Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 F é l a g v é l s t j ó r a o g m á l m t æ k n i m a n n a L a n d s f é l a g í v é l - o g m á l m t æ k n i Fagmenn ti l s jós og lands VM-Fé l a g vé l s t j ó ra og má lmtækn imanna e r meða l s tæ rs tu fa g - og s t é t ta r f é l a g a l a nd s i n s . Vé l s t j ó ra r og má lm i ðnaða rmenn e i g a ma rg t same i g i n l e g t bæð i í n ám i og á v i n numa r kað i . K y n n t u þ é r m á l i ð á w w w . v m . i s Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is K afarar þjóna ómissandi hlut- verki í viðhaldi skipa og hafnarmannvirkja, og eru fljótir á staðinn ef losa þarf aðskotahlut úr skrúfu eða huga að hvers kyns vandamálum neðansjávar. Um mjög sérhæfða þjónustu er að ræða og segir Helgi Hinriksson að til að sinna þessum verkefnum þurfi kaf- arar bæði að hafa undirgengist mikla þjálfun og fylgja ströngum verklags- reglum. Helgi er framkvæmdastjóri Köf- unarþjónustunnar og segir að starfs- menn vinni oft í kapphlaupi við tímann. „Ósjaldan þarf að leysa málin einn, tveir og þrír, því mikið getur verið í húfi. Þannig t.d. gæti skip tekið niðri og leki komið að því. Kafarar eru þá einu mennirnir sem komast að leka og geta unnið í að þétta skipið áður en það er tekið af strandstað.“ Kafarar eru líka fengnir til að gera botnskoðun á skipum, oft á tíðum vegna framlengingar á haffæris- skírteini sem og vegna almennrar ástandsskoðunar. Köfunarþjónustan er vottuð af fjórum vottunarfélögum, DNV-GL, Lloyds, Bureau Veritas og ABS. „Botnskoðun getur tekið allt frá tveimur klukkustundum upp í heilan vinnudag eftir því hve stórt skip er um að ræða og hversu ítarleg skoðun þarf að fara fram,“ segir Helgi. „Kafarar sinna jafnframt viðhaldi s.s. ef skipta þarf um eða hreinsa botnstykki, skipta um fórnarskaut, pólera skrúfur og hreinsa burtu sjávargróður – í raun allt sem hægt er að gera við skip á floti.“ Dýrt ef endurnýja þarf stálþil í höfnum Þegar kemur að viðhaldi hafnarmann- virkja getur þjónusta kafara sparað háar fjárhæðir. Flestar hafnir landsins eru gerðar úr stálþilum sem rekin eru niður í hafnarbotninn en endingartími stálsins getur verið mislangur eftir að- stæðum. „Líftími nýs stálþils á að vera um 40 til 50 ár en tæringin er mishröð eftir höfnum. Eru dæmi um að stálþil fari að láta á sjá eftir 10 ár og séu orðin ónýt eftir 20 ár. Við tæringu myndast göt í stálinu og sjórinn skolar út jarð- veginum þar á bak við svo að holrými myndast. Holrýmin stækka smám saman og geta myndað stærðarinnar hella svo að þekja fer að síga og jafnvel gefa sig þegar lyftari ekur þar yfir,“ útskýrir Helgi. „Svona skemmdir og hellamyndun sést ekki á yfirborðinu og því mikilvægt að fara í reglubundið eftirlit og kanna ástands stálþilja.“ Köfnarþjónustan hefur sérhæft sig í úttekt á ástandi stálþilja og skilar af sér ítarlegri skýrslu sem sýnir ástand og kemur með tillögur að úrbótum. Köfunarþjónustan notast síðan við við- urkenndar aðferðir við viðgerðir og lengir þannig líftíma stálþilja. Helgi segir sveitarfélög þurfa að gæta vel að eftirliti með hafnarmannvirkjum því þó að ríkið taki þátt í kostnaði við ný- framkvæmdir þá séu engir ríkisstyrkir í boði fyrir reglubundið viðhald og geta viðgerðirnar orðið dýrari eftir því sem skemmdirnar koma seinna í ljós. „Við- gerðarkostnaðurinn er um 18% af kostnaðinum við að setja niður nýtt stálþil og því mikill ávinningur í því að vanrækja ekki viðhaldið.