Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.8. 2020 LÍFSSTÍLL Hvernig hefur fatastíllinnbreyst eftir að þú varðstólétt? „Ég er kannski meira í þröngu eft- ir að kúlan fór að láta bera svolítið vel á sér en annars er ég að nota mín föt bara mikið. Ég passa samt upp á að vera í góðum undirfötum og finnst það muna miklu. Ég á til dæmis nokkrar aðhaldsbuxur sem eru hugs- aðar fyrir kúlur frá Tvö líf sem hafa komið sér dásamlega vel og halda vel við bumbuna sem veitir aukin þæg- indi og svona öryggi einhvern veg- inn. Annars gerum við ósköp þægi- legan fatnað hér sem hentar alls konar vaxtarlögum og þar sem fata- skápurinn minn samanstendur mest af flíkum úr eigin verslun og línu þá er ég ekki búin að breyta miklu þannig. Það bara passar allt voða vel enn þá þrátt fyrir að ég sé komin á 7. mánuð,“ segir Katla. Einhverjir hafa velt því fyrir sér hvort þú kæmir með óléttulínu núna fyrst þú gengur með barn. Hvernig er staðan á því? „Já, það eru margir að biðja um það, en ég sé það strax sjálf að það einfaldlega þarf ekki. Mjög margt af því sem við gerum hentar svo mörg- um og eins og ég segi mismunandi vaxtalögum enda mjög fjölbreytt vöruúrval svo hvort sem konur eru að leita sér að fatnaði til að auka kvenlegar línur, gera minna úr magasvæðum, ýkja mitti, vilja þröngt eða vítt þá erum við með það! Ég hef ekki þurft að leita að miklu annars staðar frá nema þá helst undirfatnaði og hef einnig tekið ástfóstri við gjafa- haldarann sem ég fékk einnig frá Tvö líf. Ég veit ekki hvenær eða hvort honum verður fórnað, þvílík þægindi,“ segir hún. Katla segir að fatastíllinn hafi kannski ekki breyst mjög mikið eftir að hún varð ólétt. „Ég mæli svo sem með því við all- ar konur, hvort sem þær séu óléttar eða ekki, að vera í fatnaði sem þeim líður vel í. Það hefur verið mik- ilvægur liður í minni vöruhönnun og þróun alla tíð enda finnst mér konur langfallegastar þegar þeim líður vel. Þá geisla þær hvort sem þær eru óléttar eða ekki! Ég hef þó ferlega gaman að því að vera í svolítið þröngu sérstaklega eftir að kúlan fór að láta á sér kræla. Ég er ansi stolt af þessu litla kraftaverki okkar sem ég átti hreint ekki von á, svo það er voða gaman að rölta um sposk með bumb- una út í loftið. Æi má maður aðeins?“ segir hún og hlær. Hvernig klæðir þú þig dags- daglega? „Ég er mikið í leggings og þröng- um kjólum og leð- urjakka. Nýju Nönnukjólarnir hafa einnig komið sterkir inn upp á síðkastið þar sem þeir eru einstaklega þægilegir og léttir og finnst mér geggjað að nota þá við sæta strigaskó. Ég á einnig einar óléttugallabuxur sem ég get parað við alls konar toppa og skyrtur hvort sem þær eru þröng- ar eða víðar og hafa komið sér mjög svo vel alla meðgönguna! Svo upp á síðkastið hef ég verið að nota mikið jogginggalla eftir vinnu þar sem ég og kærastinn erum að taka í gegn hæð og ris frá 1952 og þar er það skítagallinn sem tekur völdin. Það er ekki eitt heldur allt,“ segir Katla. Hver er þín tískufyrirmynd? „Ég hef alltaf elskað Michelle Has- well sem heldur úti blogginu King- dom of Style. Hún er óhrædd í fata- vali og blandar skemmtilega nýju og gömlu saman og fer algjörlega sín- ar eigin leiðir! As- hley Graham er líka yndisleg og kann svo sannarlega að klæða sínar fallegu curvy-línur og Sammi Jef- coate sem er algjör nagli, hún er hrikalega flottur stílisti sem blandar saman rokki og 50́s pinup-stíl snilld- arlega!“ Hver er best klædda kona Íslands að þínu mati? „Mér finnst Andrea Magnúsdóttir, AndreabyAndrea, alltaf óþolandi mikil skvísa sem og Lovísa Tóm- asdóttir fatahönnuður, hún er ung og mikill töffari sem mig grunar að eigi eftir að gera stórkostlega hluti í framtíðinni!“ Dreymir þig um eitthvað í fata- skápinn? „Ég væri til í að eiga betra skó- úrval en öfugt við margar konur finnst mér ekkert sérstaklega skemmtilegt að kaupa mér skó. Ég þyrfti samt að herða mig svo- lítið þar því mig langar að eiga fjölbreyttara úrval!“ Hver er þín uppáhaldsflík? „Ein mest notaða flíkin mín þessa dagana er leðurjakki sem ég keypti mér í vintage-búð í Berlín. Ég nota hann við allt og ekkert og finnst hann passa vel við kjóla sem gallabuxur.“ Um áramótin urðu tölu- verðar breytingar á versl- uninni Systur& makar. Katla rak verslunina með systur sinni, Maríu Kristu, en um áramótin ákvað hún að halda út á aðrar brautir. „Við systur vorum búnar að reka verslunina Systur & makar í 5 ár þó svo fata- merkið mitt; Volcano Design, sé orðið að 12 ára gömlum unglingi. Um áramótin ákvað María systir að einbeita sér meira að ketó mataræðinu sem hennar starf snýst að mestu leyti um í dag. Hún heldur úti svakalega vin- sælli síðu, www.mar- iakrista.com, sem og @kristaketo á Instagram enda sérfræðingur í þessu mataræði og það er erfitt að sinna mörg- um „brönsum“ í einu. Ég tók því alfarið yfir reksturinn á versl- uninni um áramótin, flutti saumastofuna í sama húsnæði og verslunin í Síðumúla 21 til að einfalda allt utanumhald og næ því að sinna verslun og sauma- stofu á sama tíma. Ég réð mér einnig inn frábæran fatahönnuð sem er að koma virkilega sterk inn. Hún starfar eins og „önnur ég“ svo ég næ sjálf að dreifa mínum verk- efnum betur á milli, sem veitir ekki af núna í bumbustússinu. Þannig að þótt þetta hafi verið svona ákveðið „end of an era“ milli okkar systra þá fáum við nú að vera systur aftur, ekki bara rekstrarfélagar, og njótum þess í botn. Breytingar þurfa ekki að vera af hinu versta og þrátt fyrir frábært Katla var mikið spurð að því hvort hún ætlaði ekki að hanna sérstaka óléttu- línu en hún segir að línan hennar sé þannig að hún passi bæði fyrir óléttar og fyrir þær sem ganga ekki með barn. Elskar að vera ólétt Katla Hreiðarsdóttir fatahönnuður og eigandi verslunarinnar Systur og makar er komin 31 viku á leið eða um sjö mánuði. Hún elskar að vera ólétt og nýtur þess í botn að klæða sig fallega. Hún segir að kórónuveiran hafi haft mikil áhrif á fyrirtækjarekstur hennar en hún er þó full bjartsýni enda á hún von á einu og hálfu tonni af efnum til landsins sem bíður þess að verða að fallegum flíkum. Marta María mm@mbl.is Katla er mikið í þessum leðurjakka sem hún keypti í Berlín. Hann passar við allt að hennar mati. Katla er hér í gulum samfestingi sem hún hannaði sjálf.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.