Morgunblaðið - 03.11.2020, Side 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
sem við erum með mikið klefapláss
en síðustu aðgerðir hafa vissulega
áhrif,“ segir Heiður og bætir við að
ferðavilji Íslendinga sé eðlilega lítill í
þessu ástandi. „Við erum búin að búa
til margar áætlanir, enda sáum við
tækifæri í því að bjóða Íslendinga
velkomna í vetur. Við vorum mjög
spennt fyrir því en maður veit varla
lengur við hvaða áætlun skuli miða
við. Það sem hefur aftur á móti gerst
er að heimamenn hafa tekið staðnum
gríðarlega vel. Árskortshafar á
heimamarkaði eru að nálgast þúsund
og það munar vissulega um það.“
Byggir upp eigið fyrirtæki
Fram undan hjá Heiði er áfram-
haldandi uppbygging ferðaþjónustu-
fyrirtækisins Austurfarar sem er í
hennar eigu. Fyrirtækið var sett á
laggirnar árið 2011. „Þá var þetta í
grunninn ferðaskrifstofa sem var
auk þess í öðrum tengdum verkefn-
um. Við vorum að selja ferðir um
Austurland. Áherslurnar hafa
breyst og byggir fyrirtækið nú á
heilsárstjaldstæði og upplýsinga-
miðstöð ásamt því að vinna markaðs-
verkefni með sveitarfélaginu. Þess
utan erum við í fleiri verkefnum og
margt á teikniborðinu sem ég bíð
spennt eftir að koma í framkvæmd,“
segir Heiður.
„Ég er mikill frumkvöðull í eðli
mínu og því vissi ég að hlutdeild mín
að Vök Baths kæmi til með að vera
tímabundin. Ég sá fyrir mér að taka
þátt í því að koma þessu af stað og fá
þannig að setja minn svip á verk-
efnið. Eftir ár í rekstri taldi ég mig
vera búna að gera það sem ég ætlaði
mér og því væri upplagt fyrir nýjan
aðila að koma inn. Þrátt fyrir veiruna
hefur uppbyggingin gengið vel og
fólk er virkilega ánægt með hvernig
til hefur tekist. Nú fer ég aftur í
frumkvöðlagírinn, sem er alltaf jafn
spennandi.“
Knúin til að skella í lás
Baðlónið Vök Baths var opnað fyrir um ári og hefur notið mikilla vinsælda.
Nýr framkvæmdastjóri tekur við Vök Baths á næstu vikum Hafa selt nær
þúsund árskort til heimamanna Áætlanir breytast sífellt sökum faraldurs
nýir fólksbílar það sem af er ári og
er það aukning upp á 1,9% miðað við
sama tíma í fyrra þegar selst höfðu
4.314 bílar til sama hóps. Umræddur
hluti markaðarins er því nokkurn
veginn á pari miðað við fyrra ár.
Almenn fyrirtæki, að bílaleigum
undanskildum, hafa keypt 1.656 bif-
reiðar í ár miðað við 1.690 bifreiðar í
fyrra, eða einungis 2,0% færri en í
fyrra. Samdrátt í heildsölu það sem
af er ári má því nær einvörðungu
rekja til færri seldra bíla til ferða-
þjónustunnar.
aronthordur@mbl.is
Sala á nýjum fólksbílum jókst um
12% í október sé miðað við sama
mánuð í fyrra. Október er þannig
þriðji mánuðurinn af síðustu fjórum
þar sem söluaukning mælist milli
ára. Þetta kemur fram í tölum Bíl-
greinasambandsins.
Þó er samdráttur í sölu ef horft er
til fyrstu tíu mánaða ársins saman-
borið við sama tímabil í fyrra. Í
heildina hefur salan því dregist sam-
an um 23,7%. 8.008 fólksbifreiðar
hafa selst í ár en í fyrra voru þær
10.449 talsins.
Til einstaklinga hafa selst 4.396
Sala á nýjum fólksbifreiðum jókst
Aukningin nemur 12% í október
Morgunblaðið/Ómar
Bifreiðar Söluaukning er í flokki nýrra fólksbifreiða í októbermánuði.
