Morgunblaðið - 19.10.2020, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 19.10.2020, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 2020 Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina. Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar. Birting minningargreina Samkomubann og óvenjulegar aðstæður í þjóðfélaginu hafa leitt til þess að útfarir eru nú með breyttu sniði. Morgunblaðið hefur brugðist við með því að rýmka reglur um birtingu á minningargreinum. Minningargreinasíður blaðsins standa opnar öllum þeim sem vilja minnast ástvina eða sýna aðstandendum samúð og samhug. Í ljósi aðstæðna hefur verið slakað á fyrri verklagsreglum hvað varðar útfarir í kyrrþey. Ekkert er því til fyrirstöðu að birta minningargreinar sama dag og útför einstaklings er gerð hvort sem hún er háð fjöldatakmörkunum eða gerð í kyrrþey. Starfsfólk greinadeildar Morgunblaðsins er boðið og búið að aðstoða þá sem hafa spurningar um ritun minningargreina eða hvernig skuli senda þær til blaðsins. ✝ Stefán Gunn-arsson vöru- bílstjóri og verk- taki á Djúpavogi fæddist 25. maí 1958 í Hnaukum í Álftafirði. Hann lést í faðmi fjöl- skyldunnar á líkn- ardeild Landspít- alans 10. október 2020. Foreldrar hans voru Gunnar Guðlaugsson, f. 8.1. 1927, d. 12.1. 2004, og Anna Ingólfsdóttir, f. 13.1. 1932, d. 6.4. 2017. Systkini Stefáns eru Reynir, f. 23.6. Gunnar, f. 4.10. 1980, í sam- búð með Gemmu Ayu Tirta Nandha, f. 10.5. 1992. 3) Ant- on, f. 13.12. 1983, í sambúð með Ölmu Rún Pálmadóttur, f. 30.10. 1985. Börn þeirra eru: Aníta Dögg, f. 15.10. 2006, Arnar Emil, f. 30.12. 2012, og Anna Emilía, f. 21.8. 2015. Stefán ólst upp í Hnaukum í Álftafirði. Hann flutti á Djúpavog árið 1977 þar sem hann bjó og starfaði sem vörubílstjóri og verktaki til síðasta dags. Vegna aðstæðna voru að- eins nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir útförina, sem fór fram 18. október 2020. Stefán verður jarð- settur í Garðakirkjugarði. 1952, Guðlaug, f. 7.5. 1062, Gunnar Rúnar, f. 31.3. 1967, og Snjólfur, f. 22.1. 1973. Eftirlifandi eig- inkona Stefáns er Nína Sigríður Jónsdóttir, f. 13.10. 1957. Börn Stefáns og Nínu eru: 1) Halla, f. 30.4. 1978, gift Sigurði Erni Magnússyni, f. 5.7. 1976. Börn þeirra eru: Nína Lind, f. 11.2. 2011, Stef- án Breki, f. 27.12. 2013, og Brynjar Atli, f. 29.8. 2016. 2) Minn allra besti félagi er fall- inn frá langt fyrir aldur fram. Mig setur hljóðan og ég finn til í hjart- anu að hugsa til þess að þetta sé raunveruleikinn. Okkar leiðir lágu fyrst saman þegar Stebbi var að vinna í Bræðslunni og var á skellinöðru eins og ég. Okkar samgangur varð svo meiri þegar við hófum atvinnurekstur, Stebbi með vörubíl og ég með rútu. Það var ósjaldan sem við skokkuðum á milli húsa með víxileyðublöð. Stebbi keypti sinn fyrsta vörubíl árið 1979 og byrjaði fljótlega í snjómokstri fyrir Vegagerðina milli Djúpavogs og Hafnar. Það kom sér afar vel fyrir mig þar sem ég var með sérleyfið á sömu leið. Oft hringdi Stebbi í mig þeg- ar ég var í áætlun ef tvísýnt var með veður og beið þá eftir mér og var viss um að ég kæmist örugg- lega til baka, því er ég ævinlega þakklátur. Síðar