Morgunblaðið - 19.10.2020, Side 29

Morgunblaðið - 19.10.2020, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS Nýjasta Meistaraverk Christopher Nolan ★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ The Guardian The Times The Telegraph Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is MÖGNUÐ MYND SEM GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI : ★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ Roger Ebert.com San Fransisco Cronicle The Playlist 88% SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR. FRUMSÝND Á FÖSTUDAG Lesendur sem hafa hrifistaf skrifum KristínarMarju Baldursdóttur umheim kvenna og stöðu geta glaðst því í nýrri skáldsögu sinni Götu mæðranna fjallar hún enn á ný um líf áhugaverðrar kven- persónu. The Rolling Stones eru á fón- inum og pilsin farin að styttast. Marín er nýlega flutt til Reykja- víkur eftir að hafa misst báða foreldra sína með stuttu millibili. Hún býr hjá systur sinni og manni hennar meðan hún lýkur síðasta árinu í menntaskóla, vinnur í miðasölu bíóhúss og teikn- ar í frístundum. Þegar skólanum líkur tekur framtíðin við, eins og óskrifað blað, og Marín verður að fullorðnast hratt. Marín er ein þessara söguper- sóna sem manni þykir umsvifalaust vænt um og heldur með bókina á enda. Saga hennar er grípandi og skautar fimlega fram hjá þeim klisjugryfjum sem uppvaxtarsögur af þessu tagi eiga á hættu að hrapa í. Önnur aðalpersóna verksins er gatan sem Marín býr við. Götu- myndin sem Kristín Marja dregur upp er í senn bráðskemmtileg og raunsæ. Gatan stendur ljóslifandi fyrir lesendum, bæði þegar hún ið- ar af lífi um hábjartan dag og þegar dimma tekur og kyrrð færist yfir. Kristín Marja fangar samband nágranna afar vel. Við götuna býr hópur fólks, lifandi massi, sem vaknar saman og gengur til náða saman, lifir og hrærist á sama blettinum. Þar býr fólk sem mætir hvert öðru á hverjum degi, njósnar hvert um annað í felum bak við gluggatjöldin en kemur annars hvert öðru lítið við. Í götunni þekkjast allir en þó þekkir enginn neinn. Gatan er svo sannarlega gata mæðranna. Það er gata þar sem eiginmenn og feður eru fjarverandi og húsmæðurnar ráða ríkjum. Kristín Marja bregður á það ráð að hafa húsmæðurnar flestar nafn- lausar og saman mynda þær eins- leitan hóp kvenna sem allar sinna sömu heimilisstörfunum. Flestar eru einungis kenndar við eiginmenn sína eða börn en þó eru einhverjar sem skera sig úr hópnum. „Hún taldi upp á fingrum sér dönsku systurnar, flatkökukonuna, konu smiðsins, konu geðvonda karlsins, ungu konuna í risinu, skrýtnu konuna niðri hjá Ingu en komst ekki lengra, hann greip fram í fyrir henni, já, þú meinar heim- spekinginn. Heimspekinginn? Amma sagði að hún hefði lært heimspeki í útlöndum sautján hundruð og súrkál eða eitthvað, og hefði lengst af búið þar. Hún fórn- aði víst öllu fyrir þessa heimspeki. Fórnaði öllu hverju? Nú, bara, heimili og börnum. En hún á heimili.“ (Bls. 119) Saga Marínar speglast í sögum kvennanna sem við götuna búa. Glíma þeirra við væntingar sam- félagsins eru áberandi þegar höf- undurinn dregur fram ýmsar hliðar á móður- og húsmóðurhlutverkinu. Við fyrstu sýn virðist ákveðin tímaskekkja felast í því að deila á húsmóðurhlutverkið nú þegar flest- ar konur eru úti á vinnumarkaðnum til jafns við karlmenn. Því verður þó ekki neitað að það að sjá um að heimilislífið gangi smurt fyrir sig liggur enn að miklu leyti á herðum kvenna. Saga húsmæðranna í göt- unni á því erindi nú þótt samfélagið hafi að mörgu leyti breyst til batn- aðar á þeim áratugum sem liðnir eru frá því Marín spókaði sig um götur Reykjavíkur. Stíll Kristínar er þægilegur og auðlesinn og maður flýgur í gegn- um verkið á skotstundu. Það sem fær lesandann helst til að staldra við eru lýsingar á teikningum og ímyndunarafli Marínar, þar sem hún tekst á við móðurmissinn. Þær brjóta upp annars raunsæislegan texta á forvitnilegan hátt. Ef til vill hefði mátt kanna betur þá mögu- leika sem felast í þessum draum- kenndu brotum og styrkja þau. Gata mæðranna er saga ungrar konu sem þarf að fóta sig í heimi þar sem flestar konur enda í hlut- verki húsmóðurinnar. Vandað verk Kristínar Marju um Marín og (hús) móðurhlutverkið lætur lítið yfir sér framan af en kemur sífellt á óvart og gæti auðveldlega orðið í uppá- haldi hjá mörgum. Þar sem húsmæðurnar ráða ríkjum Morgunblaðið/Kristinn Höfundurinn „Vandað verk Kristínar Marju um Marín og (hús)móðurhlutverkið lætur lítið yfir sér framan af en kemur sífellt á óvart og gæti auðveldlega orðið í uppáhaldi hjá mörgum.“ Skáldsaga Gata mæðranna bbbbn Eftir Kristínu Marju Baldursdóttur. JPV, 2020. Innbundin, 243 bls. RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR BÆKUR Pace-galleríið sýnir um þessar mundir á netinu og býður til sölu teikningar sem hinn fjölhæfi tón- listarmaður David Byrne gerði meðan hann var í einangrun í íbúð sinni í New York eftir að veiru- faraldurinn skall á. Byrne hefur bakgrunn í myndlist en hann nam við listaskóla þegar hann stofnaði ásamt félögum hljómsveitina Talk- ing Heads sem hann er oftast kenndur við. Teikningarnar, sem Byrne kallar „dingbats“, einkennast af nokkuð kaldhæðnislegri sýn á mannlega til- veru en samkvæmt The Guardian verða 50 teikningar seldar. And- virðið rennur til stofnunar Byrnes, Arbutus Foundation, sem reynir að brúa hugmyndafræðilegar brýr fyrir forsetakosningarnar í Banda- ríkjunum. Veiruviðbrögð Ein teikninga Davids Byrn- es, „A balanced life“. Verðið er 3.000 dalir. Einangrunarteikn- ingar Byrnes seldar Gunnar Gränz sýnir um þessar mundir málverk sín í Listagjánni á Bókasafni Árborgar. Gunnar fædd- ist í Vestmannaeyjum árið 1932 en flutti á Selfoss árið 1942. Gunnar er ómenntaður í listinni en í tilkynn- ingu segir að hann líti á sig „sem al- þýðulistamann sem lært hefur í skóla lífsins og sótt menntun til ís- lenskrar náttúru og annarra lista- manna í landinu. Hann málar sér til ánægju og hefur haldið fjölda sýn- inga“. Sýningin er opin á af- greiðslutíma bókasafnsins. Gunnar Gränz sýnir í Listagjánni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.