Morgunblaðið - 03.11.2020, Side 22

Morgunblaðið - 03.11.2020, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn, og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Korpúlfar Opið í Borgum í dag frá kl. 08:00 til 16:00 en allt félagsstarf fellur niður. Virðum samfélagssáttmálann og allar sóttvarnir. Seltjarnarnes Vegna lokunar sundstaða þá er engin vatnsleikfimi í dag. Ath. engin námskeið eru í boði í dag. Kaffispjallið og samveran á Skólabrautinni er eingöngu fyrir íbúa Skólabrutar. Í dag kl. 10.30 verður púttað á vellinum við Skólabraut ef veður leyfir og þar höldum við fjarlægðarmörk. Munið almennar sóttvarnir og að grímuskylda er í félagsaðstöðunni á Skólabraut bæði hjá gestum og starfsfólki. Vantar þig dekk? FINNA.is mbl.is alltaf - allstaðar Ekki man ég hvenær ég sá Hjalta Geir fyrst. Mér finnst hann alltaf hafa verið þarna eins og fjöllin og sólskinið. Kannski var það þegar hann Hjalti Geir Kristjánsson ✝ Hjalti GeirKristjánsson fæddist 21. ágúst 1926. Hann lést 13. október 2020. Útför Hjalta Geirs fór fram 27. október 2020. sprangaði um götur borgarinnar með sitt íðilfagra konu- efni sem seinna varð frú Sigríður. Ég held ég hafi fyrst tekið eftir henni. Strax var augljóst að lífsham- ingjan var með í för. Foreldrar Guð- rúnar konu minnar leigðu hjá föður Hjalta Geirs, Kristjáni Siggeirs- syni, á Hverfisgötu 28. Faðir hennar, Jón J. Brynjólfsson, lést skyndilega 1947. Þá var Guðrún aðeins fjögurra ára og tveir ung- ir bræður. Leigusalar Ástu móð- ur hennar, Kristján og Ragnhild- ur, ferðuðust oft til útlanda og færðu börnunum alltaf gjafir þegar þau komu til baka úr þeim ferðum. Þetta hefur aldrei gleymst í yfir 70 ár. Þessi nær- gætni hefur gengið í arf í fjöl- skyldunni. Samúð var einkenni Hjalta Geirs. Hjalti Geir var góður fulltrúi gamla kapítalsins, afkomandi Eldeyjar-Hjalta, sem hann heitir eftir og var afi hans. Þótt Hjalti Geir hefði margt fram yfir með- bræður sína, efni, menntun og hæfileika, var hann ávallt sann- gjarn. Hann setti alla við hlið sér, jafnt háa sem lága. Samskipti okkar jukust mikið þegar við sátum samtímis í stjórn Verslunarráðs Íslands. Þar var hann mjög áhrifamikill, traustur og ábyggilegur. Ég sá hann aldrei skipta skapi né hækka róminn. Hann breytti bara í alvarlegan svip þegar hann vildi leggja áherslu á mál sitt. Það dugði. Á níræðisafmæli sínu hét Hjalti Geir og fjölskyldan stór- kostlega veislu í Laufási þar sem hún á sumarbústað. Þar mætti mikill fjöldi fólks við mikinn fögnuð. Eins og mál æxluðust má segja að Hjalti Geir hafi við þetta tækifæri kvatt samtíðar- menn sína með stæl. Við Guðrún vottum frú Sigríði og fjölskyldunni samúð okkar og þökkum góða vináttu og hlýhug alla tíð. Guðrún og Jóhann J. Ólafsson. Þótt móðir mín sé nú aðeins minningin ein mun ég ávallt minnast hennar með glöðu geði og dýpstu virðingu, hugheilu þakklæti og hjartans hlýju, fyrir allt og allt. (Sigurbjörn Þorkelsson) Mamma var engum lík, alltaf tilbúin með opinn faðminn og opinn huga. Hlý og mjúk, fag- urkeri mikill en engu unni hún meira en fjölskyldu sinni og vin- um, smáfólkið var henni allt og sérstaklega núna síðustu árin, þetta eru einu geðlyfin sem ég þarf, sagði hún þegar maður kom með litla afkomendur í heimsókn. Hún var búin að berjast lengi við heilsubrest, var mjög þakk- lát