Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.8. 2020
LÍFSSTÍLL
Hvernig hefur fatastíllinnbreyst eftir að þú varðstólétt?
„Ég er kannski meira í þröngu eft-
ir að kúlan fór að láta bera svolítið
vel á sér en annars er ég að nota mín
föt bara mikið. Ég passa samt upp á
að vera í góðum undirfötum og finnst
það muna miklu. Ég á til dæmis
nokkrar aðhaldsbuxur sem eru hugs-
aðar fyrir kúlur frá Tvö líf sem hafa
komið sér dásamlega vel og halda vel
við bumbuna sem veitir aukin þæg-
indi og svona öryggi einhvern veg-
inn. Annars gerum við ósköp þægi-
legan fatnað hér sem hentar alls
konar vaxtarlögum og þar sem fata-
skápurinn minn samanstendur mest
af flíkum úr eigin verslun og línu þá
er ég ekki búin að breyta miklu
þannig. Það bara passar allt voða vel
enn þá þrátt fyrir að ég sé komin á 7.
mánuð,“ segir Katla.
Einhverjir hafa velt því fyrir sér
hvort þú kæmir með óléttulínu núna
fyrst þú gengur með barn. Hvernig
er staðan á því?
„Já, það eru margir að biðja um
það, en ég sé það strax sjálf að það
einfaldlega þarf ekki. Mjög margt af
því sem við gerum hentar svo mörg-
um og eins og ég segi mismunandi
vaxtalögum enda mjög fjölbreytt
vöruúrval svo hvort sem konur eru
að leita sér að fatnaði til að auka
kvenlegar línur, gera minna úr
magasvæðum, ýkja mitti, vilja
þröngt eða vítt þá erum við með
það! Ég hef ekki þurft að leita
að miklu annars staðar frá
nema þá helst undirfatnaði og
hef einnig tekið ástfóstri við gjafa-
haldarann sem ég fékk einnig frá
Tvö líf. Ég veit ekki hvenær eða
hvort honum verður fórnað, þvílík
þægindi,“ segir hún.
Katla segir að fatastíllinn hafi
kannski ekki breyst mjög mikið eftir
að hún varð ólétt.
„Ég mæli svo sem með því við all-
ar konur, hvort sem þær séu óléttar
eða ekki, að vera í fatnaði sem þeim
líður vel í. Það hefur verið mik-
ilvægur liður í minni vöruhönnun
og þróun alla tíð enda finnst mér
konur langfallegastar þegar
þeim líður vel. Þá geisla þær
hvort sem þær eru óléttar eða
ekki! Ég hef þó ferlega gaman
að því að vera í svolítið
þröngu sérstaklega eftir að
kúlan fór að láta á sér
kræla. Ég er ansi stolt af
þessu litla kraftaverki
okkar sem ég átti hreint
ekki von á, svo það er
voða gaman að rölta
um sposk með bumb-
una út í loftið. Æi má
maður aðeins?“
segir hún og hlær.
Hvernig klæðir
þú þig dags-
daglega?
„Ég er mikið í
leggings og þröng-
um kjólum og leð-
urjakka. Nýju
Nönnukjólarnir hafa einnig komið
sterkir inn upp á síðkastið þar sem
þeir eru einstaklega þægilegir og
léttir og finnst mér geggjað að nota
þá við sæta strigaskó.
Ég á einnig einar óléttugallabuxur
sem ég get parað við alls konar toppa
og skyrtur hvort sem þær eru þröng-
ar eða víðar og hafa komið sér mjög
svo vel alla meðgönguna! Svo upp á
síðkastið hef ég verið að nota mikið
jogginggalla eftir vinnu þar sem ég
og kærastinn erum að taka í gegn
hæð og ris frá 1952 og þar er það
skítagallinn sem tekur völdin. Það er
ekki eitt heldur allt,“ segir Katla.
Hver er þín tískufyrirmynd?
„Ég hef alltaf elskað Michelle Has-
well sem heldur úti blogginu King-
dom of Style. Hún
er óhrædd í fata-
vali og blandar
skemmtilega
nýju og gömlu
saman og fer
algjörlega sín-
ar eigin leiðir!
