Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Qupperneq 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Qupperneq 19
16.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 samstarf síðustu 5 ár sem okkur þyk- ir alveg einstaklega vænt um báðum þá erum við líka að fá að njóta þess að starfa aftur hvor í sínu lagi við okkar fög. Þess má einnig geta að Krista Design er hvergi nærri hætt og held ég áfram að selja vörur frá systu í búðinni þótt það sé í aðeins minni mæli en áður,“ segir Katla. Hefur kórónuveiran haft einhver áhrif á fyrirtækj- arekstur þinn? „Já, við lokuðum um tíma og sam- hliða saumastofu og verslunar- rekstrinum held ég úti veislusal og leigi út sumar- bústað. Þetta hafði þónokkur áhrif á allar útleigur og auðvitað fundum við mun í versl- uninni. Það var þó með mikilli hjálp minna starfsmanna sem við náðum að auka sölu á netverslun og skutl- uðum mikið pöntunum heim til fólks á höfuðborgarsvæðinu. Eins erfiður og dramatískur sem þessi tími hefur verið fyrir marga tel ég margt gott hafa fylgt í kjölfarið. Mér finnst ég finna fyrir meiri náungakærleik, fólk einbeitir sér að því að eyða betri gæðastundum með sínum nánustu og sýnir almennt meiri skilning og hug- ulsemi. Ég hef ekki heyrt eina mann- eskju kvarta yfir því að komast ekki í frí eða ferðir erlendis heldur fókusar á það sem skiptir máli núna, nýtur þess að skoða landið okkar, styrkja staðbundnar verslanir og það er á tímum sem þessum sem maður verð- ur meir og stoltur af því að vera Ís- lendingur. „Þetta reddast“ eins og eru einkunnarorð okkar eru orð að sönnu í mörgu sem tengist afleið- ingum svona ástands, ég fann það alla vega í mínum rekstri að bæði starfsmenn og kúnnar stóðu svo sannarlega saman og fyrir það verð ég ávallt þakklát og auðmjúk!“ Hvernig leggst veturinn í þig? „Í einu orði: guðdómlega! Það eru svakalega spennandi tímar fram undan hjá mér og mínum! Núðlan er áætluð í heiminn 14. októ- ber sem er mikið tilhlökkunarefni. Það er allt á milljón í versluninni og nýjar vörur fæðast þar nánast dag- lega sem og við eigum von á tæplega einu og hálfu tonni af efnum til lands- ins svo það er nóg að gera þar og sal- an eykst jafnt og þétt! Einnig erum við Haukur, kærastinn minn, að taka í gegn nýja heimilið okkar í hjarta Hafnarfjarðar, en þar er að mörgu að huga enda ófá handtökin fram und- an. Ég hef fulla trú á að við snúum vörn í sókn og komumst yfir þetta ástand saman og ég horfi bjartsýn og jákvæð til framtíðar, þýðir nokkuð annað? Morgunblaðið/Kristinn Magnúss. Katla hefur gaman að því að klæða sig fallega. Hún er mikið í kjólum. ’ Ég er ansi stolt afþessu litla krafta-verki okkar sem ég áttihreint ekki von á, svo það er voða gaman að rölta um sposk með bumbuna út í loftið. Æi má maður aðeins?“ Von er á barninu í október og segist Katla vera mjög spennt.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.