þegar hún komst inn á Höfða og gat aftur farið að njóta sín í örygginu þar en saknaði sam- Svana Jónsdóttir ✝ Svana Jóns-dóttir fæddist 18. ágúst 1939. Hún lést 17. október 2020. Útför hennar fór fram 27. október 2020. búðarinnar við pabba en hann var einstaklega natinn við hana og hún kunni svo sannar- lega að meta stund- irnar sem þau áttu saman. Við mamma vor- um mjög nánar og eyddum ómældum tíma saman og voru það forréttindi að fá að dekra við hana síðustu árin því þótt líkaminn sviki hana þá vildi hún alltaf líta vel út og skreyta sig með skartinu sínu og láta greiða hárið sitt og klæðast fallegum og litríkum fötum. Skemmtilegustu stundirnar voru þegar ég kom með langömmuk- rílin til hennar, þá lifnaði svo um munaði yfir henni og það var oft erfitt að fara með þau í burtu því hún var strax byrjuð að sakna þeirra og í símtölum okk- ar á milli þá snerust þau oftar en ekki eingöngu um þau. Hún skipti sér ekki af uppeld- inu þegar ég skellti mér ung í móðurhlutverkið en var alltaf til í að veita ráð ef ég þurfti og bað um þau, þetta er eitthvað sem ég ákvað að hafa að leiðarljósi þegar dætur okkar Helga byrj- uðu að eignast börn, ég sagði við þær að ég myndi ekki skipta mér af nema mér þætti þær vera að gera eitthvað rangt, mér finnst ég fyrir vikið fá að njóta þess í botn að vera „bara“ amma. Mamma var alltaf á undan áætlun, óþarflega stundvís fannst okkur systkinunum stundum, en þetta hefur svo sem smitast yfir í okkur. Þegar skrokkurinn fór að svíkja hana og við þurftum að grípa meira inn í þá þurfti stundum að bremsa hana af því hausinn var í lagi og hún var farin að plana hlut D á meðan við vorum enn að vesenast í hlut A. En hún reyndi að sitja á sér. Mamma var með mikla út- geislun og átti auðvelt með að gefa af sér og var ótrúlega fé- lagslynd. Og það er því ansi leitt að geta ekki haft útför hennar með hefðbundnum hætt, hefðum alveg verið til í góða og glæsi- lega veislu hennar lífi til heiðurs en það bíður betri tíma og von- andi getum við þá slegið upp teiti sem hæfir drottningunni henni mömmu minni. Andlát hennar bar frekar brátt að og greinilegt að maður er aldrei undir það búinn, þótt maður sé orðinn fullorðinn og kominn með smá í reynslubank- ann þá er vont að missa mömmu sína, bara ferlega vont. Elsku mamma, takk fyrir allt. Við systkinin höldum áfram að hlúa að pabba og hvert að öðru eins og við erum búin að vera að gera síðustu dagana. Góða ferð í Sumarlandið, það verður án efa tekið vel á móti þér. Elska þig, þín Helga. Á einum fegursta degi hausts- ins, lést kær vinkona okkar og vinnufélagi Svana Jónsdóttir. Dagurinn var fagur og góður eins og vinkona okkar var, en henni kynntumst við fyrst þegar hún byrjaði að vinna með okkur í Samvinnubankanum á Akra- nesi. Þar var góður og samstæð- ur hópur sem hún féll vel inn í, enda með eindæmum jákvæð og glaðvær kona. Hún var ákaflega listræn og mikil handavinnu- kona, og nutum við konurnar þess aldeilis í öllu jólaföndrinu okkar á hverju ári. Við eigum eftir að sakna hennar mjög og þökkum fyrir árin okkar saman. Við sendum fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur og kveðjum kæra vinkonu og félaga með orðum skáldsins. