Morgunblaðið - 24.10.2020, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Á
hugi Hallveigar Karlsdóttur á
sjávarútvegi kviknaði
snemma. Hún ólst upp á
Borgarfirði eystri og minnist
þess að hafa strax sem barn verið
fengin til að leysa ýmis verkefni af
hendi í fiskverkun föður síns, Karls
Sveinssonar. „Ég hef verið pínulítil
þegar ég byrjaði að vinna en elsta
minningin sem ég á úr fiskvinnslunni
er af mér og bekkjarbróður mínum,
báðum klæddum í hanska sem náðu
alveg upp að öxlum, önnum kafin við
að pækla fisk. Til að ná neðstu fisk-
unum upp úr karinu þurftum við að
standa á kassa og náðum einhvern
veginn alltaf að blotna, enda voru
handleggirnir stuttir,“ segir Hallveig
en hún er í dag gæðastjóri Skinn-
eyjar-Þinganess á Höfn í Hornafirði.
Hallveig fæddist árið 1988 og segir
að árgangur hennar í grunnskólanum
hafi verið nokkuð stór og öll börnin
með sterka tengingu við sjávarútveg-
inn. „Þegar mikið var að gera, bátar á
sjó og vöntun á mannskap í aðgerð var
ég send í skólann með skilboð um að
boða fólk í vinnu og man ég að við vor-
um öll afskaplega dugleg og vinnu-
söm. Okkur fannst gaman að fá að
vinna með fullorðna fólkinu og auðvit-
að vorum við í störfum sem voru bæri
einföld og ekki hættuleg, og fylgst ná-
ið með okkur.“
Þegar hún var komin í háskóla
rann upp fyrir Hallveigu að það gæti
verið upplagt fyrir hana að afla sér
menntunar sem gæti nýst í sjávar-
útvegi. „Áður hafði ég lokið námi í
hestatamningum frá Hólaskóla en
skrái mig síðan í viðskiptafræðinám
hjá Háskólanum á Akureyri. Ég var
á öðru ári í náminu þegar ég fann að
sjávarútvegurinn kallaði á mig og
áttaði mig á að þar biðu mín fjöl-
breyttir starfsmöguleikar.“
Hallveig fékk stóran hluta við-
skiptafræðinámsins metinn upp í
gráðu í sjávarútvegsfræðum og
blómstraði í náminu. Hún hafði ekki
útskrifast frá HA þegar henni var
boðið starf gæðastjóra. „Ég þekkti
aðeins til hjá Skinney-Þinganesi haf-
andi stundað nám með vinnslustjór-
anum, og var ráðin sem gæðastjóri til
að stýra gæðamálum bæði hjá starfs-
stöð fyrirtækisins á Höfn og í bolfisk-
vinnslunni sem félagið rekur á Þor-
lákshöfn.“
Nákvæmir og mikilvægir ferlar
Að sögn Hallveigar er algengt að fólk
skilji ekki í hverju hlutverk gæða-
stjóra er fólgið og margir sem halda
að starfið snúist fyrst og fremst um
sýnatökur. „Það er vissulega hluti af
starfinu að taka sýni til skoðunar en
öðru fremur ber gæðastjórinn
ábyrgð á flóknum gæðakerfum og
verklagsreglum sem ná yfir alla ferla
jafnt frá veiðum og vinnslu til flutn-
inga.“
Hallveig segir sjávarútvegsfyr-
irtæki í dag fylgja ströngum stöðlum
sem bæði eiga að tryggja hámarks-
gæði og matvælaöryggi framleiddra
afurða. Eru hafðar nánar gætur á
fiskinum og hvert skref vaktað og
skrásett í þaula. Er þetta m.a. gert til
að fullnægja vottunarskilyrðum og
mæta kröfum kaupenda, og skiptir
miklu máli að haldið sé utan um
gæðaeftirlitið af fagmennsku.
„Kaupendur gera æ ríkari kröfur um
matvælaöryggi og þurfum við að
geta framvísað öllum þeim gögnum
sem óskað er eftir þegar gerðar eru
úttektir á framleiðslunni.“
Vinnan er fjölbreytt en býður líka
upp á ákveðinn sveigjanleika.
„Vinnutíminn er tiltölulega reglu-
legur en mikilvægt að vera til staðar
á meðan vinnsla er í gangi. Meiri
sveigjanleiki er í þeim hluta starfsins
sem snýr að frágangi skjala og finnst
mér ágætt að sinna þeim verkum
seinni part dags eða um helgar.“
Með hagsmuni
neytenda að leiðarljósi
Ekki ætti að koma á óvart að kór-
ónuveirufaraldurinn hefur flækt
starfsemina hjá Skinney-Þinganesi.
Eins og önnur sjávarútvegsfyr-
irtæki hefur útgerðin þurft að
tryggja bæði að faraldurinn raski
ekki framleiðslu eða hafi áhrif á ör-
yggi þeirra matvæla sem fyrirtækið
selur. Segir Hallveig að hafi m.a.
verið ráðist í víðtækt áhættumat
þar sem rýnt var í alla ferla og
mögulega áhættuþætti, s.s. hvað
snertir starfsfólkið, hráefnið og um-
búðirnar. „Við þurftum að end-
urmeta kerfið allt út frá þessum
eina þætti enda matvælaöryggi okk-
ar aðalverkefni ásamt afhending-
aröryggi framleiddra afurða.“
Var gripið til þess ráðs að aðskilja
hópa starfsmanna eins og frekast
var unnt, m.a. með það fyrir augum
að ef smit kæmi upp myndi nægja
að setja einn hóp í einangrun og
þannig halda starfsemi gangandi.
„Það sem má ekki gerast er að við
missum alla út og að framleiðslan
lamist. Við þurfum að tryggja ör-
yggi starfsfólks okkar en líka
tryggja að neytendur verði ekki fyr-
ir röskun á framboði sjávarafurða,“
segir Hallveig og bætir við að að-
gerðir félagsins vegna faraldursins
hafi gengið afskaplega vel.Humarinn klár. Hallveig skiptir tíma sínum milli Hafnar og Þorlákshafnar.
„Náðum einhvern veginn alltaf að blotna“
Hallveig Karlsdóttir byrjaði ung að vinna í fiski og þegar hún var komin í háskóla ákvað hún að færa sig úr viðskiptafræði yfir í
sjávarútvegsfræði. Árið hefur verið krefjandi enda kórónuveirufaraldurinn flækt störf gæðastjóra í sjávarútvegi til muna.
Hallveig unir sér vel í starfi gæðastjóra. Fylgjast þarf náið með öllum ferlum.
Morgunblaðið/Ómar
Skip við bryggju á Höfn í Hornafirði með hrikalegt landslagið í baksýn. Hjá Skinney-Þinganesi var ráðist í ítarlegt áhættumat vegna kórónuveirufaraldursins enda mikið í húfi fyrir fyrirtækið og viðskiptavini þess.