Morgunblaðið - 24.10.2020, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020
F é l a g v é l s t j ó r a o g m á l m t æ k n i m a n n a
L a n d s f é l a g í v é l - o g m á l m t æ k n i
Fagmenn ti l
s jós og lands
VM-Fé l a g vé l s t j ó ra og má lmtækn imanna e r meða l s tæ rs tu fa g - og
s t é t ta r f é l a g a l a nd s i n s . Vé l s t j ó ra r og má lm i ðnaða rmenn e i g a ma rg t
same i g i n l e g t bæð i í n ám i og á v i n numa r kað i .
K y n n t u þ é r m á l i ð á w w w . v m . i s
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
K
afarar þjóna ómissandi hlut-
verki í viðhaldi skipa og
hafnarmannvirkja, og eru
fljótir á staðinn ef losa þarf
aðskotahlut úr skrúfu eða huga að
hvers kyns vandamálum neðansjávar.
Um mjög sérhæfða þjónustu er að
ræða og segir Helgi Hinriksson að til
að sinna þessum verkefnum þurfi kaf-
arar bæði að hafa undirgengist mikla
þjálfun og fylgja ströngum verklags-
reglum.
Helgi er framkvæmdastjóri Köf-
unarþjónustunnar og segir að starfs-
menn vinni oft í kapphlaupi við tímann.
„Ósjaldan þarf að leysa málin einn,
tveir og þrír, því mikið getur verið í
húfi. Þannig t.d. gæti skip tekið niðri
og leki komið að því. Kafarar eru þá
einu mennirnir sem komast að leka og
geta unnið í að þétta skipið áður en það
er tekið af strandstað.“
Kafarar eru líka fengnir til að gera
botnskoðun á skipum, oft á tíðum
vegna framlengingar á haffæris-
skírteini sem og vegna almennrar
ástandsskoðunar. Köfunarþjónustan
er vottuð af fjórum vottunarfélögum,
DNV-GL, Lloyds, Bureau Veritas og
ABS. „Botnskoðun getur tekið allt frá
tveimur klukkustundum upp í heilan
vinnudag eftir því hve stórt skip er um
að ræða og hversu ítarleg skoðun þarf
að fara fram,“ segir Helgi. „Kafarar
sinna jafnframt viðhaldi s.s. ef skipta
þarf um eða hreinsa botnstykki, skipta
um fórnarskaut, pólera skrúfur og
hreinsa burtu sjávargróður – í raun
allt sem hægt er að gera við skip á
floti.“
Dýrt ef endurnýja
þarf stálþil í höfnum
Þegar kemur að viðhaldi hafnarmann-
virkja getur þjónusta kafara sparað
háar fjárhæðir. Flestar hafnir landsins
eru gerðar úr stálþilum sem rekin eru
niður í hafnarbotninn en endingartími
stálsins getur verið mislangur eftir að-
stæðum. „Líftími nýs stálþils á að vera
um 40 til 50 ár en tæringin er mishröð
eftir höfnum. Eru dæmi um að stálþil
fari að láta á sjá eftir 10 ár og séu orðin
ónýt eftir 20 ár. Við tæringu myndast
göt í stálinu og sjórinn skolar út jarð-
veginum þar á bak við svo að holrými
myndast. Holrýmin stækka smám
saman og geta myndað stærðarinnar
hella svo að þekja fer að síga og jafnvel
gefa sig þegar lyftari ekur þar yfir,“
útskýrir Helgi. „Svona skemmdir og
hellamyndun sést ekki á yfirborðinu
og því mikilvægt að fara í reglubundið
eftirlit og kanna ástands stálþilja.“
Köfnarþjónustan hefur sérhæft sig í
úttekt á ástandi stálþilja og skilar af
sér ítarlegri skýrslu sem sýnir ástand
og kemur með tillögur að úrbótum.
Köfunarþjónustan notast síðan við við-
urkenndar aðferðir við viðgerðir og
lengir þannig líftíma stálþilja. Helgi
segir sveitarfélög þurfa að gæta vel að
eftirliti með hafnarmannvirkjum því
þó að ríkið taki þátt í kostnaði við ný-
framkvæmdir þá séu engir ríkisstyrkir
í boði fyrir reglubundið viðhald og geta
viðgerðirnar orðið dýrari eftir því sem
skemmdirnar koma seinna í ljós. „Við-
gerðarkostnaðurinn er um 18% af
kostnaðinum við að setja niður nýtt
stálþil og því mikill ávinningur í því að
vanrækja ekki viðhaldið.“
Loks hjálpa kafarar fiskeldisfyrir-
tækjum að halda sjókvíum í horfinu.
