Morgunblaðið - 05.09.2020, Side 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020
Boðið er upp á einkaskoðun og fólk vinsamlegast beðið um að
hafa samband í síma 898-9396 eða á hakon@valfell.is
og panta tíma til skoðunar.
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími: 570 4824 | hakon@valfell.is | valfell.is
Þingvangur ehf byggir 10 hæða lyftuhúsnæði á góðum stað miðsvæðis
á Akranesi. Staðsett við verslunarkjarnann Dalbraut 1, Akranesi.
STILLHOLT 21 - AKRANESI
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og seljast fullbúnar
án gólfefna nema forstofa, þvottahús og baðherbergi
flísalagt. Öllum íbúðum fylgir kæliskápur og uppþvottavél
í eldhúsinnréttingu. Sýningaríbúð á 1. hæð.
Innréttingar og fataskápar frá danska framleiðandanum HTH
Innhurðir og flísar frá Parka
Heimilistæki frá Ormsson
Aðeins
örfáar íbúðir
eftir
Fyrir síðustu umferð í lands-liðsflokki á Skákþingi Ís-lands voru GuðmundurKjartansson og Helgi Áss
Grétarsson með vinnings forskot á
næstu menn og undir venjulegum
kringum allt útlit fyrir það að annar
þeirra myndi hampa Íslandsmeist-
aratitlinum í ár. Helgi Áss hafði unn-
ið Hjörvar Stein í næstsíðustu um-
ferð og Guðmundur hafði unnið Dag
Ragnarsson. Vandi forystusauðanna
var sá að næstu menn í röðinni,
Hjörvar Steinn og Bragi Þorfinns-
son, gátu með sigri knúið fram auka-
keppni fjögurra efstu um titilinn.
Það munaði sáralitlu að svo færi því
að Bragi vann Helga Áss og Hjörvar
stóð til vinnings gegn Guðmundi:
Skákþing Íslands 2020, 9. um-
ferð:
Guðmundur – Hjörvar
Guðmundur hafði lagt allt of mikið
á stöðuna í byrjun tafls, fékk þokka-
legustu færi en hér er fokið í flest
skjól. Báðir keppendur voru tím-
anaumir og Hjörvar lék 31. … De7?
Hann gat unnið með 31. … Hxe2! 32.
Kxe2 Dxc4+, t.d. 33. Ke1 Dc5! og
vinnur eða 33. Ke3 Db5! 34. Kxe4
De2+ og vinnur. Það kann að vera
að Hjörvar hafi hætt við þessa leið
vegna 32. Df6 með hugmyndinni 32.
… Hxe5 33. Hd8+! og hvítur snýr
taflinu við. En eftir 32. … Bg2+! 33.
Kxe2 Db2+! fellur biskupinn á e5.
Nokkrum leikjum síðar kom þessi
staða upp:
Guðmundur – Hjörvar
Þó að svartur sé skiptamun yfir
getur hann ekki losað kónginn og
hrókinn á h7. Eftir 78 leiki sættist
Hjörvar á skiptan hlut. Það þýddi að
Guðmundur varð Íslandsmeistari í
þriðja sinn.
Bragi Þorfinnsson náði jafntefli
úr tapaðri stöðu í skák sinni við
Margeir í 8. umferð. Það gaf honum
nýtt tækifæri og í lokaumferðinni
tefldi hann sína bestu skák:
Skákþing Íslands 2010; 9. um-
ferð:
Helgi Áss Grétarsson – Bragi
Þorfinnsson
Nimzo-indversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
Dc2 0-0 5. a3 Bxc3 6. Dxc3 Rc6 7.
Rf3 d6 8. b3 He8 9. Bb2 e5 10. d5
Re7 11. Rd2 Rf5 12. b4 c6 13. e4
Rd4 14. Dd3 cxd5 15. cxd5
15. … Rxd5!
Tiltölulega óljós fórn en samt rétt
ákvörðun. Bragi sá fram á að fá upp
stöðu með hrók og peð gegn tveim
léttum.