As-
hley Graham er líka yndisleg og
kann svo sannarlega að klæða sínar
fallegu curvy-línur og Sammi Jef-
coate sem er algjör nagli, hún er
hrikalega flottur stílisti sem blandar
saman rokki og 50́s pinup-stíl snilld-
arlega!“
Hver er best klædda kona Íslands
að þínu mati?
„Mér finnst Andrea Magnúsdóttir,
AndreabyAndrea, alltaf óþolandi
mikil skvísa sem og Lovísa Tóm-
asdóttir fatahönnuður, hún er ung og
mikill töffari sem mig grunar að eigi
eftir að gera stórkostlega hluti í
framtíðinni!“
Dreymir þig um eitthvað í fata-
skápinn?
„Ég væri til í að eiga betra skó-
úrval en öfugt við margar konur
finnst mér ekkert sérstaklega
skemmtilegt að kaupa mér skó.
Ég þyrfti samt að herða mig svo-
lítið þar því mig langar að eiga
fjölbreyttara úrval!“
Hver er þín uppáhaldsflík?
„Ein mest notaða flíkin mín
þessa dagana er leðurjakki sem ég
keypti mér í vintage-búð í Berlín. Ég
nota hann við allt og ekkert og
finnst hann passa vel við kjóla
sem gallabuxur.“
Um áramótin urðu tölu-
verðar breytingar á versl-
uninni Systur& makar.
Katla rak verslunina með
systur sinni, Maríu Kristu,
en um áramótin ákvað hún
að halda út á aðrar brautir.
„Við systur vorum búnar
að reka verslunina Systur
& makar í 5 ár þó svo fata-
merkið mitt; Volcano Design,
sé orðið að 12 ára gömlum
unglingi. Um áramótin ákvað
María systir að einbeita sér
meira að ketó mataræðinu
sem hennar starf snýst að
mestu leyti um í dag. Hún
heldur úti svakalega vin-
sælli síðu, www.mar-
iakrista.com, sem og
@kristaketo á Instagram
enda sérfræðingur í
þessu mataræði og það
er erfitt að sinna mörg-
um „brönsum“ í einu.
Ég tók því alfarið yfir
reksturinn á versl-
uninni um áramótin,
flutti saumastofuna í
sama húsnæði og
verslunin í Síðumúla 21
til að einfalda allt utanumhald og
næ því að sinna verslun og sauma-
stofu á sama tíma. Ég réð mér
einnig inn frábæran fatahönnuð
sem er að koma virkilega sterk inn.
Hún starfar eins og „önnur ég“ svo
ég næ sjálf að dreifa mínum verk-
efnum betur á milli, sem veitir ekki
af núna í bumbustússinu. Þannig að
þótt þetta hafi verið svona ákveðið
„end of an era“ milli okkar systra þá
fáum við nú að vera systur aftur, ekki
bara rekstrarfélagar, og njótum þess
í botn. Breytingar þurfa ekki að vera
af hinu versta og þrátt fyrir frábært
Katla var mikið spurð að því hvort hún ætlaði ekki að hanna sérstaka óléttu-
línu en hún segir að línan hennar sé þannig að hún passi bæði fyrir óléttar og
fyrir þær sem ganga ekki með barn.
Elskar að vera ólétt
Katla Hreiðarsdóttir fatahönnuður og eigandi verslunarinnar Systur og makar
er komin 31 viku á leið eða um sjö mánuði. Hún elskar að vera ólétt og nýtur
þess í botn að klæða sig fallega. Hún segir að kórónuveiran hafi haft mikil áhrif
á fyrirtækjarekstur hennar en hún er þó full bjartsýni enda á hún von á einu og
hálfu tonni af efnum til landsins sem bíður þess að verða að fallegum flíkum.
Marta María mm@mbl.is
Katla er mikið í þessum
leðurjakka sem hún keypti í
Berlín. Hann passar við allt
að hennar mati.
Katla er hér í gulum
samfestingi sem hún
hannaði sjálf.