stofnuðu Stebbi og Nína SG vélar. Eftir Stebba og hans frábæra starfsfólk liggja margir flottir vegir og hafnar- mannvirki. Þar má nefna vegi á Tjörnesi, við Bakkaflugvöll, í Suð- ursveit, hafnargerð á Vopnafirði, Fossárvík í Berufirði, gatnagerð á Djúpavogi, Öxi og margt fleira. Þessir vegir bera vott um snyrti- mennsku og flottan frágang. Undanfarin ár hefur fyrirtækið stækkað ört og við bættist flutn- ingur á laxi og fleiru ásamt því að gera út tvo strandveiðibáta. Við eigum börn á sama aldri og var mikill samgangur á milli okk- ar. Mér er minnisstætt þegar við fórum öll til Mallorca fyrir rúm- um 30 árum, allar útilegurnar og íþróttamótin með börnin okkar. Við keyptum okkur vélsleða og skíði og settum upp skíðalyftu fyrir ofan æskuheimili Stebba á Hnaukum og kölluðum það svæði Álftfirsku alpana. Það var mikið á sig lagt við þá uppsetningu, sprengd hola fyrir staur, dráttar- vél dregin upp með jarðýtu og ýmislegt annað brallað. Síðan drógum við krakkana á skíðunum upp að lyftu. Við fórum víða um dalina í kringum Djúpavog á vélsleðunum og inn að Snæfelli. Minnisstætt er þegar við fórum öll inn að Innstigi og vorum að draga krakkana á sleðunum og stálumst inn í hús kvenfélagsins á Djúpavogi, kveiktum upp og fengum okkur kaffi. Eftir miðnætti það sama kvöld hringir Stebbi í mig og spyr hvort ég hafi slökkt á gasinu í húsinu, ég sagðist ekki muna eftir því. Við hentum okkur í föt og fór- um á vörubílnum með sleðana inn í dal og þegar við komum að hús- inu var mjög notalegt þar inni og mátti engu muna að kviknað hefði í kofanum! Stebbi var þeim eig- inleika gæddur að skipta aldrei skapi, sama hvað gekk á. Mikið er ég fegin að hafa getað verið Stebba innan handar þegar hann þurfti þess við. Ég á eftir að sakna þess að geta ekki hringt í þig og spjallað eins og við gerðum svo oft. Innilega er ég þakklátur fyrir daginn sem við áttum saman fyrir stuttu þegar við fórum að skoða nýju gröfuna, þá varst þú ekkert á því að fara að kveðja. Elsku Nína, Halla, Gunnar, Anton og fjölskyldur, okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Megi góður Guð styrkja ykkur á þess- um sorgartímum og minningin um dásamlegan eiginmann, föð- ur, tengdaföður og afa lifa. Við kveðjum þig með söknuði elsku Stebbi. Hjörtur og Bríet. Að búa í litlu samfélagi úti á landi eru ákveðin forréttindi. Það skiptir hver einstaklingur máli, við þekkjumst öll og getum leitað hvert til annars ef eitthvað bjátar á. Við deilum gleði og sorg, reyn- um að vera til staðar ef höggvið er skarð í okkar samfélag. Einn af okkar mætu mönnum, Stefán Gunnarsson frá Hnaukum, kvaddi okkur fyrir aldur fram. Stebbi Gunnars eins og við köll- uðum hann var einn af lykilmönn- um samfélagsins okkar hér á Djúpavogi. Rak fyrirtæki sitt S.G. Vélar, fyrirtæki í verktaka- starfsemi sem gerði út vinnuvélar ásamt vöru- og flutningabílum. Fyrirtæki sem hann byggði upp út frá einum vörubíl. Fyrirtæki sem skapar atvinnu og hefur haft jákvæð áhrif á alla þætti sam- félagsins. Ég átti þess kost að vinna mik- ið með Stefáni í starfi mínu sem sveitarstjóri Djúpavogshrepps í þau sextán ár sem ég gegndi því. Þegar litið er til baka