Morgunblaðið - 19.10.2020, Side 13

Morgunblaðið - 19.10.2020, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 2020 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is AFMARKANIR & HINDRANIR Fjölbreyttar lausnir til afmörkunar á ferðamannastöðum, göngustígum og bílaplönum. Dvergarnir R Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Gibbonaparnir á Hainan-eyju í Kína, sjaldgæf- asta prímatategund á jörðinni, voru þegar í mik- illi útrýmingarhættu árið 2014 þegar öflugasti fellibylur sem farið hefur yfir strönd Kína skall á eyjunni þeirra. Búsvæði apanna hafði þá þegar verið skert um helming vegna bygginga og skógarhöggs og skógurinn sem eftir var hafði einnig verið grisj- aður. Aparnir, sem eru rófulausir, hafast ein- göngu við í trjám og fara um svæðið með því að stökkva milli trjánna. En fellibylnum Rammasun fylgdu miklar aurskriður sem grófu stór skörð í skóginn þar sem aparnir hafast við og skar um leið á sam- gönguleiðir þeirra. „Skógareyðing hefur mjög alvarlegar afleið- ingar fyrir gibbonapa,“ sagði Bosco Pui Lok Chan, yfirmaður Kadoorie-náttúrurannsókna- stofunnar í Hong Kong, við AFP. „Hún skerðir ekki aðeins möguleika þeirra til að afla sér fæðu heldur gerir hún makaleit erfiðari og þeir verða berskjaldaðir fyrir rándýrum.“ Hugljómun Eftir fellibylinn tóku Chan og samstarfsmenn hans, sem fylgdust með öpunum, eftir því að þeir áttu í erfiðleikum með að komast yfir þessi nýju skörð í skóginum. „Og þegar þeir reyndu það fóru þeir áhættusamar leiðir með löngum stökkum milli stakra trjáa sem eftir stóðu.“ Þá fékk Chan eins konar hugljómun. „Við smíðuðum tvíþætta hengibrú yfir löskuðu skóg- arsvæðin,“ sagði hann. Í grein, sem Chen og samstarfsmenn hans birtu í tímaritinu Scientific Report, kemur fram að atvinnutrjáklifrarar strengdu tvo samsíða kaðla milli trjáa og brúuðu þannig um 15 metra breitt bil. Einnig var komið fyrir myndavélum með hreyfiskynjurum svo hægt væri að fylgjast með því hvort aparnir nýttu sér brúna. Alls voru níu apar í hópi, sem einangraðist á litlu svæði eftir að skriðurnar féllu. Þetta voru eitt karldýr, tvö fullorðin kvendýr, þrír ung- apar, tveir stálpaðir ungar og einn nýfæddur ungi. 176 dagar liðu áður en einn þeirra hætti sér út á kaðlana en síðan fylgdu hinir fljótlega á eft- ir. Sumir gengu á köðlunum eins og línudans- arar, aðrir sveifluðu sér áfram með því að grípa í þá og enn aðrir gengu á öðrum kaðlinum en héldu sér í hinn. Vísindamennirnir fylgdust með brúnni í 470 daga og náðu yfir 200 ljósmyndum og 50 myndskeiðum af öpunum fara yfir hana. Chan segir að svona hengibrýr séu aðeins skammtímalausn og leggja eigi áherslu á að græða skóginn upp að nýju. Hins vegar geti þessi tilraun haft þýðingu þegar gerðar séu verndaráætlanir fyrir aðrar apategundir. Alls eru 20 þekktar gibbonapategundir í Asíu og flestar eru flokkaðar í hættu og mikilli hættu á válista Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna, IUCN. Hainan-gibbonapann, Nomascus hainanus, er aðeins að finna í Bawangling-þjóðgarðinum á Hainan-eyju. Áætlað var að aparnir væru um 2.000 talsins á sjötta áratug síðustu aldar en þeim fækkaði verulega á næstu aratugum og eru nú aðeins um 30. Fullorðnir karlapar eru kolsvartir en kven- dýrin með gulllitan feld og svartan koll. Flestir gibbonappar eru með sama makanum ævilangt en á Hainan eru apafjölskyldurnar eitt karldýr, tvö kvendýr og einn ungi. Eldri rannsóknir hafa sýnt að aparnir syngja eins konar tvísöng á morgnana, líklega til að merkja yfirráðasvæði sitt og efla tengsl sín á milli. Peking Gibbonasvæðið Hainan-eyja KÍNA Haikou Hainan Bawangling þjóðgarðurinn Sanya Gibbonaparnir á Hainan-eyju Sú prímatategund sem er í mestri útrýmingarhættu Um það bil 30 einstaklingar Fjöldi Í hættu vegna gróðureyðingar og tvístrunar Heimild : Nature.com/KFBG 60 km Hainan-gibbonaparnir Staðan Afar sérhæfðir trjábúar Mynda hópa og helga sér svæði Nomascus hainanus Í mikilli útrýmingarhættu Sjaldgæfir Tveir gibbonapar á Hainan-eyju í Kína, kvendýr og ungur api. Aðeins um 30 dýr eru eftir. Brú bjargar öpum í útrýmingarhættu  Sjaldgæfustu prímatategund jarðar á Hainan-eyju í Kína ógnað vegna flóða og skógareyðingar AFP/Kadoorie Farm and Botanic Garden Línudans Aparnir notuðu ýmsar aðferðir. Frank Jensen, borgarstjóri Kaup- mannahafnar, nýtur áfram trausts meirihluta flokksfélaga sinna að því er fram kom í máli hans á blaða- mannafundi í gær. Fjöldi fólks hefur hvatt hann til afsagnar í kjölfar þess að hópur kvenna hefur stigið fram og greint frá kynferðislegri áreitni hans gagnvart sér. Jensen hefur ekki tekið fyrir ásakanirnar heldur beinlínis gengist við því að hafa brotið á kon- unum: Hann bað Mariu Gudme af- sökunar, en hann braut á henni árið 2012. Hann bað hóp kvenna afsök- unar sem hann braut á árið 2011. Og hann gekkst við því að hafa hegðað sér með ósæmilegum hætti í fögnuði á vegum Jafnaðarmannaflokksins ár- ið 2004. „Mér þykir ótrúlega leitt að hafa brotið af mér í margvíslegu sam- hengi,“ sagði Jensen í gær. Áður hef- ur hann ítrekað verið sakaður um við- líka hegðun en steininn tók úr þegar enn fleiri konur stigu fram í viðtali við Jyllands-Posten um helgina. Jensen sagði að jafnvel þótt þessar frásagnir fengju fjölda fólks til að líta hann öðrum augum lofaði hann bót og betrun. Hann hygðist ekki segja af sér, hvorki sem borgarstjóri né sem varaformaður flokksins, þar sem Mette Frederiksen forsætisráðherra er formaður. Næstu mánuðir fara að sögn Jensens í að byggja upp traust á nýjan leik og hann hyggst áfram vera oddviti flokksins í sveitarstjórnar- kosningum árið 2021. Segja má að önnur bylgja MeToo- hreyfingarinnar gangi nú yfir Dan- mörku, en hún hófst í síðasta mánuði með áhrifamikilli ræðu fjölmiðlakon- unnar Sofie Lind. Stutt er síðan Mette Frederiksen sagði á sam- félagsmiðlum að hún styddi allar konur sem stigju fram. snorrim@mbl.is „Mér þykir þetta ótrúlega leitt“  Braut af sér gagnvart fjölda kvenna Skjáskot/DR #MeToo Frank Jensen heldur áfram sem borgarstjóri Kaupmannahafnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.