Morgunblaðið - 19.10.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.10.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 2020 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Heimavinna er hin nýja heims- mynd,“ segir Ólafur Gauti Hilm- arsson kerfisfræðingur. Hann lauk á dögunum námi í verk- efnastjórnun og lokaverkefni hans var að kanna áhrif Covid-19 á störf og vinnulag stjórnenda og starfsfólks fyrirtækja á Íslandi. Á mörgu er tæpt í ritgerð um málið og niðurstaða Ólafs er að vinnu- markaðurinn muni breytast var- anlega eftir reynslu síðustu mán- aða. Sveigjanleiki í starfi verði meiri og hefðbundnar tímaskrán- ingar verði ekki jafn mikilvægar og áður. Fjarvinna, fjarvinnu- lausnir og fjarfundir verði al- gengari. Góður tæknibúnaður þurfi þó að vera til staðar. Ein- kenni yfirstandandi ástands er þó, að mati viðmælenda Ólafs, aðlög- unarhæfni og samstaða fólks sem margt hefur verið í langvarandi einangrun sé mikil. Skref inn í nýjan veruleika „Að fenginni reynslu af kór- ónuveirunni í ár tel ég fjarvinnu þurfa lengri tíma til að ná al- mennri útbreiðslu eða viðurkenn- ingu. Framan af leit fólk á þetta sem tímabundið ástand og eftir fyrstu bylgjuna var líf margra komið í sama gír og var. Samt er öruggt að vinnuveitendur og sam- félagið í heild hafi tekið mörg skref inn í nýjan veruleika,“ segir Ólafur. Þá muni reynslan af faraldr- inum koma fram á mörgum svið- um. „Breytt mynstur hversdags- ins færast smám saman inn í alla kima þjóðfélagsins. Kjarasamn- ingar þurfa að taka tillit til þessa, áherslum í samgöngumálum verð- ur vafalítið breytt og svo þarf pólitíkin að bregðast við með nýj- um leikreglum. Margar varan- legar breytingar eru nú þegar komnar fram svo sem heimsend- ingarþjónusta verslana. Vinnu- veitendur munu í framtíðinni taka meira tillit til þess að ráða fólk sem getur að hluta til unnið óháð staðsetningu. Þetta verður án efa stór þáttur í skipulagi atvinnulífs- ins í framtiðinni. Sjálfur vinn ég mikið heima um þessar mundir og bensínreikningur heimilisins hef- ur klárlega lækkað.“ Úr námi sínu í tölvunarfræði í Kaupmannahöfn árið 1994 minn- ist Ólafur Gauti þess hve mikil upplifun sér og skólafélögum sín- um hafi fundist „… þegar okkur tókst að senda texta á milli tveggja tölva á innraneti skól- ans“, eins og hann kemst að orði. Nú, rúmum aldarfjórðungi síðar, sé fólk nánast með heiminn í hendi sér í snjalltækjum og mögu- leikarnir séu endalausir. „Mín reynsla af fjarfundum er mjög góð, þeir eru gjarnan markvissir og tíminn nýttur vel. Á móti kemur að suma fundi virðist nánast ekki hægt að halda nema augliti til auglitis. Tæknin breytir mörgu, en mannleg samskipti og þörf fyrir að hittast verður áfram til staðar. Aðstæður hvetja okkur og kenna að fara lengra en hinar viðteknu venjur bjóða. Það er vel hægt að komast ansi nálægt upp- lifun og nánd með tækninni virki hún vel,“ segir Ólafur Gauti sem í verkefni sínu ræddi meðal annars við stjórnendur ríkisstofnanna um reynslu þeirra af því að halda rekstri gangandi á þeim óvissu- tímum sem nú eru. Aðlögunarhæfnin er aðdáunarverð „Viðmælendur mínir dáðust að aðlögunarhæfni starfsfólks og hve vel hlutirnir hafi gengið þrátt fyrir breytingar. Jákvætt hug- arfar hafi þar ráðið miklu. Lít- ilfjörlegar breytingar mæti oft meiri mótstöðu. Þá hafi komið þeim mjög á óvart hve margir gátu með skömmum fyrirvara komið sér upp starfsaðstöðu á heimilum sínum og sumir með börnin í kringum sig, enda skóla- starf í uppnámi. Þá segja stjórn- endurnir sem ég ræddi við að stuðningur þeirra hafi skipt starfsfólk miklu máli. Spjall um daginn og veginn hafi oft verið nauðsyn til að skapa öryggi svo hver gæti sinnt sínu vel,“ segir Ólafur Gauti að síðustu. Mynstur hversdagsins tekur miklum breytingum á tímum COVID 19 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Heima Vinnuveitendur munu taka meira tillit til að ráða fólk sem getur að hluta til unnið óháð staðsetningu, segir Ólafur Gauti Hilmarsson. Heimavinna er okkar nýja heimsmynd  Ólafur Gauti Hilmarsson er Hafnfirðingur og fæddist 1967. Er kerfisfræðingur að mennt frá Kaupmannahöfn og nam markaðsfræði og alþjóða- viðskipti til diplómanáms við HR. Lauk svo nýlega meist- araprófi í verkefnastjórnun (MPM) frá HR.  