Morgunblaðið - 19.10.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 2020
Missið ekki af áhugaverðum þætti um sögu og starfsemi
Steinullar hf og viðtali við framkvæmdastjóra og helstu
lykilstjórnendur fyrirtækisins.
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar
í kvöld kl. 20.00
• Árið 1980 var tekist á á Alþingi um
stofnun og staðsetningu steinullar-
verksmiðju
• Traust landsbyggðarfyrirtæki
með öflugan eigendahóp
• Mikilvægi steinullar sem
einangrunarefnis í húsbyggingum
• Sérstæð hráefnisöflun og sérhæfð
framleiðslutækni
í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá
Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld
Steinull hf – Sauðárkróki
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Það er augljóslega ótímabært og
andstætt markmiðum samkomulags
ríkis og borgar að fjárfesta í flutn-
ingi kennslu- og einkaflugs frá
Reykjavíkurflugvelli yfir á nýjan
flugvöll í nágrenni höfuðborgar-
svæðisins á meðan rannsóknir
standa yfir á mögulegu flugvallar-
stæði í Hvassahrauni.
Þetta segir Sigurður Ingi Jó-
hannsson samgönguráðherra í bréfi
til Dags B. Eggertssonar borgar-
stjóra, sem dagsett er 16. september
sl. Er ráðherra hér að svara bréfi
sem borgarstjóri ritaði honum 8. júlí
sl. þar sem hann krefst þess að ríkið
efni samkomulag og finni „án tafar“
nýjan stað fyrir einka- og kennslu-
flug utan Reykjavíkurflugvallar.
Niðurstaða fyrir árslok 2024
Samgönguráðherra áréttar í bréf-
inu að það sé skýr sameiginlegur vilji
ríkis og borgar með samkomulagi
frá 2019 að stefna að því að flytja nú-
verandi flugstarfsemi af Reykjavík-
urflugvelli yfir á nýjan flugvöll í
Hvassahrauni, reynist það vænlegur
kostur, þar með talið æfinga-,
kennslu- og einkaflug. Stefnt sé að
því að fyrir árslok 2024 liggi fyrir
niðurstöður rannsókna og þá verði
hægt að taka afstöðu til þess hvort
byggður verði völlur þar.
Loks áréttar samgönguráðherra í
bréfi sínu að samkvæmt samkomu-
lagi ríkis og borgar frá 2019 skuld-
bindi borgin sig til að tryggja rekstr-
aröryggi Reykjavíkurflugvallar
meðan á undirbúningi og gerð nýs
flugvallar stendur. Ekki verði farið í
frekari styttingar og lokanir á flug-
brautum vallarins.
Samkomulagið sem Dagur B.
Eggertsson vísar til var undirritað í
Hörpu 25. október 2013 og það gerðu
Hanna Birna Kristjánsdóttir þáver-
andi innanríkisráðherra og Jón
Gnarr þáverandi borgarstjóri. Þar
sagði m.a: „Óháð öðrum verkþáttum
sem í samkomulaginu felast munu
innanríkisráðuneytið og Isavia hafa
forgöngu um að kennslu- og einka-
flugi verði fundinn nýr staður í ná-
grenni borgarinnar í samræmi við
áður gefin fyrirheit vegna endur-
byggingar vallarins um síðustu alda-
mót og skal stefnt að því að fram-
kvæmdir verði hafnar eins fljótt og
verða má.“
Síðan þetta samkomulag var und-
irritað fyrir réttum sjö árum hefur
ekkert breyst og kennslu- og einka-
flugið hefur verið áfram á Reykja-
víkurflugvelli.
Borgarstjóri lagði svarbréf sam-
gönguráðherra fram til kynningar á
borgarráðsfundi sl. fimmtudag og
varð það tilefni til bókana í ráðinu.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, Eyþór Laxdal Arnalds,
Hildur Björnsdóttir og Valgerður
Sigurðardóttir, lögðu fram svohljóð-
andi bókun: „Kjarni málsins er skýr.
Í bréfi samgönguráðherra segir orð-
rétt að það sé „augljóslega ótíma-
bært og andstætt markmiðum sam-
komulagsins að fjárfesta í flutningi
kennslu- og einkaflugs frá Reykja-
víkurflugvelli yfir á nýjan flugvöll í
nágrenni höfuðborgarsvæðisins á
meðan rannsóknir standa yfir“.
Borgarráðsfulltrúar meirihluta-
flokkanna, Þórdís Lóa Þórhallsdótt-
ir, Skúli Helgason, Dóra Björt Guð-
jónsdóttir og Líf Magneudóttir,
lögðu fram svohljóðandi gagnbókun:
„Kjarni málsins er frekar sá að sam-
gönguráðuneytið svarar spurningu
um hvert eigi að flytja æfinga-,
kennslu- og einkaflug með því að
vísa til Hvassahrauns og vill að nið-
urstöður veðurathugana sem standa
yfir í vetur liggi fyrir áður en form-
legar ákvarðanir eru teknar. Það er
eðlilegt og mikilvægt að nú liggi skýr
stefna í málinu fyrir.“
„Magalending borgarstjóra“
Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins,
Vigdís Hauksdóttir, lagði fram svo-
hljóðandi bókun: „Borgarstjóri legg-
ur hér fram matreitt minnisblað til
að túlka svarbréf samgönguráðherra
til borgarinnar varðandi nýjan stað
fyrir kennslu- og einkaflug. Tilvist
þessa bréfs sprettur af magalend-
ingu borgarstjóra frá því fyrr í sum-
ar þar sem hann rauk í það að senda
ráðherra bréf og krafðist þess að án
tafar yrði fundinn nýr staður fyrir
kennslu- og einkaflug í stað Reykja-
víkurflugvallar. Borgarstjóri taldi að
framkvæmdirnar kæmu sér vel
vegna erfiðleika í efnahagslífinu.
Þarna endanlega sannaðist að borg-
arstjóri er ekki á sömu blaðsíðu og
meginþorri landsmanna. Samgöngu-
ráðherra henti grín að borgarstjóra
og sagði í fjölmiðlum að þetta verk-
efni væri nú ekki í forgangi í erfiðu
árferði ríkisins.“
Ótímabært að byggja flugvöll
Kennslu- og einkaflug áfram í Reykjavík Beðið verður eftir niðurstöðum varðandi Hvassahraun
Morgunblaðið/Haraldur Guðjónsson
Kennsluflug Reykjavíkurflugvöllur verður áfram notaður en Sandskeið, þar sem myndin er tekin, hefur einnig nýst.
Dagur B.
Eggertsson
Sigurður Ingi
Jóhannsson