er minn- ingin um þennan góða dreng á einn veg; duglegur, úrræðagóður, góður í umgengni og með létta lund. Þegar ég tók við sem sveit- arstjóri á Djúpavogi árið 1986 lá fyrir að skipta þurfti um vatns- leiðslu frá vatnsbólinu á Búlands- dal til Djúpavogs, um 7,5 km leið. Um var að ræða framkvæmd sem ekki gat beðið sökum þess að eldri leiðslan var algjörlega búin að sinna sínu hlutverki. Ég leitaði meðal annars til Stefáns um að- komu að verkinu, sem tók því vel og gekk í verkið ásamt þeim mæta manni Ásgeiri Hjálmars- syni. Verkið kláruðu þeir á tilsett- um tíma, enda ekkert að víla það fyrir sér þótt hönnun fram- kvæmdarinnar lægi ekki fyrir. Í lok framkvæmdar var fenginn verkfræðingur til að koma verk- inu á pappír enda mikilvægt að hafa slíkt skjalfest. Verkefnin sem Stefán kom að þessi ár mín á Djúpavogi voru mörg, það var nánast ekki velt við steini nema hann kæmi þar að verki, enda maður sem ekki þekkti vandamál, heldur hugsaði í lausnum. Það komu að vissu leyti upp efasemdir hjá Stefáni stundum þegar ég leitaði til hans um lausn á ákveðnum verkefnum. Þá átti hann það til að slá á lærið og skella upp úr og segja: „Óli, þetta er ekki hægt að framkvæma.“ Í framhaldinu fór hann á vettvang, gekk til verks og leysti það eins og honum var einum lagið. Á kveðjustundu fer í gegnum hugann hversu mikilvægur hver hlekkur er í litlu byggðarlagi. Framlag Stefáns og hans ein- stöku fjölskyldu hefur verið sam- félaginu á Djúpavogi ómetanlegt. Dugnaður hans og verkkunnátta hefur hjálpað þessu samfélagi í uppbyggingu innviða. Þá hefur fjölskylda hans í Ösp einnig lagt samfélaginu lið. Nína konan hans, þessi einstaka, hæverska lista- kona, hefur auðgað samfélagið með sínu framlagi svo og börnin þeirra þrjú. Það eru algjör for- réttindi að hafa átt þess kost að starfa með þeim á árum mínum hjá sveitarfélaginu. Kæra fjölskylda, innilegar samúðarkveðjur. Ólafur Áki Ragnarsson. Stefán Gunnarsson ✝ Auður Gúst-afsdóttir fædd- ist í Reykjavík 9. mars 1948. Hún lést 10. október 2020 á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. For- eldrar hennar voru Gústaf Lárusson, f. 4.12. 1917, d. 12.2. 2012, ættaður af Barðaströnd, og Þórhildur Magnúsdóttir, f. 22.12. 1917, ættuð úr Bisk- upstungum. Systkini Auðar voru Ásta Vigdís, f. 8.3. 1942, Hildur, f. 9.4. 1943, Hulda, f. 19.4. 1944, Mar- grét, f. 29.4. 1949, og Guðrún, f. 18.9. 1950. Auður giftist Fred Durham hinn 13.6. 1970 og flutt- ist með honum til Bandaríkjanna en þau skildu síðar. Þeirra börn eru Natacha, f. 11.10. 1971, og Dustin, f. 8.6. 1975. Auður fluttist með börnin heim til Íslands 1987. Ár- ið 1998 giftist hún Konráði Júl- íussyni, f. 17.4. 1939, og átti hann fyrir fimm börn og saman áttu þau fjölda barnabarna. Þau skildu síðar. Þegar hún flutti heim til Ís- lands fór hún að vinna hjá Iðn- aðarbankanum sem síðar varð Íslandsbanki. Svo vann hún hjá Spron verðbréfum og endaði starfsferil sinn hjá Seðlabank- anum. Auður var mikið fyrir útivist og almenna hreyfingu og hafði gaman af að spila golf. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, 19. októ- ber 2020. