Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Síða 29
gengur. Tilgangur þessarar greinar
er að rifja nokkrar af þeim bitastæð-
ustu upp og kanna hvort þið, les-
endur góðir, munið enn þá eftir
þeim. Og eftir atvikum fleyta þeim
aftur inn í líf ykkar ef þið voruð búin
að gleyma þeim.
Hver skaut Joð Err?
Alræmdasta aukapersónan í Dallas
er án efa Kristin M. Shepard; sú sem
skaut og særði Joð Err í lok þriðju
seríu. Óhætt er að kalla það fræg-
asta „cliffhanger“ sjónvarpssög-
unnar. Hinn siðmenntaði heimur
engdist um og leið vítiskvalir sumar-
langt af forvitni, þar til svarið fékkst
um haustið. Hér í efri byggðum vor-
um við reyndar einhverjum miss-
erum á eftir en það breytti litlu enda
gúgglið ekki komið til sögunnar og
fokdýrt að hringja vestur um haf til
að spyrja frétta. Flosi Ólafsson gerði
þó heiðarlega tilraun til að draga
sannleikann upp úr Cliff Barnes,
þegar kappinn kom hingað í boði
SÁÁ, en allt kom fyrir ekki.
Kristin þessi var yngri systir Sue
Ellenar, eiginkonu Joð Err, og frilla
hans um tíma. Hún var nemi í arki-
tektúr þegar hún kom fyrst til skjal-
anna en Joð Err gerði hana að ritara
sínum og notaði hana óspart til að
draga mögulega viðskiptamenn sína
á tálar. Eftir það voru þeir að vonum
eins og bráðið smjer í höndunum á
hinum ósvífna olíujöfri.
Næst komum við að kúrekanum
knáa Dusty Farlow, ástmanni Sue
Ellenar til langs tíma. Hann var
skörp andhverfa Joð Err; ljúfmenni
og drengur góður og Sue Ellen yfir-
gaf bónda sinn um tíma fyrir hann.
Skömmu síðar lenti Dusty í flug-
slysi; var upphaflega talinn af en
reyndist vera á lífi og lamaður. Eftir
það fjaraði undan sambandi þeirra
Sue Ellen fyrir þær sakir að Dusty
þótti hún eiga betra skilið í þessu lífi
en að annast um hann. Hann fékk að
vísu fótmáttinn á ný en þá reis nýtt
vandamál; Dusty var getulaus. Loks
var fullreynt með samband þeirra
Sue Ellenar og hún sneri aftur til
Joð Err. Einhver gæti þó með rök-
um haldið því fram að Dusty hafi
verið stóra ástin í lífi hennar.
Dusty var sem kunnugt er sonur
Claytons Farlow, sem varð seinni
eiginmaður Miss Ellie og flutti inn á
Southfork, Joð Err til ofboðslega af-
markaðrar gleði.
Látum okkur nú sjá, hvað viljið
þið meira? Eigum við að segja Afton
Cooper? Já, endilega. Hún tengdist
Ewingunum gegnum Lucy; var syst-
ir eiginmanns hennar, Mitch Coo-
per. Eins og svo margar kven-
persónur í Dallas átti Afton til
skamms tíma í ástarsambandi við
Joð Err. Lengst af var hún þó heit-
mey Cliff Barnes sem alla tíð átti
vont með að skuldbinda sig. Upp úr
sambandi þeirra flosnaði líka á end-
anum eftir að Afton sló í gegn sem
söngkona. Eftir sambandsslitin ól
Afton Cliff dóttur sem hann vissi
ekki um til að byrja með. Þegar
hann fékk veður af barninu neitaði
Afton á hinn bóginn að hann væri
faðirinn. Nafnið kom þó illilega upp
um hana en dóttirin var vatni ausin
og látin heita Pamela Rebecca í höf-
uðið á móður Cliffs og systur. Kenn-
ir manni það, að ætli maður að fela
barn fyrir föður þess þá er líklega
affarasælast að skíra það ekki í höf-
uðið á hans nánustu. Það vekur óhjá-
kvæmilega grunsemdir.
