Morgunblaðið - 19.10.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.10.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 2020 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Löngun þín til að auka tekjur þín- ar er komin út í öfgar. Þú getur byrjað á einu, jú eyða minna. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú vilt halda þínu fyrir þig, sér- staklega þegar sköpun er annars vegar. Gerðu ráð fyrir samræðum um framtíð- arvonir og drauma. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú setur markið hátt á hverjum degi. Vinasambönd munu hugsanlega breytast í ástarsambönd, 21. júní - 22. júlí  Krabbi Við höfum öll gott af því að staldra við og líta yfir farinn veg. Þér finnst þú stundum fastur í daglegri rút- inu. Gerðu eitthvað til að brjóta upp dag- inn.. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Augu þeirra, sem eru í kring um þig, eru að opnast fyrir þeim hæfileikum sem þú ert gædd/ur. Hlustaðu á innsæi þitt. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er út í hött að þú hafir ekki sett þér nein markmið í lífinu. Haltu þig við það sem þú gerir vel og fáðu alla þá í lið með þér sem þú mögulega getur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú þarft að endurmeta tengsl þín við vini og vandamenn. Gakktu vasklega til verks í tiltektinni og hentu því sem þvælist fyrir þér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Geta þín til þess að þefa uppi vandamál er með mesta móti í dag. Þér líkar ekki smjaður. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Forðastu rifrildi við stjórn- endur og valdhafa í dag. Teldu upp fimm kosti sem þú hefur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú kemur svo sannarlega miklu í verk þessa dagana. Hafðu þitt á hreinu áður en þú hefur upp raust þína um menn og málefni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Treystu dulrænum hæfi- leikum þínum fyrir alla muni. Nú hefurðu ákveðið að láta af gömlum slæmum vana eða byrja á einhverju nýju sem bætir líf þitt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu ekki ummæli annarra í þinn garð skemma fyrir þér daginn. Stundum þarf eitthvað furðulegt til að vekja mann af værum blundi. minnkað kulnun í starfi, sem hefur verið mikið vandamál undanfarin ár. „Ég hitti í mínu starfi oft fólk sem hefur staðið lengi við sömu síldar- tunnuna og þarf virkilega að endur- hugsa líf sitt. Það er alltaf gaman að geta hjálpað við að finna lausnir, en ég er þannig gerð að ég sé frekar tækifærin en hindranirnar.“ Lára fékk fyrstu verðlaun í Ljóða- samkeppni Háskóla Íslands á degi ís- lenskrar tungu 16. nóvember 2007. „Ég var hjá Þórði Helgasyni há- skólaprófessor í tímum og hann hvatti mig mikið til að taka þátt í keppninni. Það var mjög skemmtilegt fyrir mig vilji lifa. Sú spurning gæti alveg breytt niðurstöðunni og markþjálfar geta hjálpað fólki við þetta ferli og hvernig best sé að ná markmiðunum. „Þjóðfélagið er á svo miklum spretti að við gleymum stundum að draga andann og tengjast okkur sjálfum.“ Hildur vinnur núna sem markþjálfi fyrir Virk starfsendurhæfingarsjóð og segir það mjög gefandi að aðstoða fólk til að finna sína leið og hjálpa við að byggja þessa brú frá stöðunni í dag til þess áfangastaðar sem það hefur augastað á. Hún segir að það sé örugglega gott fyrir marga að skipta um vettvang í lífinu og það geti L ára Óskarsdóttir fæddist í Reykjavík 19. október 1960 og ólst upp í smá- íbúðahverfinu. „Ég ólst eiginlega bara upp við Elliðaárnar, úti í náttúrunni, og var oft upp við Fák og svo fórum við krakkarnir á skíði í Ártúnsbrekkunni á veturna.“ Lára gekk í Breiðagerð- isskóla og Réttarholtsskóla þar sem var oft mikið fjör, enda árgangarnir stórir. Eins og mörg börn á þessum tíma var Lára send í sveit á sumrin, í Eyja- fjörðinn og Bárðardalinn, og sem unglingur var hún á Hrepphólum í Hrunamannahreppi þar sem hún vann ýmis störf. „Ég var að taka upp rófur í stórum stíl og vann við allt sem til féll. Meira að segja var ég hænsnahirðir,“ segir hún kímin. „Svo fór ég líka á síld á Eskifirði þegar ég var tvítug og má segja að ég hafi haldið upp á afmælið við síld- artunnuna. Það var gaman að kynn- ast þessu lífi og þótt þetta hafi nú ekki verið eins og maður hefur heyrt af síldarárunum á Siglufirði í gamla daga voru þetta samt miklar tarnir. Þegar það kom skip inn var ekkert farið heim heldur vaktin staðin.