Morgunblaðið - 19.10.2020, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 2020
✝ Sigurður Grét-ar Magnússon
fæddist í Reykjavík
15. september 1964.
Hann lést 28. sept-
ember 2020 á heim-
ili sínu í Reykjavík.
Foreldrar hans voru
Magnús Sigurðsson,
f. 14. janúar 1931, d.
16. september 1980,
og Edda Filippus-
dóttir, f. 22. mars
1934, d. 18. nóvember 1994.
Systkini Sigurðar eru: Guðlaugur
Ragnar, f. 20. desember 1952,
maki Sigríður Ólöf Björnsdóttir, f.
12. september 1952, Nanna Krist-
ín, f. 12. júní 1956, maki Smári
Emilsson, f. 14. september 1956,
og Berglind Jófríður, f. 21. júní
þeirra eru Hayley, f. 2006, Quin-
ten, f. 2011, og Alicia, f. 2013. 2)
Bryndís Eva, f. 16. september
1987, maki Daníel Freyr Krist-
ínarson. 3) Magnús, f. 10 júlí 1989.
Svanhildur og Magnús eru bæði
búsett í Belgíu.
Sigurður starfaði hjá Skeljungi
áður en hann flutti til Belgíu 1994.
Þar starfaði hann sem bifreiða-
stjóri þangað til hann flutti aftur
til Íslands 2006. Þá hóf hann störf
sem bifreiðastjóri hjá Bönunum
ehf. og Bónus. Hann starfaði síð-
ast hjá Aðföngum þangað til hann
lést. Hann var lengi meðlimur í
Litlu nefnd í Ferðaklúbbi 4x4.
Útför Sigurðar fer fram í Há-
teigskirkju í dag, 19. október
2020, klukkan 13. Í ljósi aðstæðna
verða aðeins nánustu aðstand-
endur viðstaddir en athöfninni
verður streymt á:
https://www.facebook.com/groups/
sgmutfor
Virkan hlekk á slóð má nálgast
á
https://www.mbl.is/andlat
1960, maki Steinar
Davíðsson, f. 22.
október 1957. Sig-
urður var yngstur.
Sigurður ólst upp
á Lynghaga í Vest-
urbæ Reykjavíkur,
þar sem hann gekk
fyrst í Melaskóla og
svo Hagaskóla. Hann
hóf sambúð með
Margréti Halldóru
Brynjólfsdóttur
(Grétu) árið 1981, þau skildu 2006.
Foreldrar Grétu eru: Brynjólfur
Jónsson, f. 14 janúar 1939, og
Svanhildur Sigrún Stefánsdóttir, f.
31. júlí 1939, þau skildu.
Börn Sigurðar og Grétu eru: 1)
Svanhildur Edda, f. 3. september
1982, maki Steven Albergs, börn
Kær bróðir minn er fallinn frá
eftir erfið veikindi. Hann var
bjartsýnn í veikindum sínum og
hélt að hann fengi lengri tíma með
sínu fólki, en kallið kom óvænt.
Siggi var yngstur í systkina-
hópnum. Ég var átta ára þegar
hann fæddist og fékk fljótlega það
hlutverk að gæta hans. Það reynd-
ist ekki erfitt því fljótt kom í ljós
hvað hann hafði gott geðslag. Það
var alltaf stutt í léttleikann og
gleðina. Hann fór ekki með hávaða
og látum í gegnum lífið. Við ól-
umst upp í Vesturbæ Reykjavík-
ur. Alltaf minntist hann æsku-
áranna með hlýju og gleði.
Þegar Siggi kom til Íslands eft-
ir 12 ára dvöl í Belgíu 2006 flutti
hann í húsið til mín og Smára, það
var ómetanlegt að hafa hann
svona nálægt okkur og áttum við
margar góðar samverustundir
hvort sem var úti í sólinni í garð-
inum eða við matarborðið. Við átt-
um oft gott spjall.
Siggi var duglegur að ferðast
um landið sitt og honum leið
hvergi betur en á fjöllum hvort
sem var vetur eða sumar. Ég er
þakklát fyrir fjallaferðina sem við
systkinin og fjölskyldur fórum í
saman síðasta sumar. Ég er þakk-
lát fyrir hvað Siggi var góður
bróðir. Ég er þakklát fyrir hvað
Siggi reyndist barnabörnunum
mínum góður frændi.
Ég er þakklát fyrir allar minn-
ingarnar sem ég mun varðveita.
Innilegar samúðar- og kærleik-
skveðjur til allra vina hans og fjöl-
skyldu, þá sérstaklega til barna
hans, tengdabarna og barna-
barna. Við kveðjum hann hinstu
kveðju og þökkum samfylgdina.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Hvíl í friði elsku bróðir.
Nanna og Smári.