Köfunarþjónustan á helmingshlut í fé-
laginu K-Tech Marine í Reyðarfirði
sem sérhæfir sig í þjónustu við fisk-
eldi. „Kanna þarf ástand kvíanna með
reglulegu millibili og laga skemmdir
sem kunna að koma í ljós. Í nógu er að
snúast í greininni og eru þrír kafarar í
fullu starfi hjá dótturfyrirtækinu fyrir
austan.“
Að lágmarki þrír í hverju teymi
Lesendur geta rétt ímyndað sér að
það er ekki auðvelt að sinna viðhaldi og
viðgerðum neðansjávar og aðstæður
oft mjög krefjandi. Helgi segir að öll
verkefni séu unnin í samræmi við
strangar öryggisreglur og þegar þarf
t.d. að sinna viðhaldi skipa sé unnið eft-
ir stöðluðum verkferlum í nánu sam-
starfi við vélstjóra og skipstjóra. „Oft
eru margir mismunandi aðilar að
störfum um borð og að fást við mis-
munandi hluti. Allir þurfa að vera með-
vitaðir um það að kafari sé að störfum
og er það m.a. gefið til kynna með við-
vörunarspjöldum uppi í brú og í vél-
arrúmi.“
Ekki má senda kafara einan af stað
heldur vinna þrír saman í teymi. Er þá
einn kafari í sjónum, og í beinu sam-
bandi við köfunarformann í landi.
Þriðji maðurinn er öryggiskafari sem
er viðbúinn að koma strax til aðstoðar
ef eitthvað skyldi koma upp á. „Köf-
unarformaðurinn fylgist vandlega með
framvindu vinnunnar í gegnum sjón-
varpsskjá og í reynd fjarstýrir kaf-
aranum.“
Verkefnin eru bæði stór og smá og
nefnir Helgi sem dæmi þegar starfs-
menn Köfunarþjónustunnar voru
fengnir til að ganga til liðs við stærra
teymi kafara til að skipta um skrúfu á
skemmtiferðaskipi. Hann upplýsir að
þegar verið er að vinna með mjög
stóra og þunga hluti séu notaðir svo-
kallaðir lyftipokar sem fylla má með
lofti til að gera þá meðfærilegri neðan-
sjávar.
Læra rafsuðu í
sérsmíðaðri sundlaug
Kafarana þarf að sérþjálfa enda ekki
hluti af venjulegu námsframboði ís-
lenskra skóla að kenna fólki að raf-
sjóða neðansjávar eða skoða skips-
skrokk í samræmi við ströngustu
staðla. Helgi segir Köfunarþjónustuna
oft fá til sín ungt fólk sem búið er að
ljúka köfunarskóla erlendis og tekur
þá við þjálfun samhliða vinnu. „Það að-
skilur okkur frá köfunarfyrirtækjum
erlendis að verkefnin okkar eru mjög
fjölbreytt á meðan sams konar fyrir-
tæki í öðrum löndum eru oft mun sér-
hæfðari og starfið þar af leiðandi ein-
hæfara. Þetta þýðir að starfsfólk okkar
öðlast breiða reynslu. Þá fáum við til
okkar sérfræðinga frá útlöndum til að
kenna réttu handtökin við nákvæmn-
isvinnu eins og rafsuðu neðansjávar. Í
janúar á þessu ári fóru fimm kafarar
frá okkur í gegnum slíkt námskeið
sem var vikulangt og fór fram í sund-
laug sem við útbjuggum innandyra þar
sem leiðbeinandinn gat fylgst með í
gegnum glugga og gefið leiðsögn.“
Aðspurður hvort fólk endist lengi í
þessu erfiða starfi segir Helgi að
starfsaldur kafara Köfunarþjónust-
unnar sé nokkuð hár. „Vinnudagurinn
er ólíkur því sem flestir eiga að venjast
og oft vantar ekki spennuna. Að
stökkva, með öllum köfunarbúnaði, úr
fimm metra hæð ofan af bryggju og út
í sjóinn kemur adrenalíninu heldur
betur af stað og fjölbreytileikinn á sinn
þátt í því að menn ílengjast hjá okkur.“
„Vinnudagurinn er ólíkur
því sem flestir eiga að venjast“
Það er ekki á færi hvers
sem er að munda raf-
suðutæki í köldum sjó í
lélegu skyggni. Kafarar
þurfa að sýna ýtrustu
fagmennsku þegar þeir
vinna við skip og hafnar-
mannvirki.
Helgi segir það gera starfið áhugaverðara hvað verkefnin eru fjölbreytt. Að vinna við köfun er ekki á allra færi.
Þegar viðskiptavinir Köfunarþjónustunnar hafa samband er yfirleitt ekki í boði að bíða eftir hlýju veðri og kjöraðstæðum. Leysa þarf verkefnin án tafar og í samræmi við öryggisstaðla