Morgunblaðið - 19.10.2020, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 2020
England
Everton – Liverpool ................................ 2:2
Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á hjá
Everton á 73. mínútu.
Manchester City – Arsenal..................... 1:0
Rúnar Alex Rúnarsson var varamark-
vörður Arsenal.
Chelsea – Southampton........................... 3:3
Newcastle – Manchester United ............ 1:4
Sheffield United – Fulham...................... 1:1
Crystal Palace – Brighton ....................... 1:1
Tottenham – West Ham .......................... 3:3
Leicester – Aston Villa ............................ 0:1
Staðan:
Everton 5 4 1 0 14:7 13
Aston Villa 4 4 0 0 12:2 12
Liverpool 5 3 1 1 13:13 10
Leicester 5 3 0 2 12:8 9
Arsenal 5 3 0 2 8:6 9
Tottenham 5 2 2 1 15:8 8
Chelsea 5 2 2 1 13:9 8
West Ham 5 2 1 2 11:7 7
Leeds 4 2 1 1 9:8 7
Manch.City 4 2 1 1 7:7 7
Southampton 5 2 1 2 8:9 7
Newcastle 5 2 1 2 7:9 7
Crystal Palace 5 2 1 2 6:8 7
Manch.Utd 4 2 0 2 9:12 6
Wolves 4 2 0 2 4:7 6
Brighton 5 1 1 3 9:11 4
Sheffield Utd 5 0 1 4 2:7 1
WBA 4 0 1 3 5:13 1
Fulham 5 0 1 4 4:12 1
Burnley 3 0 0 3 3:8 0
Þýskaland
Essen – Leverkusen ................................ 0:0
Sandra María Jessen lék fyrstu 78 mín-
úturnar með Leverkusen.
Ítalía
C-deild:
Padova – Legnago Salus......................... 1:1
Emil Hallfreðsson lék fyrri hálfleikinn
með Padova.
Frakkland
Dijon – Le Havre...................................... 2:1
Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði
mark Le Havre en hún og Anna Björk
Kristjánsdóttir léku allan leikinn.
Belgía
B-deild:
Lierse – Royal Union St. Gilloise........... 0:2
Aron Sigurðarson lék í 70 mínútur með
Royal Union og lagði upp mark.
Pólland
Jagiellonia – Lech Poznan...................... 2:1
Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Jagiellonia.
Grikkland
AEK Aþena – PAOK ............................... 1:1
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
Hvíta-Rússland
Isloch – BATE Borisov............................ 2:2
Willum Þór Willumsson lék allan leikinn
með BATE og lagði upp mark.
Danmörk
Midtjylland – OB...................................... 3:1
Aron Elís Þrándarson kom inn á hjá OB
á 75. mínútu en Mikael Anderson var á
varamannabekk Midtjylland allan tímann.
AGF – Horsens......................................... 3:0
Jón Dagur Þorsteinsson lék í 80 mínútur
með AGF og lagði upp fyrsta mark leiksins.
Kjartan Henry Finnbogason kom inn á
sem varamaður á 57. mínútu hjá Horsens.
B-deild:
Kolding – Esbjerg.................................... 1:1
Andri Rúnar Bjarnason lék í 70 mínútur
með Esbjerg. Ólafur H. Kristjánsson þjálf-
ar liðið.
Svíþjóð
AIK – Gautaborg ..................................... 2:0
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á hjá AIK í
uppbótartíma.
Varberg – Norrköping............................ 1:3
Ísak B. Jóhannesson lék tæpar 90 mín-
útur með Norrköping og átti þátt í tveimur
markanna.
Vittsjö – Rosengård................................. 1:1
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
Djurgården – Linköping ........................ 0:3
Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Djurgården.
B-deild:
Kalmar – Sandviken................................ 5:3
Andrea Thorisson kom inn á hjá Kalmar
á 62. mínútu.
Mallbacken – Brommapojkarna ............ 3:0
Kristrún Rut Antonsdóttir lék allan leik-
inn með Mallbacken.
Noregur
Stabæk – Aalesund.................................. 4:0
Davíð Kristján Ólafsson lék fyrri hálf-
leikinn með Aalesund.
Mjöndalen – Brann .................................. 2:0
Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Brann.
Kristiansund – Rosenborg...................... 0:0
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Rosenborg.
Vålerenga – Rosenborg .......................... 1:1
Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga.
FRJÁLSAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hlynur Andrésson langhlaupari frá
Vestmannaeyjum er orðinn handhafi
sex Íslandsmeta utanhúss eftir að
hann sló metið í hálfu maraþoni á
heimsmeistaramótinu í þeirri grein,
21 km hlaupi, í Póllandi á laugardag-
inn. Hlynur hefur þar með á þremur
árum hreinsað upp Íslandsmetin á
öllum vegalengdum frá 3.000 metr-
um og upp í 21 kílómetra.
Hann hljóp á einni klukkustund,
02,47 mínútum á laugardaginn, varð
í 52. sæti af 122 keppendum og bætti
fimm ára gamalt met Kára Steins
Karlssonar um rúmar tvær mínútur.
Þetta er þriðja metið sem Hlynur
tekur af Kára Steini. Fyrst voru það
5.000 metrarnir árið 2017, þá 10.000
metrarnir árið 2018 og nú hálfa
maraþonið.
Á sama tíma hefur Hlynur tekið
tvö met af Jóni Diðrikssyni sem sá
síðarnefndi setti árið 1983. Hlynur
sló met Jóns í 10 km götuhlaupi á
síðasta ári og í 3.000 metra hlaupi í
ágústbyrjun á þessu ári. Loks á
Hlynur Íslandsmetið í 3.000 metra
hindrunarhlaupi en hann sló þar
fimmtán ára gamalt met Sveins
Margeirssonar árið 2018.