Elsku Siggi okkar. Við trúum
því ekki að þú sért farinn frá okk-
ur en núna ertu farinn til englanna
eftir hetjulega baráttu við veikindi
þín. Þú varst í blóma lífsins og full-
ur af fjöri þegar þú byrjaðir að
veikjast og hélst því allt til enda.
Þú varst svo sterkur og ætlaðir
ekki að láta þetta buga þig heldur
njóta þess sem lífið hefði upp á að
bjóða. Þú varst nýbúinn að kaupa
þér ferðabíl sem þú ætlaðir þér að
ferðast um landið með. Það var
það skemmtilegasta sem þú gerð-
ir. Þrátt fyrir mikil veikindi sem
tóku sinn toll kvartaðir þú aldrei.
Við eigum svo margar góðar
minningar um þig. Þú varst alltaf
svo kátur og skemmtilegur, alltaf
til í að segja skemmtilegar sögur
og gera stundirnar eftirminnileg-
ar. Þú hafðir einstaka nærveru og
varst í raun alltaf eins og einn af
krökkunum okkar, elsku Siggi
bróðir eins og þú varst alltaf kall-
aður. Einstaklega blíður og þægi-
legur í alla staði og alltaf hægt að
leita til þín ef á aðstoð þurfti að
halda. Þú varst alltaf reiðubúinn
að hjálpa. Þær eru ótal ferðirnar
sem við fórum saman, bæði upp á
fjöll og austur að Fossum, og eru
þær allar jafn eftirminnilegar.
Ekki síður öll matarboðin í Veg-
húsum. Begga man svo vel eftir
því er þú komst í heiminn, svo sæt-
ur og fallegur. Þau voru ófá skipt-
in sem Begga passaði þig og ekki
var hún gömul þegar hún fór með
þig í barnavagninum upp í bakarí
að kaupa brauð. Á bakaleiðinni lét
hún þig renna í vagninum niður
brekkuna í Tómasarhaganum með
þeim afleiðingum að hann valt á
hliðina og beyglaðist. Í geðshrær-
ingu leit Begga í vagninn og þar
lástu svo bara brosandi yfir þessu
öllu. Þú varst einstaklega rólegt
og skemmtilegt barn.
Elsku Siggi, við söknum þín svo
mikið og þú munt alltaf eiga hlut í
hjarta okkar. Það er svo skrítið að
hafa þig ekki lengur til staðar.
Elsku Svana, Bryndís og Maggi,
guð gefi ykkur styrk á þessum erf-
iðu tímum og innilegustu samúð-
arkveðjur með bæn og huggun til
ykkar.
Berglind Jófríður,
Steinar og fjölskylda.
Elsku Siggi okkar, ég sit hér
með fjölskyldu minni og reyni að
finna réttu orðin fyrir hinstu
kveðjuna okkar til þín. Þá rifjast
upp fyrir mér hver þú varst fyrir
mér í æsku. Þú varst alltaf fyndni
og hressi frændinn. Alltaf til í að
búa til bros. Þegar ég sagði Soffíu
Sól okkar að þú værir farinn frá
okkur þá sagði hún í gegnum tárin
„en hann sem er svo skemmtileg-
ur“. Þú varst ennþá skemmtilegi
frændinn, líka í hjörtum barna
minna. Takk fyrir það!
Nú ertu farinn elsku frændi minn.
Frá okkar veröld lausn fékk andi þinn.
Á himinborg blika stjörnur tvær.
Hve brosi í augum þínum líkjast þær.
(Svava Strandberg)
Við eigum margar góðar minn-
ingar um þig. Við erum öll sér-
staklega þakklát fyrir frábæru
jeppafjallaferðina okkar í sumar
þar sem þú varst okkar farar-
stjóri. Dásamlegar og dýrmætar
minningar sem við sköpuðum öll
saman þar sem við munum varð-
veita í hjörtum okkar.
Ég vil á fjöllin fara
fremur en að vera í byggð,
orku þar enga spara
en ávallt þjóna af dyggð.
Guð hefur margan glaðan dag
látið mig lifa á heiðum
líknandi mínum hag.
(Sigvaldi skáld)
Elsku Svanhildur Edda, Bryn-
dís Eva, Magnús og fjölskyldur,
við sendum ykkur okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Hvíldu í friði elsku frændi okk-
ar.
Edda Ósk, Stefán, Soffía
Sól og Daníel Smári.
Sigurður Grétar Magnússon,
Siggi Magg eða Lækarinn eins og
hann var oftast kallaður, hefur
kvatt okkur í síðasta sinn. Ég
kynntist honum í gegnum fé-
lagsskap Ferðaklúbbsins 4x4 en
þar var Siggi Magg tíður gestur á
fundum, opnum húsum og í starfi
Litlunefndarinnar, en þar var
hann starfandi þegar kallið kom.