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (G.J) Fyrir hönd samstarfsfólks, Hansína Hannesdóttir Helga Dóra Sigvaldadóttir. Veistu, ef þú vin átt er þú vel trúir, og vilt þú af honum gott geta, geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Hann Hörður Bergmann kunni list vináttunnar. Þegar við Ingólfur A. Þorkels- son gengum í hjónaband fyrir réttum 60 árum fékk ég í kaup- bæti nokkra tryggðavini. Þeir Hörður og Ingólfur voru bestu vinir. Það fór ekkert á milli mála. Og falleg var birtingarmynd þeirrar vináttu þegar Ingólfur dvaldi í Sóltúni seinustu þrjú ævi- árin og háði harða glímu við vægðarlausan Parkinson. Allan þann tíma leið varla sú vika að Hörður kæmi ekki að vitja vinar síns. Það var fallegt og það var ómetanlegt. Mér hlýnar um hjarta við tilhugsunina. Rúmum áratug síðar greindist svo Hörður einnig með Parkin- Hörður Bergmann ✝ Hörður Berg-mann fæddist 24. apríl 1933. Hann lést 10. októ- ber 2020. Útför Harðar fór fram 20. október 2020. son, sem skerti lífs- gæði hans með ógn- arhraða. Sjálfur sagði Hörður að ekkert við sjúkdóm- inn kæmi sér á óvart, því einkennin væru nákvæmlega þau sömu og hjá Ingólfi. Enginn má sköpum renna. Eiginkona Harð- ar, Dórothea Sveina Einarsdóttir, kölluð Dóra, og ég urðum fljótt góðir mátar. Dóra var jákvæð og lífsvæn og hafði einstaklega góða nærveru. Allt lék í höndunum á henni. Við höfð- um talsvert mikið saman að sælda um ævina. Á vori lífsins fórum við saman í minnisstæða ferð norður í land. Það var á önd- verðum sjöunda áratugnum þeg- ar Hörður og Ingólfur fóru sam- an nokkur sumur í uppgripavinnu í síldarverksmiðj- um fyrir norðan og austan. Óvenjuvel hafði árað og um haustið buðu þeir félagar okkur Dóru að koma til móts við þá á Akureyri, þar sem við gistum á Hótel KEA í nokkrar nætur. Fyrir okkur öll var þetta fáheyrð- ur lúxus og Norðurland skartaði sínum fegurstu haustlitum. Það varð fjölskyldu og vinum Dóru mikill harmur þegar hún missti heilsuna fyrir aldur fram og hvarf smám saman á vit gleymskunnar. Þá reyndist Hörður henni einstaklega vel og annaðist hana af stakri alúð. Þótt kringumstæður breyttust gættum við Hörður þess að missa ekki sjónar hvort á öðru og höfð- um samband af og til. Ræddum það sem skipti okkur máli. Spurðum frétta af nákomnum og forvitnuðumst um hvað hitt væri að lesa. Síðan skiptumst við gjarnan á skoðunum um það sem hæst bar í pólitíkinni þann dag- inn. Sá áhugi dó aldrei alveg. Ég mun sakna þess á aðvent- unni að fá ekki pésann með nýj- ustu pælingum Harðar sem hann var vanur að gauka að mér á þessum árstíma. Og næst þegar við blótum þorra mun ég sakna Harðar úr hópnum mínum. Hann hafði allt- af eitthvað gott fram að færa. Um mitt seinasta ár, nokkru áður en Herði hrakaði svo um munaði og þó nokkru áður en Co- vid skellti í lás, fórum við Hörður ásamt Sigrúnu Árnadóttur í heimsókn á Grund, til okkar tryggðavinkonu, Jónu Kristjáns- dóttur. Bjart er yfir minningunni. Við vorum kát og nutum þess að vera saman. Skáluðum og þökk- uðum góðar gjafir lífsins. Meðvit- uð um mikilvægi stundarinnar, þótt við vissum ekki þá að þetta var kveðjustund og síðasta skipti sem við hittumst öll saman. Við Jón Arnar, Þorkell Már og Þóra Sigríður sendum þeim Hall- dóru Björk, Atla, Jóhönnu, Helgu Lilju og fjölskyldum þeirra hug- heilar samúðarkveðjur. Góður vinur er genginn. Rannveig Jónsdóttir. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.