16. exd5 Bf5 17. Dg3
17. Re4 strandaði á 17. … Dh4! og
riddarinn á e4 fellur.
17. … Rc2+ 18. Kd1 Rxa1 19.
Bxa1 Dd7 20. Bc4 Hac8 21. Ke2 b5
22. Bb3 Bc2 23. He1 f5 24. Kf1 Dc7
25. Ba2 Kh8 26. h3 a5 27. Kg1 axb4
28. axb4 Da7 29. Bb3 Da3!
Svartur hefur náð að hrifsa til sín
frumkvæðið. Helgi Áss var auk þess
í miklu tímahraki.
30. f4 Bxb3 31. Dxb3 Da7 32. Kh1
Df2 33. Dd1?
Hann átti innan við mínútu eftir.
Með meiri tíma hefði hann fundið
besta leikinn, 33. Rf3!, með hug-
myndinni 33. … e4 34. Bd4 Dg3 35.
De3! og hvítur nær að halda stöð-
unni saman.
33. … Dxf4 34. Rf3 h6 35. Dd3
Hc1 36. Dxb5 Hec8 37. Bb2 Hxe1
38. Rxe1 Df2 39. Dd7 Dxe1+ 40.
Kh2 Hb8 41. Dxd6 Dxb4 42. Dxb4
Hxb4 43. Bxe5 Hb5 44. Kg3 Hxd5
45. Kf4 Hd2 46. Kxf5 Hxg2 47. h4
Kg8 48. Bf4 g6+ 49. Ke6 Kh7 50.
Be5 Hf2 51. Bf6 g5 52. hxg5 Kg6
- og hvítur gafst upp.
Lokastaðan varð þessi: 1. Guð-
mundur Kjartansson 6½ v. (af 9)
2.-3. Bragi Þorfinnsson og Helgi Áss
Þorfinnsson 6 v. 4. Hjörvar Steinn
Grétarsson 5½ v. 5.-7. Vignir Vatnar
Stefánsson, Björn Þorfinnsson og
Dagur Ragnarsson 4½ v. 8. Margeir
Pétursson 3 v. 9. Þröstur Þórhalls-
son 2½ v. 10. Gauti Páll Jónsson 2 v.
Guðmundur Íslands-
meistari eftir æsi-
spennandi lokaumferð
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Íslandsmeistari í þriðja sinn Guðmundur Kjartansson við taflið.
Leitarstöð Krabba-
meinsfélagsins boðar
allar konur á aldurs-
bilinu 23 ára til 65
ára í legháls-
krabbameinsleit á
þriggja ára fresti. Á
hverju ári eru það um
27.000 konur og
frumurannsóknarstofa
Leitarstöðvarinnar
skoðar árlega 25.000
til 30.000 leghálssýni.
Leitarstöðinni er falin mikil
ábyrgð. Konur treysta því að sýn-
in þeirra séu rétt greind og þær
fái réttar upplýsingar. Fjölmiðlar
hafa síðustu daga fjallað um mis-
tök sem voru gerð hjá frumurann-
sóknarstofunni við greiningu sýna.
Kona sem er nú greind með
ólæknandi leghálskrabbamein
fékk neikvæðar niðurstöður en
ljóst er að mögulega hefði verið
hægt að koma í veg fyrir krabba-
meinið ef það hefði verið greint á
forstigum sjúkdómsins. Ljóst er
að mistök voru gerð við greiningu
á sýninu frá árinu 2018 því þegar
það var skoðað aftur sáust frumu-
breytingar greinilega. Nú vinnur
leitarstöðin í því að rannsaka
6.000 sýni frá árinu 2018 og er
þegar komið í ljós að um 30 konur
hafa fengið ranga niðurstöðu
vegna frumubreytinga í legháls-
skoðun.
Frá því reglubundin skimun á
leghálskrabbameini hófst árið
1963 hefur dánartíðni vegna leg-
hálskrabbameins minnkað um 83%
og er því ljóst að skimun skiptir
sköpum. Að greina forstig legháls-
krabbameins er lykilatriði. Það
getur skilið á milli lífs og dauða.
