Morgunblaðið - 03.11.2020, Síða 11

Morgunblaðið - 03.11.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020 pinnamatur Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, tilbúið fyrir veisluborðið Fagnaðir Hólshraun 3 · 220 Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ísfélagið í Vestmannaeyjum hef- ur fest kaup á norska uppsjáv- arskipinu Hardhaus. Skipið er væntanlegt í síðasta lagi í febr- úar og verður þriðja skipið í uppsjávarflota Ísfélagsins, en fyrir eru Heimaey VE, smíðuð í Síle 2012, og Sigurður VE, smíð- aður í Tyrklandi 2014. „Við erum bjartsýnir og trúum á góðar loðnuvertíðir fram und- an,“ segir Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins. „Vonandi verðum við byrjaðir á loðnuveiðum á þeim skipum sem við erum með þegar Hardhaus kemur frá Noregi. Mælingin á eins árs loðnu var ákaflega góð í haust og við gerum ráð fyrir stórum loðnukvóta 2022. Eins og málin hafa þróast reyna menn að vinna sem mest af aflanum til manneldis og þá þarf fleiri skip.“ Hardhaus var smíðaður í skipa- smíðastöðinni Fitjum í Noregi 2003 og er 68,8 metrar á lengd og 13,83 m á breidd. Stefán segir skipið vel búið og aðalvél, spil, tankar og kæligeta uppfylli þær kröfur sem Ísfélagið geri um veiðigetu og meðferð á afla. Kaup- verð skipsins er trúnaðarmál. Hardhaus hefur verið gerður út frá Bekkjarvik, skammt frá Berg- en. Útgerðin á von á nýju skipi frá Cemre-skipasmíðastöðinni í Tyrk- landi í mars-apríl á næsta ári. Stefán segir að eftir einstaklega góða vertíð á norsk-íslenskri síld í haust séu rólegheit hjá uppsjávar- skipunum. Fram undan sé einn túr á íslensku síldina og hugsanlega annar á kolmunna. Á Þórshöfn sé verið að undirbúa veiðar og vinnslu á bolfiski, sem fari í gang í vikunni. Hardhaus Uppfyllir kröfur um veiðigetu og meðferð á afla. Nýtt skip og bjart- sýni á loðnuvertíðir  Þriðja uppsjávarskip Ísfélagsins Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Fulltrúar ellefu minni og meðal- stórra lífeyrissjóða gagnrýna breyt- ingar á eftirlitsgjaldinu til Fjár- málaeftirlits Seðlabankans og hvernig það hefur verið lagt á. Í umsögn til efnahags- og viðskipta- nefndar um bandormsfrumvarp vegna fjárlaga fyrir næsta ár gera þeir alvarlegar athugasemdir við þetta og segja að gjaldtakan sé skattheima á borð við bankaskatt og verði því að samræmast jafn- ræðisreglu ,,og öðrum áskilnaði laga og stjórnarskrár um álagningu og jöfnun opinberra gjalda“. Breyta þurfi álagningunni þannig að henni verði réttilega skipt milli sjóðanna að teknu tilliti til mismun- andi stærðar þeirra. „Skattlagningunni hefur verið hagað þannig að 60% gjaldsins hef- ur verið skipt jafnt á sjóðina, en 40 prósentum verið jafnað að tiltölu. Sem einfalt dæmi um mismununina má nefna að ef eftirlitsgjaldið yrði samkvæmt frumvarpinu þyrfti minnsti lífeyrissjóðurinn, Lífeyris- sjóður tannlæknafélags Íslands, að greiða 3,2 [milljónir kr.] á næsta ári á meðan Lífeyrissjóður starfs- manna ríkisins (LSR) myndi greiða 37,5 [milljónir kr.]. Það þýðir að LSR er einungis að borga tólffalt eftirlitsgjald á móti Lífeyrissjóði tannlæknafélags Íslands, þó stærð LSR (hrein eign) sé u.þ.b. eitt hundrað fjörutíu og áttföld miðað við stærð Lífeyrissjóðs tannlækna- félags Íslands,“ segir í umsögninni. Fullyrt er að þetta fyrirkomulag þýði að löggjafinn hafi á undan- gengnum árum velt mörg hundruð milljóna kr. kostnaði af sjóðfélögum stærstu lífeyrissjóðanna yfir á þá sjóðfélaga sem eigi réttindi í minni og meðalstórum lífeyrissjóðum. „Fyrirhuguð gjaldtaka á lífeyr- issjóðina fyrir næsta ár samkvæmt frumvarpinu myndi leiða til þess að 18 lífeyrissjóðir af 23, sem fara með þriðjungshlut hreinnar eignar, mundu greiða 75 [milljónir kr.] um- fram hlutdeild sína í hreinni eign lífeyrissjóðanna. Ef horft er til næstu 20 ára þýðir það einn og hálfan milljarð króna sem fimm stærstu lífeyrissjóðir landsins myndu velta yfir á hina minni að óbreyttu,“ segir í umsögn lífeyr- issjóðanna. Segja gjaldtöku mis- muna lífeyrissjóðum  Fulltrúar 11 lífeyrissjóða gagnrýna eftirlitsgjald til FME Eftirlitsgjaldið » Eftirlitsgjaldið er lagt á eftirlitsskylda aðila á fjár- málamarkaði og á að skila 2.180 milljónum kr. á næsta ári. » Fulltrúar lífeyrissjóðanna vilja að innheimta eftirlits- gjaldsins verði eins hjá öllum eftirlitsskyldum aðilum. » Gjaldið verði alfarið inn- heimt sem hlutfall af eign. Morgunblaðið/Golli Seðlabankinn Gjaldinu er ætlað að standa undir kostnaði við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Lífeyrissjóðir gagnrýna fyrirkomulagið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.