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt á slóðinni: https://tinyurl.com/y4382m3u Virkan hlekk á slóð má nálg- ast: https://www.mbl.is/andlat Elsku fallega systir mín er dáin. Það er svo ótrúlegt að þessi glaðværa og káta systir mín sé horfin yfir móðuna miklu. Það eru svo margar góðar minningar sem sitja eftir. Eins og sú hefð að hitt- ast flestar helgar heima á gamla æskuheimilinu okkar og setjast að kaffihlaðborði hjá mömmu. Þá var mikið spjallað og mikið hlegið. Við áttum það sameiginlegt að hafa gaman af útilegum og við ferðuð- umst um landið þvert og endi- langt. Þá var alltaf glatt á hjalla, Konni og Eyi að grilla og við að horfa á og leggja á borð. Og oftast á kvöldin var spilaður kani og hélt Auður bókhald yfir spilamennsk- una. Svona gæti ég haldið enda- laust áfram. Það er sárara en tár- um taki að kveðja systur mína sem öllum vildi gott gera og alltaf boðin og búin að hjálpa öðrum. Og hvað hún var góð og hjálpleg með mömmu okkar sem sýnir hve góð manneskja hún var. Elsku Natacha og Dustin og ykkar fjölskyldur, okkar bestu samúðarkveðjur. Megi algóður guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Ásta og Eyjólfur (Eyi). Fallinn er frá góður samstarfs- félagi okkar, Auður Gústafsdóttir, eftir baráttu við illvígan sjúkdóm. Auður hóf störf í deild lánamála ríkisins í Seðlabanka Íslands snemma árs 2010 og starfaði þar uns hún fór á eftirlaun átta árum síðar, þá sjötug að aldri. Það eru einungis rúm tvö ár síðan haldin var kveðjuveisla henni til heiðurs og þar eð hún var alltaf heilsu- hraust til vinnu héldum við að hún ætti mörg góð ár eftir til að sinna hugðarefnum sínum, sem voru m.a. að ferðast, sinna gólfíþrótt- inni og njóta þess að vera með barnabörnum sínum. Sá tími sem hún hafði til þess að njóta efri ár- anna var hins vegar stuttur og sannast því hið fornkveðna að eng- inn veit sína ævina fyrr en öll er. Auður bjó yfir mikilli banka- reynslu en áður hafði hún unnið hjá SPRON í 10 ár, og þar áður hjá gamla Íslandsbanka og Iðnað- arbankanum í ýmsum störfum, bæði sem sérfræðingur og yfir- maður. Það var engin tilviljun að Auður, þá 62 ára að aldri, var valin hæfust af þeim 49 umsækjendum sem sóttu um starfið hjá lánamál- um í Seðlabankanum. Oft heyrist að þegar fólk er komið um eða yfir miðjan aldur hafi það ekkert fram að færa á vinnumarkaðinum. Það hafi ekki lengur hæfileika til að til- einka sér nýja hluti og taka breyt- ingum. Auður afsannaði þá kenn- ingu rækilega í Seðlabankanum. Hún var alltaf tilbúin að bæta við sig þekkingu til að sinna nýjum verkefnum sem hún fékk í hend- urnar. Auður var reiðubúin að skoða nýjar leiðir að lausnum og nýttist þar örugglega gömul yfirmanns- reynsla frá SPRON. Hún var sam- viskusöm og nákvæm í öllum verk- efnum sem hún stýrði. Jafnframt var hún þægilegur og jákvæður samstarfsmaður sem gott var að umgangast. Starfsmenn með þessa eiginleika eru eftirsóttir og bankinn var heppinn að fá að njóta starfskrafta hennar og starfs- reynslu. Fjölskyldu hennar og ást- vinum færum við innilegar sam- úðarkveðjur. F.h. samstarfsfólks í Seðla- bankanum, Björgvin Sighvatsson. Auður Gústafsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.