Til viðbótar þessu er Hlynur
handhafi þriggja Íslandsmeta innan-
húss, í 1.500, 3.000 og 5.000 metra
hlaupum þar sem hann deilir reynd-
ar tveimur með Jóni og Kára vegna
mismunandi aðstæðna.
Andrea orðin næstbest
Þrír aðrir Íslendingar kepptu á
mótinu og Andrea Kolbeinsdóttir
náði næstbesta árangri Íslendings í
kvennaflokki. Hún varð í 82. sæti af
105 keppendum og hljóp á einni
klukkustund, 17,52 mínútum. Ís-
landsmet Mörthu Ernstsdóttur í
greininni er ein klukkustund, 11,40
mínútur en það setti hún árið 1996.
Andrea, sem er 21 árs gömul, á sjálf
eitt Íslandsmet utanhúss en það er í
3.000 metra hindrunarhlaupi.
Elín Edda Sigurðardóttir meidd-
ist í hlaupinu en lauk keppni í 101.
sæti á 1:24,20 og var fimm mínútum
frá sínum besta árangri. Arnar Pét-
ursson keppti ásamt Hlyni í karla-
flokki en varð að hætta vegna maga-
verks.
Enn hreinsar
Hlynur upp
Íslandsmetin
Sló met Kára í Póllandi og er
handhafi sex Íslandsmeta utanhúss
Ljósmynd/Bjorn Parée
Metaregn Hlynur Andrésson hefur fest sig rækilega í sessi sem fremsti
langhlaupari Íslands á undanförnum þremur árum.
Þótt Aron Jóhannsson hafi ekki
skorað í fyrstu þrettán umferðum
sænsku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu á þessu tímabili er hann
orðinn fimmti markahæsti leik-
maður hennar. Aron skoraði í gær
sitt níunda mark í síðustu ellefu
leikjum Hammarby þegar liðið
sigraði Mjällby á heimavelli, 4:2.
Hann lék fyrstu 73 mínútur leiksins
og kom Stokkhólmsliðinu í 2:0 á
fimmtu mínútu. Hammarby er í
fimmta sæti þegar sex umferðir eru
eftir og er í hörðum slag um Evr-
ópusæti.
Níunda markið
í ellefu leikjum
Ljósmynd/Hammarby
Skorar Aron Jóhannsson raðar inn
mörkum fyrir Hammarby.
Eftir aðeins fimm leiki er Viðar Örn
Kjartansson orðinn næstmarka-
hæsti leikmaður Vålerenga í
norsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu á þessu tímabili. Hann skor-
aði tvö mörk í gærkvöld í 3:0-
útisigri á Sandefjord, og brenndi
auk þess af vítaspyrnu. Viðar hefur
þar með skorað sex mörk síðan
hann sneri aftur til félagsins í haust
eftir sex ára fjarveru. Matthías Vil-
hjálmsson kom inná fyrir Viðar Örn
á 80. mínútu en Viðar Ari Jónsson
lék fyrstu 56 mínúturnar með
Sandefjord í leiknum.
Næsthæstur eftir
fimm leiki
Morgunblaðið/Eggert
Skorar Viðar Örn Kjartansson er
með sex mörk í fimm leikjum.
Landsliðsmennirnir Viggó Krist-
jánsson og Bjarki Már Elísson settu
svip sinn á hörkuleik Stuttgart og
Lemgo í þýsku 1. deildinni í hand-
knattleik í gær og eru í öðru og
þriðja sæti yfir markahæstu menn í
þessari sterkustu deild heims.
Stuttgart og Lemgo skildu jöfn,
26:26, þar sem Viggó skoraði sex
mörk fyrir Stuttgart og Bjarki Már
sjö mörk fyrir Lemgo.
Viggó er nú næstmarkahæsti
leikmaður deildarinnar með 29
mörk fyrir Stuttgart í fyrstu fjórum
umferðunum og Bjarki Már er á
hælum hans með 28 mörk í þriðja
sætinu. Bjarki varð markakóngur
deildarinnar á síðasta tímabili. Nic-
las Ekberg leikmaður Kiel er
markahæstur með 31 mark.
Lið beggja hafa byrjað ágætlega
en Lemgo og Stuttgart eru í átt-
unda og níunda sætinu með fimm
stig hvort að fjórum umferðum
loknum.
Kiel lagði Flensburg á sannfær-
andi hátt í gær, 29:21, og þar með
hafa öll liðin í deildinni tapað stig-
um. Leipzig hefur komið á óvart og
er efst með sjö stig en Magdeburg,
Wetzlar, Rhein-Neckar Löwen,
Bergischer, Kiel og Flensburg eru
með sex stig hvert.
Ásamt Stuttgart og Lemgo eru
Füchse Berlín og Melsungen, lið
Guðmundar Þ. Guðmundssonar,
með fimm stig í næstu sætum.
Balingen, Ludwigshafen og Co-
burg eru hinsvegar stigalaus á
botninum. Oddur Gretarsson, sem
fyrir helgi var valinn í landsliðið á
ný eftir langa fjarveru, skoraði þrjú
mörk fyrir Balingen í ósigri gegn
Essen í gær, 33:27. vs@mbl.is
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson
Annar Viggó Kristjánsson er næstmarkahæsti leikmaðurinn í Þýskalandi
með 29 mörk fyrir Stuttgart eftir fjórar umferðir.
Viggó og Bjarki
fara vel af stað
Tveir af þremur markahæstu í Þýskalandi