Talandi um faðernismál þá muna
ugglaust hörðustu Dallas-aðdáendur
að Digger Barnes var bara blóðfaðir
Cliffs en ekki Pamelu. Eiginlegur
faðir hennar var viðhald Rebeccu,
Hutch McKinney, kaupamaður hjá
Jock og Miss Ellie Ewing, sem Dig-
ger drap með byssunni hans Jocks
og gróf á landareign Southfork. Lík-
ið fannst ekki fyrr en löngu síðar og
var Jock þá tekinn höndum. Gömul
samviska tók sig hins vegar upp hjá
Diggernum á dánarbeðinum og
hann gekkst við glæpnum. Og Jock
var hólpinn.
Brá meira í móðurkynið
Það voru ekki bara friðlar og frillur
á kantinum í Dallas. Flestir muna
sjálfsagt að Joð Err og Bobby áttu
bróður, Gary, sem flutti ungur að
heiman enda þótti föður hans, Jock,
honum bregða meira í móðurkynið
og leit fyrir vikið á hann sem veikan
hlekk. Gary batt sitt trúss snemma
við Bakkus konung og átti erfiða ævi
en eftir að faðir þeirra féll frá sá Joð
Err samviskusamlega um að halda
honum niðri. Hann skaut þó annað
veifið upp kollinum í þáttunum og
hlýtt var milli þeirra Bobbys enda sá
síðarnefndi mannvinur af gamla
skólanum. Frægastur er Gary þó
líklega fyrir að vera faðir hinnar táp-
miklu Lucyar sem ólst upp hjá
ömmu sinni og afa á Southfork.
Eiginkona Garys, Valene, kom
einnig annað veifið við sögu í þátt-
unum. Til að byrja með voru þau
skilin en náðu saman á ný. Þau
skötuhjú enduðu loks í sinni eigin
sápu, Knots Landing, sem vann
aldrei hylli lýðsins hér um slóðir.
Gary var skírður í höfuðið á móð-
urbróður sínum, Garrison South-
worth, einkabróður Miss Ellie, sem
talið var að hefði farist í heimsstyrj-
öldinni síðari. Garrison reyndist á
hinn bóginn sprelllifandi sem hafði
heilmiklar flækjur í för með sér, þar
sem hann var eldri og gat fyrir vikið
gert tilkall til Southfork. Miss Ellie,
höfðinginn sem hún var, bauð bróð-
ur sínum raunar búgarðinn en hann
afþakkaði eftir að hafa verið móðg-
aður heiftarlega af þið vitið hverjum.
Garrison var á þessum tíma dauð-
vona og féll frá skömmu síðar, eftir
að hafa búið undir það síðasta hjá
systur sinni á Southfork.
Blessuð sé minning hans.
16.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
KVIKMYND Knattspyrnumað-
urinn fyrrverandi Paul Gascoigne
segir í samtali við breska blaðið
Daily Mail að til standi að gera
leikna kvikmynd um ævi hans og
feril. Kveðst hann fús að aðstoða
við verkið sem byggjast mun á
endurminningum hans. „Ég hef
ekkert að fela. Þetta hefur allt ver-
ið í fjölmiðlum, bæði það góða og
slæma,“ segir Gascoigne sem lifað
hefur afar litríku lífi og lengi glímt
við alkóhólisma. Ekki liggur fyrir
hver mun leika kappann.
Leikin mynd um líf Gascoignes
Paul Gascoigne var snjall á velli.