3. nóvember 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 140.56
Sterlingspund 182.33
Kanadadalur 105.64
Dönsk króna 22.069
Norsk króna 14.815
Sænsk króna 15.859
Svissn. franki 153.63
Japanskt jen 1.3439
SDR 198.49
Evra 164.33
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 195.0482
Hrávöruverð
Gull 1875.8 ($/únsa)
Ál 1820.5 ($/tonn) LME
Hráolía 37.5 ($/fatið) Brent
Birgir Jónsson hefur sagt starfi sínu
lausu sem forstjóri Póstsins en hann
tók við starfinu í maí í fyrra þegar
fyrirtækið var á
barmi gjaldþrots.
Í tilkynningu frá
Íslandspósti sagði
að Birgir hefði
leitt mikið um-
breytingastarf hjá
fyrirtækinu sem
skilað hefði mikl-
um viðsnúningi á
vettvangi þess.
Í færslu sem
Birgir birti á Lin-
kedin í kjölfar tíðindanna skýrði hann
frá því að með aðkomu sinni hefði
hann viljað sýna fram á að hægt væri
að reka ríkisfyrirtæki á sama hátt og
öll önnur fyrirtæki.
„Þetta hefur verið algjörlega frá-
bært verkefni en ég taldi að nú væri
rétti tíminn til að skipta um við stýrið,
stærstu rekstrarmálin eru leyst og
önnur sjónarmið, og svo það sé bara
sagt hreint út pólitískari sjónarmið,
fara að skipta meira máli. Þetta er
kannski eðlilegt í ljósi eignarhaldsins.
Ég sem rekstrarmaður finn mig hins
vegar ekki alveg nógu vel í slíkri
stöðu og tel mig ekki hafa mikið að
gefa í henni.“
Í tilkynningu fyrirtækisins segir að
Birgir muni gegna starfi forstjóra þar
til eftirmaður hans verður ráðinn til
starfa.
Birgir
hættir
Birgir
Jónsson
Pólitísk sjónarmið
blandast í reksturinn
BAKSVIÐ
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Það má að vissu leyti segja að þetta
hafi verið dramatískt. Á mínum síð-
asta degi kom tilkynningin frá ríkis-
stjórninni og í kjölfarið var skellt í
lás hjá okkur,“ segir Heiður Vigfús-
dóttir, fyrrver-
andi fram-
kvæmdastjóri
Vök Baths á Eg-
ilsstöðum. Hún
lét af störfum nú
um helgina eftir
fjögur ár í starfi
hjá félaginu en
staðurinn var
opnaður sumarið
2019.
„Ég þáði starf-
ið fyrir fjórum árum og var ég þá bú-
in að sjá fyrir mér að eftir um ár í
rekstri myndi ég gefa boltann yfir á
annan aðila. Núna bíð ég bara spennt
eftir því að nýr framkvæmdastjóri
mæti á svæðið,“ segir Heiður, en
ráðningu nýs framkvæmdastjóra
hefur seinkað sökum faraldursins.
Ráðgert er þó að gengið verði frá
ráðningu á næstu vikum.
Heimamenn æstir í lónið
Ljóst er að heimsfaraldurinn hef-
ur gríðarleg áhrif á rekstur Vök
Baths enda eru nær engir ferða-
menn í landinu. Forsendubresturinn
er því algjör, sem hefur gert undan-
farna mánuði þunga. Þá hefur fyrir-
tækið neyðst til að skella í lás í ljósi
nýjustu aðgerða ríkisstjórnarinnar.
„Það er lokað hjá okkur núna, en það
er stefnt að því að hafa hefðbundinn
afgreiðslutíma áfram í vetur. Það
verður opið alla daga og lengur um
helgar. Fjöldatakmarkanir hafa
hingað til haft lítil áhrif á okkur þar
Heiður
Vigfúsdóttir
Allt um sjávarútveg