Morgunblaðið - 24.10.2020, Side 14

Morgunblaðið - 24.10.2020, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is E ftirlitsmenn Fiskistofu hafa reglulega eftirlit með réttmæti skráningar á undirmálsafla, það er að segja afla sem er styttri en útgefin lengdarviðmið, bæði á hafnarvog og í vinnsluhúsum. Þetta er gert með því að taka prufur úr lönd- uðum undirmálsafla og athuga hvort flokkunin í undirmál standist þær reglur sem um hana gilda. Í tæplega 59% tilfella sem Fiskistofa mældi undirmál (hvort fiskur væri minni en útgefin lengdarviðmið) árið 2019 kom í ljós að ekki var um raunverulegan undirmálsafla að ræða. Hlut- fallið sveiflast nokkuð á tímabilinu frá 2015 og nam hlutfallið um 44% árið 2018, rúmum 34% árið 2017, 44% árið 2016 og tæplega 52% árið 2015. „Þetta segir okkur töluvert,“ segir Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir, sviðsstjóri veiðieftirlits- sviðs hjá Fiskistofu. „Menn eru að skrá afla sem undirmál og fá þannig helmingsafslátt á kvótanum, en svo stenst það ekki þegar að er gáð.“ Vísar hún til þess að þegar undirmálsafli er reiknaður til kvóta gildir hann einungis helminginn af því sem gildir um stærri fisk. Mikilvægur hvati en skapar freistnivanda Samkvæmt lögum er skylda að koma með allan afla að landi og hefur verið ákveðið að koma til móts við þá sem fá smærri fiska og draga ein- ungis helming af kvótanum af bátnum. „Málið er að þetta er rosalega mikilvæg regla, því ástæðan fyrir henni er að skapa hvata til að draga úr brottkasti. Hvetja menn til að koma með smáfisk að landi í stað þess að henda hon- um í sjóinn. Markmiðið og tilgangur reglunnar er mjög góður en það er alltaf þessi freistni- vandi til staðar,“ segir Áslaug og vísar til þess að með því að skrá stærri fisk sem undirmál er hægt að minnka kvótafrádráttinn vegna aflans sem landaður er. Spurð hvort um kerfisbundinn vanda sé að ræða svarar hún: „Ég myndi halda það. Við sjáum líka að þegar við mætum í eftirlit á höfn, leika menn þann leik – því þeir vilja ekki lenda í svona mælingu – að þá eru þeir allt í einu ekki með undirmálsafla heldur breytist þetta í VS- afla þann daginn. Þannig að sá afli sem þeir ætluðu sér að skrá sem undirmálsafla verður VS-afli þegar við erum með eftirlit. Þetta sjáum við líka þegar við skoðum gögnin okkar.“ Mikil munur milli hafna Það er samt spurning hvort þetta sé útbreitt vandamál eða hvort það séu sömu aðilar sem eru staðnir að því að skrá undirmálsafla rangt. Áslaug segir ekki vísbendingu um slíkt. „Við reynum að passa að vera ekki að mæla sama aðila mörgum sinnum, þó kannski kunni að koma einstaka sinnum fyrir að sami aðili er mældur tvisvar sama árið. Við reynum að dreifa þessu. Og við sjáum líka eftir höfnum að það er einhvern veginn miklu algengara að menn nýti sér það að aðskilja aflann og skrá undirmál á vissum stöðum. Til dæmis hefur Bolungarvík verið hæst ár eftir ár á meðan aðrir nota mjög lítið þessa reglu og eru ekkert að skrá undir- málsafla. Þannig að þetta virðist vera svæð- isbundið hvort menn hagnýti þessa reglu eða ekki.“ Samkvæmt tölum Fiskistofu er undirmálsafl- inn mestur árin 2016 til 2020 á Bolungarvík, eða 1.483 tonn, en langtum minni á Patreksfirði eða 187 tonn. Á móti eru tiltölulega umsvifamiklar hafnir á borð við Grindavík aðeins með 489 tonn og Neskaupstaður með 593 tonn, sem er aðeins 40% af því sem skráð er sem undirmál á Bol- ungarvík. Fram kemur á vef Fiskistofu að stofnunin hyggst á næstunni birta frekari upplýsingar um löndun og skráningu á undirmálsafla. Þá segir að Fiskistofa „beitir áhættugreiningu af ýmsu tagi til þess að hafa eftirlit með fiskveiðum sem áhrifaríkast. Þetta er mikilvægur þáttur í því hlutverki Fiskistofu að gæta hagsmuna þjóð- arinnar við ábyrga nýtingu auðlinda hafsins.“ Fiskur kerfisbundið skráður of smár Morgunblaðið/Árni Sæberg Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir segir ljóst að regla sem á að koma í veg fyrir brottkast skapi einnig freistnivanda. Löndunarhafnir með mestan undirmálsafl a Allar tegundir undirmálsafl a árin 2016 til 2020 samtals, tonn Bolungarvík Siglufjörður Sauðárkrókur Skagaströnd Ólafsvík Neskaupstaður Stöðvarfjörður Grindavík Reykjavík Rif Suðureyri Djúpivogur Ísafjörður Dalvík Akranes Sandgerði Drangsnes Hólmavík Borgarfjörður eystri Patreksfjörður 1.483 1.131 1.079 1.066 712 593 512 489 453 446 409 405 382 338 284 262 259 258 210 187 Heimild: Fiskistofa Undirmálsmælingar Fiskistofu árin 2015-2019 Fjöldi rétt og rangt skráðra tilfella skipt eftir veiðarfærum Stóðst skoðun Stóðst ekki skoðun H ei m ild : F is ki st of a 1 1 1 1 1 3 3 5 22 10 3 12 1 2 10 10 10 15 1 1 3 6 9 5 11 1 1 5 4 7 14 1 3 2 2 5 14 8 2015 2016 2017 20192018 Botn- varpa Land- beitt lína Lína Rækju- varpa Botn- varpa Hand- færi Land- beitt lína Lína Línu- trekt Botn- varpa Drag- nót Hand- færi Land- beitt lína Lína Línu- trekt Rækju- varpa Botn- varpa Land- beitt lína Lína Botn- varpa Land- beitt lína Lína Línu- trekt Mælingar Fiskistofu árin 2015 til 2019 sýna að það sé mjög algengt að afli sem er skráður sem smáfiskur (undirmálsafli) við vigtun og telst þannig aðeins til helmings aflaheimilda sé raunverulega stærri fiskur sem ætti að skrá sem almennan afla.  Skipstjóra fiskiskips ber að tryggja að réttar og fullnægjandi upplýsingar um aflann ber- ist til hafnarvigtarmanns.  Mörk á undirmálsfiski eru mismunandi eftir tegundum og nema lengdarviðmið í þorski 50 sentimetrum; 50 sentimetrar í ufsa, 45 sentimetrar í ýsu og 33 sentimetrar í gull- og djúpkarfa.  Í tilfellum þar sem hlutfallslega lítið af þeim afla sem skráður er sem undirmál reynist vera yfir viðmiðunarmörkum sendir veiðieftirlit Fiskistofu viðkomandi leiðbeiningarbréf og tilkynningu um að skráning alls aflans sem um ræðir verði leiðrétt þannig að hann teljist ekki undirmálsfiskur.  Í tilfellum þar sem frávikið er meira hlutfallslega má vænta þess að úr verði brotamál sem getur leitt til sviptingar veiðileyfis. Skráning undirmálsafla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.