AFP
BÓKSALA 5.-11. ÁGÚST
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Þorpið Camilla Sten
2 Sumar í París Sarah Morgan
3 Vegahandbókin 2020 Steindór Steindórsson o.fl.
4 Sjáðu mig falla Mons Kallentoft
5
Handbók fyrir ofurhetjur 5
– horfin
Elias/Agnes Vahlund
6 Tíbrá Ármann Jakobsson
7 Mitt ófullkomna líf Sophie Kinsella
8
Kennarinn sem hvarf
sporlaust
Bergrún Íris Sævarsdóttir
9 Gegnum vötn, gegnum eld Christian Unge
10 Hálft hjarta Sofia Lundberg
1 Fjallaverksmiðja Íslands Kristín Helga Gunnarsdóttir
2 Óðal óttans Einar Þorgrímsson
3 Brennan á Flugumýri Anna Dóra Antonsdóttir
4
Harry Potter og bölvun
barnsins
J.K. Rowling
5 Rotturnar Ragnheiður Eyjólfsdóttir
6 Hvísl hrafnanna 1 Malene Sølvsten
7 Þrettán Friðrik Erlingsson
8 Hin ódauðu Johan Egerkranz
9 Pax 1 – níðstöngin Åsa Larsson/Korsell/Jonsson
10 Sölvasaga unglings Arnar Már Arngrímsson
Allar bækur
Ungmennabækur
„11. júní 1928. Ég elska sögur.
Áður en ég hóf sjálf að skrifa
þær, skipti ég gjarnan raunveru-
leikanum út fyrir skáldskap.“
Svo hljóða síðustu línurnar sem
ég las í gær áður en ég lagði bók
mína á náttborðið og féll inn í
arma Morfeusar.
Setningin er úr
Dagbók frönsku
skáldkonunnar
Mireille Havet
(1898-1932). Ha-
vet er ein þeirra
merku kvenna í
sögunni sem
hlaut ekki verð-
skuldaða athygli á meðan hún
lifði og féll fljótt í gleymsku eftir
stutta, en viðburðaríka og skap-
andi, ævi. Áhugi á lífi hennar og
list vaknaði á ný í kringum alda-
mótin 2000 þegar gríðarstórt
safn dagbókaskrifa Havet fannst.
Ég veit ekki til þess að bæk-
urnar hafi verið
þýddar yfir á önn-
ur tungumál, og
þar sem franskan
er mér enn ekki
alkunn blaða ég
löturhægt í bók-
inni með hjálp
Google Translate
og Snöru. Lest-
urinn er furðu ánægjulegur, mér
líður eins og ég þurfi að vinna
mér inn hverja einustu setningu,
en það gerir þetta að eins konar
leikspili sem ég spila við sjálfa
mig fyrir svefn.
Á náttborðinu er yfirleitt sjö
til átta bókum staflað hverri of-
an á aðra. Bókafjallið sam-
anstendur oftast af óskálduðu
efni; ritgerðum, sjálfsævisögum
eða persónulegum skrifum. Nú
er það Mireille Havet sem trón-
ir á toppi bókafjallsins, undir
henni liggur rúmenski hugsuður-
inn E. M. Cioran með níhílískar
ritgerðir sínar um tilvist manns-
ins (The Trouble With Being
Born, 1973), á eftir honum
koma tveir doðr-
antar sem verka
sem eins konar
burðarás fjallsins;
annars vegar
minnisbækur
Simone Weil og
hins vegar rit-
gerðir Michel de
Montaigne. Þeim
ritum skipti ég sjaldnast út úr
fjallinu enda toga þau í mig á
nokkurs konar trúarlegan máta,
verð alltaf að hafa þær í nálægð
við höfuðgafl rúmsins.
Við rætur bókafjallsins liggur
síðan um þessar mundir ævisaga
fjöllistakonunnar Evu Palmer
Sikelianos (1874-1952), A Life In
Ruins. Lífi sínu lifði hún sem vís-
vitandi tímaskekkju. Hennar
innri hugarheimur, drifkraftur
og hjarta virðist hafa verið uppi
einhvern tímann fyrir Krist,
sömuleiðis ytri ásýndin sem
ávallt var í samræmi við fag-
urfræði, hugsun og hefðir Forn-
Grikkja. Anakrónismi í lifanda
lífi! Ég hugsa að persónuleg
tímaskekkja hvers og eins hel-
taki mig á sama máta og trúar-
brögð og töfrar.
ANNA GYÐA ER AÐ LESA
Persónuleg tímaskekkja
heltekur mig
Anna Gyða
Sigurgísladóttir
er dag-
skrárgerð-
arkona á Rás 1.