Árið 2007 urðu miklar sviptingar í
klúbbnum og þegar ég kom að
stjórnunarstörfum í honum var
Siggi Magg einn af þeim sem
studdu mig og nýja stjórn dyggi-
lega og var ávallt tilbúinn að koma
að málum, hvort sem um var að
ræða ferðir fyrir bíla á stórum
dekkjum eða litlum.
Hann var alltaf brosandi og
fljótur að svara fyrir sig ef reynt
var að skjóta á hann. Ég man eftir
mörgum opnum húsum, bæði uppi
á Eldshöfða og í Síðumúlanum,
þar sem hann sat og spjallaði um
daginn og veginn. Ég held að það
hafi ekki verið margar ferðir sem
Siggi Magg mætti ekki í, eða
árshátíðir, þar sem hann var fljót-
ur að panta miða fyrir sig og fé-
lagana. Þegar stórferðin 2020 var
auglýst var Siggi með þeim fyrstu
að panta og staðfesta að hann ætl-
aði ekki að missa af þessari ferð.
Við vorum mikið í sambandi þar
sem hann var að skrá fleiri í hóp-
inn hjá sér sem hét Flotið. Því
miður féll þessi ferð eins og marg-
ar aðrar niður vegna Covid-19.
Siggi Magg var mjög duglegur
að vinna með Litlunefndinni og fór
ófáar ferðir með henni sem farar-
stjóri, þar sem hann var í essinu
sínu og óþreytandi að hjálpa og
aðstoða þá sem þurftu á hjálp að
halda. Þar er honum best lýst;
hjálpsamur og ávallt með bros á
vör.
Það var mikið högg að frétta að
Sigurður væri fallinn frá, sérstak-
lega þar sem það hafði aldrei bor-
ist í tal að hann væri veikur og
aldrei sá maður né heyrði að eitt-
hvað væri að. Það eru forréttindi
að kynnast fólki eins og Sigurði
Grétari Magnússyni, fólki sem
gefur mikið af sér og þiggur aldrei
neitt í staðinn. Hann var mjög
duglegur og atorkusamur og ekki
síst góður félagi. Ég segi bara
takk fyrir samfylgdina og takk
fyrir allt sem þú gafst okkur í
klúbbnum þínum af atorku þinni
og gleði.
Ég kveð Sigga Magg, Lækar-
ann, með þakklæti og virðingu.
Einnig votta ég aðstandendum
samúð mína.
Sveinbjörn Halldórsson,
formaður Ferðaklúbbsins 4x4.
Sigurður Grétar Magnússon
hóf störf hjá Aðföngum árið 2016
sem yfirmaður akstursdeildar.
Hann féll strax inn í hópinn og
reyndist starfsfélögum sínum vel
frá fyrsta degi. Við sem unnum
með honum minnumst þess
hversu gott var að leita til hans
með hvers konar beiðnir sem hann
leysti ávallt með bros á vör. Siggi
Magg, eins og hann var kallaður af
samstarfsfólki sínu, var hjálpsam-
ur, jafnlyndur, kurteis og satt best
að segja, hvers manns hugljúfi.
Undanfarna mánuði glímdi
Siggi Magg við alvarleg veikindi
en vildi þrátt fyrir það fylgjast
með okkur og taka að sér þau
verkefni sem hann gat sinnt. Hon-
um líkaði ekki vel að vera aðgerða-
laus og heimsótti okkur reglulega
í hádegismat eins og hægt var.
Okkur þótti gott að fá hann í heim-
sókn.
Það fór ekki fram hjá neinum
sem Sigga Magg þekktu að hann
var mikill áhugamaður um jeppa
og fjallaferðir. Hann fór í margar
jeppaferðir, hvort sem var að vetri
eða sumri og fyrir valinu varð
rauður fjallabíll, annaðhvort með
númerinu LIKE eða IT. Hann
vissi alveg hvar honum líkaði vel
að vera – uppi á fjöllum að njóta
náttúrunnar og ekki skemmdi ef
ferðunum fylgdu smá áskoranir.
Í lautinni, þar sem lyngið grær
og lindin er hljóð og angurvær,
má glataða gleði finna.
Friðland á sá, sem flugi nær
til fjallahlíðanna sinna.
Ef ég að borginni baki sný,
þá brosir við augum veröld ný,
full af ódáinsangan.
Þar hefjast bláfjöllin hátt við ský,
með hádegissól um vangann.
Kletturinn er mín konungshöll,
kirkja mín tindur, þakinn mjöll,
helguð heilögum anda.
Þar vex og hækkar mín hugsun öll,
unz himnarnir opnir standa.
Hreinn er faðmur þinn, fjallablær.
