Morgunblaðið - 05.09.2020, Side 8

Morgunblaðið - 05.09.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020 Hægindastóll model 7910 Leður – Verð frá 439.000,- NJÓTTU ÞESS AÐ SLAKA Á Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði. Umsvif hins opinbera og inngriperu orðin afar mikil og hafa víðtækar aukaverkanir sem oft gleymast. Þegar hvatt er til hækk- unar styrkja vegna húsaleigu eða húsnæðis- kaupa gleymist til að mynda iðulega að slíkir styrkir hækka leigu- verð og hús- næðisverð. Hærri húsaleigubætur renna þannig, í það minnsta að hluta til, í vasa leigusalans. Hús- næðisstyrkir af ýmsu tagi hafa sambærileg áhrif. Þegar fjármagn til húsnæðiskaupa er aukið, eða það gert ódýrara með lækkun vaxta, þá hefur það, að öðru óbreyttu, þau áhrif að húsnæð- isverð hækkar.    Í fyrrakvöld samþykkti Alþingifrumvarp til laga um hlutdeild- arlán sem ætlað er að aðstoða tekjulága við að eignast eigið hús- næði. Þetta er eðlilegt markmið enda æskilegt að sem flestir eigi húsnæði, njóti með því þess öryggis sem fylgir því að búa í eigin fast- eign, og verði eignamenn, þó að þeir skuldi yfirleitt talsvert í eign- inni fyrst í stað.    Um leið og eignamyndunin erjákvæð er nauðsynlegt að skilningur ríki á því að þessi inn- grip hafa, að öðru óbreyttu, áhrif á eignaverð. Þetta er sérstaklega umhugsunarvert þegar borgaryf- irvöld hafa haldið eignaverði uppi með þéttingarstefnu sinni.    Eins og fram hefur komið á aðreyna að koma í veg fyrir þessi hækkunaráhrif með því að auka framboð. Það breytir því þó ekki að hlutdeildarlánin hafa, líkt og aðrar slíkar aðgerðir og að öðru óbreyttu, þau áhrif að hækka húsnæðisverð. Opinber afskipti hafa alltaf áhrif STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Nýtt hjólastæði Reykjavíkurborgar, sem finna má við stoppistöð strætó við Miklubraut, virðist heldur betur hafa slegið í gegn hjá viðskipta- vinum Kringlunnar því það er oftar en ekki yfirfullt af verslunarkerrum og -körfum. Minna fer þó fyrir reiðhjólum í hjólastæðinu. Búið er að setja upp samskonar hjólastæði við minnst fimmtán strætóstoppistöðvar í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá borg- inni eiga stæðin að tengja saman strætó og hjólreiðar og mun greining hafa verið unnin til að finna hvar helst væri þörf á svona stæðum. khj@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Kerrur og körfur fylla hjólastæðin Brunavarnir Rangárvallasýslu hafa fært sig í nýtt og glæsilegt húsnæði í Dynskálum 49 á Hellu. Húsið er 400 fermetrar að stærð og leysir af hólmi 120 fermetra húsnæði sem Brunavarnir hafa haft til afnota frá árinu 1969. „Þetta er bylting í aðstöðu fyrir slökkviliðið. Starfsemin var fyrir löngu búin að sprengja utan af sér gamla húsnæðið. Það var auk þess í íbúðargötu sem er alls ekki gott þeg- ar farið er í útköll,“ segir Hjalti Tómasson sem sæti á í stjórn Bruna- varna Rangárvallasýslu. Brunavarn- ir eru í eigu þriggja sveitarfélaga og eru með aðra slökkvistöð á Hvols- velli. Nýja aðstaðan uppfyllir allar kröf- ur sem nú eru gerðar til slökkvi- stöðvar. Þar er meðal annars góð búningsaðstaða, salur til námskeiða- halds og stórt útisvæði sem notað verður við umfangsminni æfingar. Nýja slökkvistöðin er í útjaðri Hellu. Hjalti segir að hún auki mjög öryggi íbúa og gesta Rangárvalla- sýslu. Þá telur hann að hún verði lyftistöng fyrir slökkviliðið. Húsið hefur verið tekið í notkun en formleg opnun verður látin bíða betri tíma. helgi@mbl.is Framfarir Nýja slökkvistöðin er í húsi sem keypt var á Hellu og innréttað fyrir slökkvilið. Aðstaða slökkviliðsins stórbatnar við flutning þangað. Ný slökkvistöð í notkun á Hellu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.