Morgunblaðið - 19.10.2020, Qupperneq 8
Morgunblaðið/Ingó
Rjúpur Skotvís er ósátt við vinnu-
brögð Umhverfisstofnunar.
Stjórn Skotveiðifélags Íslands, Skotvís, sendi í gær frá sér
ályktun vegna fyrirkomulags rjúpnaveiða í haust. Þar mót-
mælir félagið þeirri ákvörðun umhverfis- og auðlindaráðu-
neytisins að engar breytingar verði gerðar á veiðitíma
rjúpu þetta árið, en í ályktuninni segir að full ástæða hafi
verið til að endurskoða ársgamla ákvörðun í þeim efnum.
Þá segir í ályktuninni að félagið hafi sóst eftir samráðs-
fundi með Umhverfisstofnun í rúman mánuð, eða frá 7.
september, til að ræða fyrirkomulag rjúpnaveiða líkt og
venja hafi verið, en ekki fengið þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir,
og þrátt fyrir að forsendur hafi breyst verulega frá því að
síðasti slíki samráðsfundur fór fram.
„Í ráðleggingum Umhverfisstofnunar til ráðuneytis er
vísað í samráð sem haft var fyrir rúmlega ári, árið 2019.
Og þrátt fyrir að nýjar og betri upplýsingar liggi fyrir um
veiðistjórnun er það ákvörðun stofnunarinnar, og ráð-
herra í kjölfarið, að gera ekki neitt,“ segir í ályktuninni.
„Með þessari framgöngu hefur Umhverfisstofnun sýnt
félaginu lítilsvirðingu, hafnað samstarfi á ómálefnalegum
forsendum og ekki farið eftir vísindagögnum,“ segir í
ályktuninni og gagnrýnir félagið ennfremur umhverfis-
ráðherra, sem hafi kosið að gera engar athugasemdir við
feril málsins þrátt fyrir skort á samráði og ráðgjöf sem er í
hrópandi ósamræmi við gögn málsins.
Segja UST sýna sér lítilsvirðingu
Skotvís sendir frá sér ályktun um veiðitíma rjúpu Gagnrýna skort á samráði
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 2020
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
Eftir að Stjórnarskrárfélagiðbirti myndskeið af fundi sín-
um þar sem félagsmenn strjúka ís-
mola og kyrja saman um leið vissi
fólk að þetta var ekki hefðbundinn
félagsskapur held-
ur fremur einhvers
konar sértrúarsöfn-
uður.
Málið er þóflóknara en
svo.
Eins og mbl.is greindi frá umhelgina birti Stjórnarskrár-
félagið færslu á Facebook þar sem
auglýst var eftir fjárframlögum og
svo sagði: „Við munum nota pen-
ingana til að fjármagna efni fyrir
listamenn sem vilja tjá skoðanir
sínar um stjórnarskrármálið,
hvort sem þær verða afmáðar af
valdhöfum jafnóðum eða ekki.“
Engum blandast hugur umhvað þetta þýðir. Stjórnar-
skrárfélagið er ekki aðeins að
hvetja til eignaspjalla heldur
hyggst beinlínis fjármagna ósóm-
ann.
Spurð út í þetta svaraði KatrínOddsdóttir, formaður félags-
ins, að félagið mundi „aldrei
hvetja fólk til að stunda eigna-
spjöll eða slíkt“ en jafnframt að fé-
lagið hefði ekki gert athugasemd-
ir við gjörninga sem almenningur
hafi gripið til í nafni baráttunnar.
Hún segir líka að það sé mjög leitt
ef fólk vinni „skemmdarverk á
einkaeigum“ í baráttunni.
Svör formannsins eru í mikluósamræmi við hvatningu til
eignaspjalla og fjármögnun
þeirra. Þessi baráttuaðferð er sem
betur fer nýlunda hér á landi en út
af fyrir sig má segja að hún sé í
góðu samræmi við innihaldið.
Katrín
Oddsdóttir
Ný vinnubrögð í
stjórnmálabaráttu
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Njáll Trausti Friðbertsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks og formað-
ur Íslandsdeildar NATO-þingsins,
sat fjarfund með kollegum sínum frá
öðrum aðildarríkjum bandalagsins
þar sem þeim var kynnt staðan í
milliríkjadeilu Aserbaídsjan og
Armeníu. Ríkin berjast um yfirráð
yfir héraðinu Nagornó-Karabak,
sem nú er undir stjórn Asera. Njáll
segir í samtali við Morgunblaðið að
það sé ljóst að fundarmenn líti stöðu
mála alvarlegum augum.
„Þessi átök hafa verið að stig-
magnast undanfarnar þrjár til fjórar
vikur og það er gríðarlega mikilvægt
að það finnist einhver lausn. Á þess-
um fundi voru fundarmenn að reyna
að þróa samtalið í rétta átt og það
komu sérfróðir gestir á þennan fund
til þess að fara ítarlega yfir stöðuna.“
Hundruð hafa látist síðan átökin
brutust út, margir þeirra óbreyttir
borgarar. Vopnahlé sem tók gildi á
miðnætti á laugardagskvöld entist
aðeins í um fjórar mínútur.
Hvorki Armenía né Aserbaídsjan
eru aðildarríki NATO en Tyrkir eru
það hins vegar. Tyrkir eru nánir
bandamenn Asera og segir Njáll að
það sé vel þekkt að upp komi við-
kvæm staða milli aðildarríkja NATO
og bandamanna þeirra.
„Nú eru aðildarríkin orðin þrjátíu
og í þeim býr um milljarður manns.
Eins koma um 50% allrar fram-
leiðslu heimsins frá aðildarríkjum
NATO þannig að það eru gríðarlegir
hagsmunir fólgnir í því að friður og
sátt sé sem mest milli aðildarríkj-
anna.“
Ræddu stöðuna í
Nagornó-Karabak
Vopnahlé entist í
fjórar mínútur
Hundruð eru látin
AFP
Armenía Hermenn sérlegrar
hersveitar Karabak-héraðs.