“ Loks hjálpa kafarar fiskeldisfyrir- tækjum að halda sjókvíum í horfinu. Köfunarþjónustan á helmingshlut í fé- laginu K-Tech Marine í Reyðarfirði sem sérhæfir sig í þjónustu við fisk- eldi. „Kanna þarf ástand kvíanna með reglulegu millibili og laga skemmdir sem kunna að koma í ljós. Í nógu er að snúast í greininni og eru þrír kafarar í fullu starfi hjá dótturfyrirtækinu fyrir austan.“ Að lágmarki þrír í hverju teymi Lesendur geta rétt ímyndað sér að það er ekki auðvelt að sinna viðhaldi og viðgerðum neðansjávar og aðstæður oft mjög krefjandi. Helgi segir að öll verkefni séu unnin í samræmi við strangar öryggisreglur og þegar þarf t.d. að sinna viðhaldi skipa sé unnið eft- ir stöðluðum verkferlum í nánu sam- starfi við vélstjóra og skipstjóra. „Oft eru margir mismunandi aðilar að störfum um borð og að fást við mis- munandi hluti. Allir þurfa að vera með- vitaðir um það að kafari sé að störfum og er það m.a. gefið til kynna með við- vörunarspjöldum uppi í brú og í vél- arrúmi.“ Ekki má senda kafara einan af stað heldur vinna þrír saman í teymi. Er þá einn kafari í sjónum, og í beinu sam- bandi við köfunarformann í landi. Þriðji maðurinn er öryggiskafari sem er viðbúinn að koma strax til aðstoðar ef eitthvað skyldi koma upp á. „Köf- unarformaðurinn fylgist vandlega með framvindu vinnunnar í gegnum sjón- varpsskjá og í reynd fjarstýrir kaf- aranum.“ Verkefnin eru bæði stór og smá og nefnir Helgi sem dæmi þegar starfs- menn Köfunarþjónustunnar voru fengnir til að ganga til liðs við stærra teymi kafara til að skipta um skrúfu á skemmtiferðaskipi. Hann upplýsir að þegar verið er að vinna með mjög stóra og þunga hluti séu notaðir svo- kallaðir lyftipokar sem fylla má með lofti til að gera þá meðfærilegri neðan- sjávar. Læra rafsuðu í sérsmíðaðri sundlaug Kafarana þarf að sérþjálfa enda ekki hluti af venjulegu námsframboði ís- lenskra skóla að kenna fólki að raf- sjóða neðansjávar eða skoða skips- skrokk í samræmi við ströngustu staðla. Helgi segir Köfunarþjónustuna oft fá til sín ungt fólk sem búið er að ljúka köfunarskóla erlendis og tekur þá við þjálfun samhliða vinnu. „Það að- skilur okkur frá köfunarfyrirtækjum erlendis að verkefnin okkar eru mjög fjölbreytt á meðan sams konar fyrir- tæki í öðrum löndum eru oft mun sér- hæfðari og starfið þar af leiðandi ein- hæfara. Þetta þýðir að starfsfólk okkar öðlast breiða reynslu. Þá fáum við til okkar sérfræðinga frá útlöndum til að kenna réttu handtökin við nákvæmn- isvinnu eins og rafsuðu neðansjávar. Í janúar á þessu ári fóru fimm kafarar frá okkur í gegnum slíkt námskeið sem var vikulangt og fór fram í sund- laug sem við útbjuggum innandyra þar sem leiðbeinandinn gat fylgst með í gegnum glugga og gefið leiðsögn.“ Aðspurður hvort fólk endist lengi í þessu erfiða starfi segir Helgi að starfsaldur kafara Köfunarþjónust- unnar sé nokkuð hár. „Vinnudagurinn er ólíkur því sem flestir eiga að venjast og oft vantar ekki spennuna. Að stökkva, með öllum köfunarbúnaði, úr fimm metra hæð ofan af bryggju og út í sjóinn kemur adrenalíninu heldur betur af stað og fjölbreytileikinn á sinn þátt í því að menn ílengjast hjá okkur.“ „Vinnudagurinn er ólíkur því sem flestir eiga að venjast“ Það er ekki á færi hvers sem er að munda raf- suðutæki í köldum sjó í lélegu skyggni. Kafarar þurfa að sýna ýtrustu fagmennsku þegar þeir vinna við skip og hafnar- mannvirki. Helgi segir það gera starfið áhugaverðara hvað verkefnin eru fjölbreytt. Að vinna við köfun er ekki á allra færi. Þegar viðskiptavinir Köfunarþjónustunnar hafa samband er yfirleitt ekki í boði að bíða eftir hlýju veðri og kjöraðstæðum. Leysa þarf verkefnin án tafar og í samræmi við öryggisstaðla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.