Morgunblaðið - 19.10.2020, Side 10

Morgunblaðið - 19.10.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 2020 Ísfrost, sími 577 6666, Funahöfða 7, 110 Reykjavík Ýmsar stærðir kælikerfa í allar stærðir sendi- og flutningabíla, fyrir kældar og frystar vörur. Vottuð kerfi fyrir lyfjaflutninga. Við ráðleggjum þér með stærð og gerð búnaðarins eftir því sem hentar aðstæðum hverju sinni. ÖFLUG KÆLIKERFI FRÁ THERMO KING FÆRANLEG KÆLITÆKI Í SENDIBÍLA Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyri Akureyrarflugvöllur er til vara á eftir Keflavíkurflugvelli og því eru aðflugsæfingar þar mikilvægar. Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Íbúar á Akureyri kvörtuðu sáran ný- verið undan hávaða vegna aðflugs- æfinga NATO á Akureyrarflugvelli. Bandarískar F-15-orrustuþotur flugu í liðinni viku inn til lendingar á Akureyrarflugvelli og notuðu meðal annars afturbrennara vélanna, með tilheyrandi látum. Njáll Trausti Friðbertsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks og formað- ur Íslandsdeildar NATO-þingsins, sagði við Morgunblaðið að þetta væri liður í loftrýmisgæslu NATO í kring- um Ísland. Akureyraflugvöllur væri hafður til vara á eftir Keflavík- urflugvelli og því þyrfti að æfa þar aðflug. „NATO sinnir loftrýmisgæslu í kringum Ísland fjórum til sex sinn- um á ári og alltaf einhverjar vikur í senn. Núna eru það Bandaríkjamenn sem sinna loftrýmisgæslu og þeim fylgir gjarnan fjölmennara starfslið. Oft eru það þó aðrar þjóðir sem sinna þessari loftrýmisgæslu hér á landi.“ NATO gæti sín betur Hann segir að aðflugsæfingum af þessu tagi eigi helst ekki að fylgja nein hávaðamengun og segist hann hafa bent fulltrúum Landhelgisgæsl- unnar á það. „Þeir notuðu þarna afturbrennara vélanna og því fylgdi þessu hávaði sem fólk tók eftir. Ég fór þess á leit við gæsluna að þeir notuðu ekki afturbrennarana nema í ýtrustu neyð.“ Hann segir jafnframt að margir hafi misskilið æfingar NATO. „Þetta voru ekki heræfingar eins og margir héldu. Þetta eru aðflugsæfingar en ekki heræfingar. Akureyr- arflugvöllur er hafður til vara fyrir lendingar og því er mjög brýnt að þeir sem koma til með að þurfa að lenda á vellinum í einhverju neyð- artilfelli kunni það og hafi reynslu af því.“ Akureyrarvöllur er til vara  Gerði athugasemd við notkun afturbrennara yfir byggð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki tekið til skoðunar áletr- anir talsmanna nýrrar stjórnar- skrár, sem gerðar hafa verið undan- farið á veggi í miðbæ Reykjavíkur. „Hvar er ný stjórnarskrá?“ stendur enn skrifað á trégrindverki við Sölv- hólsgötu en það var málað á hann eft- ir að veggur með sömu skilaboðum steinsnar frá við Skúlagötu var þveg- inn að beiðni rekstrarfélags Stjórn- arráðsins. Í færslu frá Stjórnarskrárfélaginu á Facebook síðasta mánudag var lýst eftir frjálsum framlögum til félags- ins, sem yrðu notuð til að „fjármagna efni fyrir listamenn sem vilja tjá skoðanir sínar um stjórnarskrármál- ið, hvort sem þær verða afmáðar af valdhöfum jafnóðum eða ekki“. Katr- ín Oddsdóttir, formaður félagsins, sagði við mbl.is um helgina að félagið væri ekki með þessu að hvetja til skemmdarverka. Þvert á móti væri slíkt slæmt fyrir baráttuna. Lögregl- an hefur að sögn Jóhanns Karls Þór- issonar aðstoðaryfirlögregluþjóns heldur ekki tekið til skoðunar hvort hvatning til eignaspjalla felist í skila- boðum félagsins, enda hafi lögregl- unni ekki borist kæra um slíkt. Borg- aryfirvöld og ríkið annist það yfir- leitt sjálf að þrífa veggjakrot á eignum sínum, án aðkomu lögreglu. Stjórnarskrárkrot ekki lögreglumál  Stofnanir þrífa án aðkomu lögreglu  Stjórnarskrárfélagið safnar framlögum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ekki til skoðunar Umræða um veggjakrot hefur verið áberandi und- anfarna daga, en málið hefur ekki verið til skoðunar hjá lögreglunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.