Fagurt er þar, sem lyngið grær.
Þar get ég elskað alla.
Á tíma og eilífð töfrum slær
af tign hinna bláu fjalla.
(Davíð Stefánsson)
Við í Aðföngum sendum okkar
innilegustu samúðarkveðjur til
barna Sigurðar, fjölskyldu, ætt-
ingja hans og vina. Við þökkum
Sigga Magg samstarfið og vinátt-
una í gegnum árin og kveðjum vin
okkar með söknuði.
Fyrir hönd starfsmanna Að-
fanga,
Hafdís Rósa Sæmundsdóttir.
Elsku Siggi okkar. Takk fyrir
að vinna með okkur í Litlunefnd
Ferðaklúbbs 4x4, þar sem þú hef-
ur lagt fram ómælda vinnu með
endalausum áhuga og gleði í
fjöldamörg ár.
Takk fyrir að segja já við öllu
sem okkur datt í hug, vera alltaf til
í allt og sjá allar hindranir sem
fullkomlega yfirstíganlegar, engin
vandamál, bara lausnir.
Takk fyrir alla þolinmæðina við
að hjálpa og leiðbeina öðrum,
sama hvað á bjátaði í ferðunum
okkar, hvort sem var hjá nýliðum
eða lengra komnum.
Takk fyrir að segja allt sem þér
datt í hug, vera ekkert að skafa af
hlutunum og vera „one of a kind“.
Takk fyrir allan húmorinn og
einskæru gleðina, að vera alltaf
fyndni gaurinn sem vissi alltaf
hvað átti að segja og hvernig átti
að svara fyrir sig.
Takk fyrir brosið sem lagaði
allt og prakkaraglottið sem sagði
allt sem segja þurfti.
Takk fyrir að gefa okkur ómælt
magn af góðum minningum, sem
við getum yljað okkur við um
ókomna tíð og huggað okkur við á
erfiðustu stundunum yfir að missa
þig svona fljótt.
Takk fyrir að vera þú, við mun-
um sakna þín sárlega og minnast
þín með þakklæti fyrir allt og allt.
Takk vinur!
Þínir vinir í Litlunefnd,
Aron, Berglind, Björn,
Guðlaugur, Ingvi, Jó-
hannes og Jóhanna.
Sigurður Grétar
Magnússon
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, frændi
og bróðir,
HEIÐAR RÓBERT ÁSTVALDSSON
danskennari,
lést á Landspítala sunnudagsnóttina
4. október.
Streymt verður frá útförinni miðvikudaginn 21. október
klukkan 13 á www.facebook.com/groups/heidarastvaldsson
Ástvaldur Heiðarsson Jóna María Magnúsdóttir
systkini og fjölskyldur
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og bróðir,
MÁR B. GUNNARSSON
skipstjóri,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
mánudaginn 12. október.
Heiðrún Anna Björnsdóttir Jamie Lawson
Vigdís Másdóttir Bergsteinn Sigurðsson
Helga Rósa Másdóttir Rögnvaldur Ólafsson
Anna Lilja Másdóttir Viðar Reynisson
og barnabörn
Indiana B. Gunnarsdóttir
Stefán B. Gunnarsson
Ólafur Þorri Gunnarsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN ÞÓRHALLSSON,
Hvammstanga,
lést að morgni fimmtudagsins 8. október á
Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranesi.
Útförin fór fram í kyrrþey hinn 16. október
frá Hvammstangakirkju.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Björg Stefanía Sigurðardóttir
Emilía Marta Þrándur Óðinn
Ólafur Hallur Hulda
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka,
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR,
Blikahólum 2,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
þriðjudaginn 13. október. Útförin fer fram
frá Lindakirkju föstudaginn 23. október kl.
13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir.
Streymt verður frá athöfninni.
Systkinin
og fjölskyldur þeirra
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RANNVEIG GÍSLADÓTTIR
bókasafnsfræðingur,
lést á Landspítalanum föstudaginn 16.
október. Jarðarför auglýst síðar.
Guðmundur Ingason Gyða Jónsdóttir
Örn Erlendur Ingason Guðbjörg Rós Sigurðardóttir
Haukur Ingason Katrín Þórarinsdóttir
Sólborg Erla Ingadóttir Kristinn Harðarson
Þórdís Ingadóttir Snorri Þorgeir Ingvarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir minn, afi og bróðir okkar,
ÁGÚST RAFN INGÓLFSSON
vélstjóri,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold
laugardaginn 10. október.
Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn
23. október klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður aðeins nánasta fjölskylda
viðstödd. Beina útsendingu frá útförinni verður hægt að nálgast
á mbl.is/andlát.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Agnar Jón Ágústsson
Ari Daníel Agnarsson
Örn Ingólfsson
Einar Ingólfsson