Morgunblaðið - 05.09.2020, Qupperneq 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
Magnaður nýr spennuþriller
með Russell Crowe í aðalhlutverki.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Harry Potter
* Tröll 2 (ísl. tal)
* Hvolpasveitin (ísl. tal)
* The Secret :
Dare to dream
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Frábær ný teiknimynd fyrir
alla fjölskylduna.★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Nú er maður búinn að fylgjastmeð atinu í listasamlaginupost-dreifingu um hríð og
vel lyndir manni. Mikið af útgáfum
og uppákomum, fersk nálgun og
stöðugt verið að ýta á hin ýmsu
mörk. Tilraunastarfsemi í tónlist þar
er rík en það er
líka leitað í rætur
og vel troðnar
slóðir og hvergi
var það jafn aug-
ljóst og í tónlist
hljómsveitar-
innar Bagdad
Brothers sem var
með virkari sveit-
um þar í árdaga.
Fyrir fólk sem er komið á aldur (les:
sá er ritar) voru áhrifavaldar þar
augljósir, eða öllu heldur, auð-
heyranlegir. Hin svokallaða C86-
stefna í hávegum höfð, „indí“-rokk
frá níunda áratugnum sem hafði á
að skipa mektarsveitum á borð við
Pastels, Primal Scream (fyrri tíma)
og Wedding Present, dagskipunin
klingjandi melódískt gítarrokk;
næmt og viðkæmnislegt með vísun í
hetjur eins og Velvet Underground.
Með öðrum orðum: Gamla góða ný-
bylgjan. Áberandi þar var Bjarni
nokkur Daníel, en hann lék á gítar
og söng (leikur og syngur? Veit ekki
alveg með stöðuna á bandinu) og há
falsetta hans vakti athygli, að ekki
sé talað um lifandi sviðsframkomu á
tónleikum. Bjarni hefur þá leikið á
gítar með öðru eðalbandi sem er á
mála hjá post-dreifingu, Skoffín, en
hún átti sérdeilis vel heppnaða plötu
Nýbylgjuhundarnir hinir nýju
á þessu ári, …hentar íslenskum að-
stæðum. Leiðtogi þar er Jóhannes
Bjarki Bjarkason og tónlist einnig
nýbylgja, en súrari. Vísanir í doo-
wop, David Lynch og gamalt ís-
lenskt popp m.a.; undarleg ára yfir
en lokkandi um leið. En ég er hingað
kominn, aðallega, til að tala um
þriðja bandið sem Bjarni tengist, hið
tiltölulega nýja Supersport! Þar eru
liðsmenn ásamt Bjarna (sem syngur
og spilar á gítar) þau Þóra Birgit
Bernódusdóttir (bassi, söngur),
Dagur Reykdal Halldórsson
(trommur, slagverk) og Hugi Kjart-
ansson (hljómborð, sólógítar, söng-
ur). Sveitin var stofnuð í kringum
lagasmíðar þeirra Þóru og Bjarna
og fyrir stuttu kom út fimm laga
plata, Dog Run.
Enn kveður við nýjan tón, þó að
grundvöllurinn sé nýbylgja. Pallett-
an er stærri en hjá Bagdad Brothers
t.d. og mun fjölskrúðugari snún-
ingar á formið. „Hvernig á ég að
segja þér satt?“ er einslags
kammerpopp en með sterkum vís-
unum í eitthvað gamalt og þá gamla
íslenska dægurtónlist. Mannakorn,
svo ég nefni það fyrsta sem kom í
hugann. „Ég smánaði mig“ (sem
kom út stakt í febrúar á þessu ári)
minnir líka á eitthvað gamalt. Það er
Diabolus in Musica-stemning í
gangi, á kafla er eins og maður sé að
hlusta á sænskt þjóðlagapopp frá
áttunda áratugnum (þverflauta frá
Eyrúnu Úu) og eftirfarandi texta-
brot er í senn ægifagurt og alveg
hrikalega sorglegt: „Hvers virði er
það að vera til? / Og draga andann /
Í andlausum heimi / Og berjast við
að vera til“. Fór að hugsa um „Half
a Person“ með The Smiths ein-
hverra hluta vegna, þessi dumb-
ungur en þessi glæta líka. „Það er
maður inni í herberginu“ er smellið
og gítardrifið og undir þremur mín-
útum eins og allt hér. „En sama
hvað...“ er sungið af Salóme Katr-
ínu, undurblíð smíð. „Svo dó hún, að
nóttu, í draumi“ lokar plötunni,
surgandi nýbylgjurokk þar sem gít-
ararnir fá loks að ýlfra. Eins og sést,
margt í gangi en allt eitthvað svo
óskaplega hrífandi og vel heppnað.
Ég er sáttur. Á Instagram-reikningi
Supersport! má lesa að þau vonast
til að koma út breiðskífu á næsta ári.
Er það vel.
»En eins og sést,margt í gangi en allt
eitthvað svo óskaplega
hrífandi og vel heppnað.
Ég er sáttur.
Dog Run er stuttskífa
með prýðissveitinni
Supersport! sem inni-
heldur m.a. liðsmenn
úr Bagdad Brothers.
Rýnt er í gripinn hér
og það af festu.
Laufey Sigurð-
ardóttir flytur
Partítu II BWV
1004 fyrir ein-
leiksfiðlu eftir
J.S. Bach í Lista-
safni Einars
Jónssonar í dag
kl. 16 og er að-
gangur ókeypis
en athygli vakin
á því að tveggja
metra fjarlægðarreglan verður í
hávegum höfð á tímum Covid-19 og
gestafjöldi takmarkaður við 20.
Tónleikarnir hlutu menningar-
styrk frá Reykjavíkurborg og eru
þeir fyrri af tvennum sem haldnir
verða í samstarfi Laufeyjar Sigurð-
ardóttur og Listasafns Einars Jóns-
sonar. Laufey lauk einleikaraprófi
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík
árið 1974 og lagði síðar stund á
framhaldsnám í Bandaríkjunum og
Róm. Hún hlaut fastráðningu hjá
Sinfóníuhljómsveit Íslands 1980,
hefur haldið fjölda einleikstónleika
og verið virk í flutningi kammer-
tónlistar hér á landi, víða um Evr-
ópu og í Bandaríkjunum.
Leikur partítu eftir
Bach í safni Einars
Laufey
Sigurðardóttir
Sýningin Takk
Vigdís verður
opnuð í dag kl. 15
í sýningarrýminu
Midpunkt í
Hamraborg í
Kópavogi. Lista-
maðurinn Logi
Bjarnason stend-
ur að sýningunni
og segir í tilkynn-
ingu að Takk Vigdís samanstandi af
grindverki sem var í eigu Vigdísar
Finnbogadóttur. „Grindverkið sem
hér er til sýnis var valið af lista-
manninum og söguleg tenging þess
við Vigdísi Finnbogadóttur gerir
það athyglisvert,“ segir m.a. í til-
kynningu. Logi er myndlistamaður
sem fæst við að skapa meistaraverk
og athyglisverð viðföng, segir þar,
og að í þessari sýningu sé tekist á við
spursmál um tíma og rými, sögulegt
samhengi og hvað við horfum á.
Sýninguni lýkur 27. september.
Sýnir grindverk
sem Vigdís átti
Logi Bjarnason
Fersk Hljómsveitin Supersport! er allrar athygli verð eins og sannast á nýrri plötu.
Ljósmynd/Ernir Ómarsson