“ Lára nam hárgreiðslu við Iðnskól- ann í Reykjavík og er með meistara- gráðu í faginu. „Ég, systir mín og mamma erum allar hárgreiðslukonur og við rákum hárgreiðslustofuna Permu í smáíbúðahverfinu.“ Um tíma voru hárgreiðslustofurnar þrjár og mikið að gera. Það átti þó fyrir Láru að liggja að breyta um starfsvett- vang, en hún hefur alltaf verið listræn og fann að hún vildi prófa nýja hluti. Upp úr fertugu fór hún í Háskóla Ís- lands og lauk þaðan prófi sem ís- lensku- og myndmenntakennari. Auk þess hefur hún lokið diplómanámi í starfsmannastjórnun og er með PCC-gráðu sem markþjálfi. „Ég hef alltaf haft áhuga á árangri og þetta er svolítið skemmtileg leið í því ferli. Ekki þessi ofboðslega keppnishugsun, heldur mannúðlegri leið til þess að ná settum mark- miðum.“ Lára segir að oft sé fólk að eltast við hluti sem það telur sig eiga að vilja, án þess að líta í eigin barm og spyrja sig heiðarlega hvernig lífi það að vinna keppnina og svo ætlaði ég að gefa út ljóðabók, en það hefur dregist vegna anna, en hún kemur þegar hún á að koma.“ Lára er ekki bara hagmælt heldur hefur hún einnig gott lag á prósa. Núna í vikunni er að koma út hennar fyrsta skáldsaga, Litli garðurinn, sem hún hefur unnið að í talsverðan tíma og Lára er mjög spennt að fá við- brögð við frumrauninni í skáldsagna- gerð. „Nafnið á bókinni er vísun í lítinn garð í Barcelona, en sögusvið bók- arinnar er bæði þar og hér á Íslandi og fjallar um atburð sem veldur straumhvörfum hjá einni fjölskyldu, en ég vil ekki segja of mikið frá at- burðarásinni.“ Lára hefur alltaf verið virk í fé- lagsmálum og hún tók þátt í starf- semi Hugleiks áhugaleikfélags um tíma, var félagsmaður í FKA og sat sem varaborgarfulltrúi fyrir Sjálf- stæðisflokkinn um skeið, en hefur nú sagt skilið við stjórnmálin. „Ég hafði mjög gaman af því að vera í pólitík- inni, en sé núna að þetta var ekki al- veg mín hilla í lífinu. Ég á samt marga góða vini í Sjálfstæðis- flokknum og það breytist ekkert.“ Fjölskylda Eiginmaður Láru er Elís Reyn- arsson fjármálastjóri, f. 20.1. 1958. Foreldrar hans eru hjónin Reynar Lára Óskarsdóttir kennari og markþjálfi – 60 ára Börnin Arnór Gíslason heldur á Frímanni Galdri Ólafssyni, Lára heldur á Eddu Láru Ólafsdóttur, Erla Gísladóttir og Óskar Gísli Kvaran, Kristján Helgi Gíslason, Erpur Arnórsson, Friðrik Þór Ólafsson og Birta Líf Arnórsdóttir. Fyrsta skáldsagan komin í hús Brúðkaup Elís og Lára á brúðkaupsdaginn 19. maí 2019. Rithöfundurinn Lára er spennt fyrir viðtökum Litla garðsins. Til hamingju með daginn 39 50 ára Jón Einar ólst upp í Keflavík og býr núna í Reykjanesbæ. Hann er löggiltur fast- eignasali. Jón Einar er virkur félagi í Oddfellowreglunni á Íslandi. Svo er hann mikill áhugamað- ur um stangveiði. Maki: Bryndís Garðarsdóttir, f. 1974, íslenskukennari í Fjölbrautaskóla Suð- urnesja. Dætur: Camilla, f. 2005, Auður, f. 2007, og tvíburarnir Hrönn og Rann- veig, f. 2009. Foreldrar: Auður Jónsdóttir, f. 1936, hjúkrunarfræðingur og Sverrir Ein- arsson, f. 1929, d. 1977, bifreiðastjóri. Jón Einar Sverrisson 30 ára Stefán Atli ólst upp á Akranesi og í Danmörku og býr núna á Akranesi. Hann er rennismiður hjá Össuri í Reykjavík. Helsta áhugamál Stefáns Atla er stangveiði, helst með flugu, og hann fer eins oft að veiða á sumrin og hann kemst, í vatni, ám og sjó. Maki: Elísa Valdís Einarsdóttir, f. 1993, er í fæðingarorlofi sem stendur. Synir: Úlfar Ingvi, f. 2014, og Drengur, f. 2020. Foreldrar: Óli Páll Engilbertsson, f. 1961, prentsmiður og bókbindari, og Sigríður Einarsdóttir, f. 1961, fóta- aðgerðafræðingur. Þau búa í Danmörku. Stefán Atli Ólason Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.