Hefur unnið í upplýsinga- tæknigeiranum í fjármála- fyrirtækjum frá 1998, meðal annars um sex ára skeið í Lúxemborg. Er nú sérfræð- ingur og verkefnastjóri hjá Seðlabanka Íslands. Hver er hann? Snorri Másson snorrim@mbl.is Hallgrímur Helgason skáld er stadd- ur í Berlín í Þýskalandi í miðri bóka- reisu þar sem komið er við í helstu borgum sambandslýðveldisins, München, Kiel, Hamborg, Koblenz og svo endað í Zürich, allt saman á krít- ískum tímapunkti í ferli veirunnar á þessum slóðum. Meginland Evrópu er með haustbylgjum sínum orðið að miðpunkti heimsfaraldursins og Þýskaland er síst undanskilið þeirri þróun, þar sem útgöngubann hefur komið til tals, en hálfgerð ferðabönn og samkomutakmarkanir hafa verið látin duga. Bókmenntum er þó ekki aflýst eins og öðru sem fólki er kært. „Góðu fréttirnar í þessu ástandi eru að bók- sala hefur ekki dregist saman, þannig að bókin virðist vera ónæm fyrir veir- unni,“ segir Hallgrímur í samtali við Morgunblaðið. Hann er að kynna 60 Kilo Sonnenschein, sem fyrir sitt leyti fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2019. Og Þjóðverjar eru hæst- ánægðir með bókina af dómum að dæma, sem verður að teljast gott fyr- ir Hallgrím sem hefur ekki háleitari væntingar en svo að hann segist ein- faldlega undrandi á að Þjóðverjar skuli hafa áhuga á atvinnumálum Siglfirðinga í byrjun síðustu aldar en auðvitað ánægður að „einhver nenni að lesa þetta“. Staddur á sögulegum tímum Hallgrímur sýndi fram á nýlega neikvæða niðurstöðu í Covid-skimun við komuna til Þýskalands, sem var tekin gild. Sóttvarnir eru síðan hvar- vetna í hávegum hafðar og hafa að sögn Hallgríms að vissu leyti kallað fram kunnuglega takta í Þjóðverjan- um. „Allir í þjónustustörfum eru eðli- lega nett taugaveiklaðir og þetta minnir næstum því á gamla Þýska- land á síðustu öld. Þá kom ég til München og hún var full af fólki sem hafði lifað stríðið og var þjakað af krónískum pirringi. Þetta minnir mig svolítið á það og svo virðist sem þýski strangleikinn sé kominn aftur og segi nú: Upp með grímuna,“ segir Hall- grímur. Grímur eru skylda í Þýskalandi alls staðar þar sem þú hreyfir þig um, segir Hallgrímur. „En um leið og þú sest inn á til dæmis veitingastað þá fella allir grímuna og tveir metrarnir skreppa niður í 20 sentímetra. Menn spjalla eins og ekkert hafi gerst, sem er svolítið skrýtið,“ segir hann. Sem vonlegt er eru fáir á ferli í Berlín eins og annars staðar. „Það er mjög skrýt- ið að ferðast núna og maður finnur að maður er staddur á sögulegum tím- um. Keflavíkurflugvöllur var eins og Reykjavíkurflugvöllur og Kastrup líka. Síðan er nóg pláss í lestunum,“ segir Hallgrímur. Það er vika fram undan af ferðalagi með bókina, sem á þýsku lengdist enn og er um 550 blaðsíður. Þá er eins gott að sýna fram á hve spennandi hún er, á upplestrarkvöldum þar sem færri komast að en vilja. Þar sem áttu að vera 200 gátu aðeins verið 50 og þar sem áttu að vera 60 gátu aðeins verið 15. Síðan tekur við vikulöng sóttkví á Íslandi og smám saman ætti að skýrast hvort halda megi upplestra í aðdraganda jóla hér á landi. Ef svo fer má gera ráð fyrir að Hallgrímur láti sjá sig með nýja ljóðabók sína, Við skjótum títuprjónum. Ljósmynd/Aðsend Bækur í Berlín Þjóðverjum veitir ekki af sínum Sextíu kílóum af sólskini. Þýskalandsreisa í miðjum faraldri  Bókin blessunarlega ónæm fyrir Covid Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, hefur lagt fram þingsályktun- artillögu þess efnis að framtíð Reykjavíkur- flugvallar verði borin undir þjóð- ina með þjóðar- atkvæðagreiðslu. Njáll hefur fjórum sinnum áður lagt fram tillögu um málið en í öll- um tilfellum hefur hún verið felld. Hann segir þó að í þetta skipti hafi hann meiri trú en nokkru sinni fyrr á að málið nái í gegn. Skilningur þingmanna og almennings á mikil- vægu öryggishlutverki flugvall- arins hafi aukist að undanförnu. Hann segir það lýsandi fyrir hversu ósamvinnuþýð borgaryfirvöld séu að halda flugvellinum ekki á aðal- skipulagi borgarinnar þangað til önnur staðsetning finnst. Vilja flugvöllinn í þjóðaratkvæði Njáll Trausti Friðbertsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.