Það er ekkert sem getur bætt
þeim konum sem fengu ranga
greiningu skaðann. Það hjálpar
þeim ekki að bæta ferla og gera
betur í framtíðinni. Skaðinn er
þegar skeður. Það er hins vegar
mikilvægt fyrir aðrar konur að
Krabbameinsfélagið og heilbrigð-
isyfirvöld fari yfir öll þau sýni sem
kunna að vera röng
og skoði hvað brást.
Að öflugt gæðaeftirlit
grípi þau mannlegu
mistök sem starfs-
menn kunna að gera.
Þrátt fyrir þann
góða árangur sem
skimanir hafa sýnt
hefur dregið úr mæt-
ingu í skimanir fyrir
leghálskrabbameini á
Íslandi. Til að bregð-
ast við því hefur
Krabbameinsfélagið blásið til
sóknar síðasta ár og hvatt konur
til að mæta í skimun m.a. með því
að bjóða fyrstu skoðun gjald-
frjálsa. Nú er hætta á að traust
kvenna til leghálsskimana sé brot-
ið og það eykur líkurnar á að kon-
ur mæti ekki í skimun. Það getur
haft skelfilegar afleiðingar.
Um áramót munu skimanir fær-
ast yfir til Landspítalans og
heilsugæslunnar. Enn er óljóst
hvernig sú framkvæmd mun fara
fram. En áfram verður lífs-
nauðsynlegt að halda uppi skim-
unum sem greina frumubreyt-
ingar.
Kraftur skorar á Krabbameins-
félagið og stjórnvöld að tryggja
gæði skimana og gæðaeftirlit til að
draga úr líkum á að svona mistök
eigi sér aftur stað.
Líf kvenna er í húfi.
Tryggjum
gæði skimana
Eftir Elínu Söndru
Skúladóttur
» Frá því reglubundin
skimun á legháls-
krabbameini hófst árið
1963 hefur dánartíðni
vegna leghálskrabba-
meins minnkað um 83%.
Að greina forstig
leghálskrabbameins er
lykilatriði.
Elín Sandra
Skúladóttir
Höfundur er formaður Krafts, stuðn-
ingsfélags fyrir ungt fólk sem greinst
hefur með krabbamein og aðstand-
endur.
formadur@kraftur.org
Bessi Bjarnason fæddist í
Reykjavík 5. september 1930.
Foreldrar hans voru Bjarni
Sigmundsson frá Rauðasandi á
Barðaströnd og Guðrún
Snorradóttir úr Skagafirði.
Bessi giftist tvisvar, Erlu Sig-
þórsdóttur sem hann átti með
þrjú börn og síðar leikkonunni
Margréti Guðmundsdóttur.
Bessi var einn ástsælasti
leikari Íslands um áratuga
skeið.Bessi var góður gam-
anleikari en tókst líka á við al-
varleg hlutverk. Þekktastur er
hann þó fyrir hlutverk sín í
barnaleikritum, ekki síst leik-
ritum Torbjörns Egners. Mikki
refur í Dýrunum í Hálsaskógi
er ógleymanlegur og ekki síður
Jónatan í Kardimommubænum
jafnvel áratugum síðar þegar
þeir sem kynntust list hans
sem börn eru komnir á miðjan
aldur. Það var einhver tímalaus
galdur og hlýja sem fylgdi
Bessa og gerði það að verkum
að hann var allra manna hug-
ljúfi og fáir sem ekki eiga góðar
minningar frá leik, söng eða
skemmtun þar sem Bessi hefur
verið í aðalhlutverki. Þótt Bessi
sé horfinn af sviðinu lifir hann í
sameiginlegu minni stórs hluta
þjóðarinnar. Það er mikil gæfa
að skilja eftir sig slík spor í
þjóðarsálinni.
Bessi lést 12.9. 2005.
Merkir Íslendingar
Morgunblaðið/Ingibjörg
Bessi
Bjarnason