolf, þótt gasofnum sé enn sleppt). Allir íslenskir stjórnmálaflokkar sem eitthvað geta reiða sig algjörlega á spunameistara í aðdraganda kosninga og reyndar sumir árið um kring. En allir þræta þeir fyrir að vera popúlistar, svo ekki sé minnst á skætingsorðið lýðskrumarar. En almennt séð er varla hægt að hugsa sér þrálátari lýðskrum (og þá popúlisma) en þeirra sem telja sér og öðrum trú um að ríkisvaldið geti leyst allra vanda og fé frá því getið komið í staðinn fyrir það sem atvinnulífið skaffar. Auðvitað er það svo að ríkisvaldið getur með láns- trausti sínu og aðkomu seðlabanka „búið til fé“ sem um skamma hríð kemur í veg fyrir að almenningur finni fyrir tekjufalli þjóðarinnar. En tekjurnar hurfu. Það er ekki plat. Nú er reynt að dreifa áfallinu yfir á lengri tíma. Það þýðir, að afkoma þjóðarinnar verður verri sem því nemur eftir að áhrif veiru og veirulokana verða úr sögunni. Vinstri menn trúa (sem er auðvitað dapurlegt) og segja það (sem er í samræmi við meinlokuna) að þeir myndu nota opinbert fé til að bæta öllum allt það sem tapast við það að öllu sé meira eða minna lokað með til- skipunum. Á engum tíma á Íslandi hafa verið á ferðinni aðrir eins popúlistar og lýðskrumarar og þessir og það í orðsins fylltu merkingu. Heimskan er vissulega skýringin. En hún afsakar ekkert. Ekkert. Morgunblaðið/Eggert 16.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.