Morgunblaðið - 19.10.2020, Side 2
Svona var útsýnið þegar horft var
af Seltjarnarnesi út í Gróttu um há-
degisbil í fyrradag en hefði myndin
verið tekin nokkrum klukkustund-
um síðar hefði þegar verið búið að
flæða að og orðið ófært út í eyna.
Þá hefði verið óheppilegra að vera
fastur á listsýningu Guðrúnar Ein-
arsdóttur í Vitavarðarhúsinu sem
var opnuð á laugardaginn og verð-
ur opin út vikuna. Sem betur fer
lenti enginn í því af þeim tiltölulega
mikla fjölda gesta sem þó gerði sér
ferð út í vitann um helgina.
Guðrún segir í samtali við Morg-
unblaðið að það séu forréttindi að
fá að vera með sýningu á staðnum.
„Hér er ekkert nema orka og líf og
fjaran er aldrei eins, hún er alltaf
ný á hverjum degi,“ segir Guðrún.
Hún segir bara skemmtilegt að há-
fjara sé forsenda þess að fólk kom-
ist á sýninguna hennar. Flóðin eru
enda útreiknanlegri en margur
myndi ætla. Sýningin trekkir síðan
gesti að, jafnvel Seltjarnarnesbúa
sem aldrei hafa gert sér ferð út í
Gróttu fyrr en nú. snorrim@mbl.is
Tiltölulega góð aðsókn að listsýningu í Vitavarðarhúsinu í Gróttu
List þegar
sjávarguðum
sýnist svo
Morgunblaðið/HJ
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 2020
Rammaborð frá 320.000.-
Kollur 37.800.-
fasteignaverdmat.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis-
ráðherra segir að Íslendingar fylgist
grannt með þróun samningavið-
ræðna milli Breta og Evrópusam-
bandsins. Útlit er fyrir að samningur
náist ekki um útgöngu Breta fyrir
áramót en í upphafi þessa árs gáfu
Bretar og ESB sér frest til ársloka
til þess að undirrita fríverslunar-
samning. Boris Johnson, forsætis-
ráðherra Bretlands, sagði fyrir helgi
að hann teldi að samningar væru úti-
lokaðir ef ESB sýndi ekki ríkari vilja
til að ná saman og að Bretar yrðu að
búa sig undir útgöngu án samnings.
„Hvað okkar
viðræður varðar
halda þær áfram
jafnvel þótt frí-
verslunarviðræð-
ur Bretlands og
Evrópusam-
bandsins skili
ekki árangri. Við
höfum frá upphafi
verið meðvituð
um það að þessi
staða gæti komið upp og hagað und-
irbúningi okkar í samræmi við það,“
segir Guðlaugur Þór í skriflegu svari
við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Hann segist þó vona að Bretar og
Evrópusambandið reyni til þrautar
að ná samningi. Það sé fleirum í hag
en þeim sjálfum.
Í samfloti við önnur ríki
Hann segir jafnframt að Ísland sé
í fríverslunarviðræðum við Breta í
samstarfi við Noreg og Liechten-
stein og segir hann það samstarf
hafa gengið mjög vel. Markmiðið sé
að ljúka samningaviðræðum fyrir lok
árs. Guðlaugur segir að ákjósanlegra
hefði verið ef Bretar og ESB hefðu
náð saman fyrst á ákveðnum sviðum
og Ísland síðan fylgt í kjölfarið. Það
eigi til dæmis við um heilbrigðisregl-
ur og landamæraeftirlit í tengslum
við það. Ferskur fiskur verði að kom-
ast hindrunarlaust frá Íslandi til
Bretlands. „Til þess að auðvelda
flutning á matvælum innan EES-
svæðisins höfum við einfaldað þær
reglur í samvinnu við ESB og hin
EFTA-ríkin innan EES. Ef veita á
Bretum aðgang að þessu kerfi gerist
það ekki án aðkomu allra sem að því
koma, þ.m.t. Evrópusambandsins.“
Spurður um afdrif enska boltans
sagði Guðlaugur að hann myndi gera
allt sem í sínu valdi stæði til þess að
tryggja sjónvörpun hans hér á landi.
„Að öllu gamni slepptu þá er hér um
að ræða lögfræðilegt álitaefni um að
breskar sjónvarpsstöðvar hafi ekki
lengur sjálfkrafa heimild til að miðla
efni hér á landi. Það þýðir þó ekki að
það verði bannað.“
Hafa búið sig undir þessa stöðu
Viðræður Íslands við Breta munu halda áfram þótt samningur náist ekki við ESB Ferskur fiskur
verður að komast hindrunarlaust til Bretlands Viðræður með Noregi og Liechtenstein gengið mjög vel
Breytingar á sambandi
Íslands og Bretlands
» Evrópska sjúkratrygginga-
kortið fellur úr gildi í Bretlandi.
» Íslendingar sem vilja flytja
til Bretlands munu ekki njóta
neinna sérréttinda eftir næstu
áramót.
» Áfram verður heimilt að
heimsækja Bretland sem
ferðamaður án vegabréfsárit-
unar.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Hrina af vopnuðum ránum gekk yfir
Reykjavík um helgina, sem hófst
með vopnuðu ráni á skyndibitastaðn-
um Chido í Vesturbænum um miðjan
dag á föstudaginn. Þar er sökudólgs-
ins enn leitað, enda myndavélarlaust
á staðnum. Hann hafði á brott með
sér það litla sem var af reiðufé í kass-
anum, en hótaði afgreiðslufólki með
hníf, eftir að hafa reyndar sprittað
sig samviskusamlega.
Á laugardaginn var síðan átján
ára drengur, sem á að sögn lögreglu
greinilega við mikinn vanda að etja,
handtekinn fyrir að ræna Euro
Market við Hlemm með því að hóta
afgreiðslumanni með eggvopni.
Drengurinn var svo yfirheyrður í
gærmorgun en síðan sleppt úr haldi.
Þá virðist hann hafa farið beinustu
leið í Hlíðahverfið þar sem hann
framdi annað vopnað rán í Krambúð-
inni. Á meðan hans var leitað vegna
þess brots framdi hann síðan enn
annað vopnað rán á Pylsuvagninum í
miðbænum. Lögregla náði honum þá
og fór með hann niður á stöð, eftir
þessa lygilegu atburðarás, eins og
Jóhann Karl Þórisson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn lýsir henni. „En við
tökum málið mjög alvarlega enda
ekkert grín þegar menn eru að ógna
saklausum borgurum með egg-
vopni,“ segir Jóhann.
Sérsveitin kom að handtökunni
Drengurinn gistir fangaklefa í
nótt og á morgun verður tekin af
honum skýrsla, ásamt því sem metið
verður hvort fara þurfi fram á
gæsluvarðhald yfir honum. Höfuð-
málið er að sögn Jóhanns að koma
honum til hjálpar, enda ljóst að hann
á bágt.
Í bæði skiptin sem hann var hand-
tekinn kom sérsveitin að aðgerðum
þar sem viðkomandi var vopnaður og
talinn hættulegur.
Ræningjans á Chido er enn leitað
þrátt fyrir myndefnisleysi. Lýsingin
á honum passar að sögn Jóhanns við
lýsingu á nokkrum aðilum sem lög-
reglan þekkir til og reynt verður að
leysa það mál í vikunni.
Hrina af vopnuðum ránum
í Reykjavík um helgina
Fjögur frá föstudegi Einn ábyrgur fyrir þremur þeirra
Morgunblaðið/Hari
Lögregla Verið er að meta hvort
fara þurfi fram á gæsluvarðhald.