Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Síða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Síða 32
SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 2020 „Við stóðum í flutningum og þar sem ég er fjórði ættliður bókavarða og með ákveðna tilhneigingu til að safna og flokka; hvort sem það eru bækur, frímerki, blöð eða annað, þá stóð ég frammi fyrir því að taka með býsna marga kassa og krafan um að grisja var skýr,“ segir Pétur Blöndal, fram- kvæmdastjóri Samáls. Hann kveðst hafa verið svo heppinn að hafa haft umsjón með SunnudagsMogganum sáluga allan lífaldur þess blaðs frá 2009 til 2012 og átti eintak af hverju einasta tölublaði. „Eftir að hafa velt vöngum yfir því hvað ég ætti að gera við þessi blöð var niðurstaðan sú að veggfóðra gestabaðið á nýja heimilinu, veggina, loftið og hurðina, og mér til mikillar undrunar féllst Anna Sigga [eiginkona Péturs] á þau áform. Það tók sig því upp gamall ritstjóri og ég ritstýrði baðherberginu.“ Að sögn Péturs var það ekki lítil vinna; að pauf- ast gegnum blöðin og velja efni sem tæki sig vel út á baðinu en það hafðist á endanum. Aldrei er þó að vita nema hann eigi eftir að skipta um efni er fram líða stundir enda af nógu að taka. „Þarna er margvíslegt efni eftir blaðamenn og ljósmynd- ara Morgunblaðsins, meðal annars fastir þættir sem halda gildi sínu enn þá. Nefni ég í því sam- bandi þættina Sagan bak við myndina eftir RAX og Stígið í vænginn eftir Kristínu Heiðu Krist- insdóttur.“ Spurður hvort „sýningin“ standi almenningi op- in skellir Pétur upp úr og svarar: „Hafi fólk áhuga er því alveg frjálst að hringja bjöllunni.“ Moggfóðraði gestabaðið Ekki mun skorta lesefni fyrir gesti á baðherbergi Péturs. Gallerí SunnudagsMoggi opnað á gestabaðinu heima hjá Pétri Blöndal. „Annars er ekki hægt að segja annað, þegar maður lítur til baka yfir ys og þys síldaráranna, en að allt hafi gengið snurðu- laust fyrir sig. Menn fengu sér að vísu stundum í staupinu þegar þeir voru í landi, en það voru af- ar sjaldan nein vandræði.“ Þetta sagði Sigurjón Scheving, eini lögreglumaðurinn á Reyðar- firði, í þættinum „Blaðamenn Morgunblaðsins á ferð um land- ið“ á þessum degi 1970. Í sam- talinu kom fram að fjör síldarár- anna væri úti en þegar mest var voru yfir 100 bátar í höfn í einu. Sigurjón var beðinn um að rifja upp sögur frá þessum líflega tíma og kom þá þessi um hávaða að næturlagi: „Ég fór að aðgæta þetta og sá að nokkuð frá húsinu voru um 10 menn sem áttu greinilega í útistöðum hver við annan. Mér var um og ó að fara að skipta mér af þessu, en lét mig þó hafa það. Reyndust þá mennirnir vera skipsfélagar sem höfðu orð- ið ósáttir. Bað ég þá að hafa nokkru lægra, og ef þeir þyrftu að gera einhver mál upp sín á milli þá væri ágætt að þeir færðu sig dálítið neðar í götuna, þar sem fólk væri farið að sofa. Vék einn þeirra félaga sér þá að mér og var sá stór og mikill rumur. Lýsti sá því yfir, að það mundi auðvelt að berja mig. Ég sagði honum að það væri sennilega ekkert gaman að slá mig, því sennilega lægi ég strax. Honum fannst þetta nú ekki sem verst röksemd og fórum við að ræða málið í bróðerni. Endaði þetta með því að við gengum allir nið- ur á bryggjuna og þá sagði sá er hafði áhuga á að berja mig, að sennilega væri ég ágæt lögga og ég skyldi bara kalla á sig, ef ég þyrfti á aðstoð að halda í fram- tíðinni. Til þess kom nú ekki, en ég býst við því að þessi ágæti maður hefði staðið við orð sín.“ GAMLA FRÉTTIN Sennilega ekkert gaman að slá mig Sigurjón Scheving lögreglumaður. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Einar Þorsteinsson fréttamaður Tómas Guðni Eggertsson organisti David Beckham knattspyrnumaður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.